Eimreiðin - 01.04.1919, Page 49
EIMIiEIÐIN]
TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR
113
settir til höfuðs galdramönnum. Páfabréf þetta heitir:
»Summis'desiderantes«, og er óskaplegt skjal. Byrjar há-
tíðlega mjög með því að lýsa áhuga hins heilaga föður á
yelferð kirkjunnar. Svo kemur reiðarslagið: »Vér höfum
nýlega oss til sorgar heyrt, að persónur af báðum kynjum
hafi gleymt sáluhjálp sinni og vilst frá sinni kaþólsku trú
og lagst með djöflinum (cum Daemonibus incubis et
succulis abuti), einnig að viðkomendur með yfirsöngvum,
særingum og öðrum óhæfilegum villum, flakki, óreglu,
glæpum og afbrotum, skaði fóstur kvenna, unga dýranna,
ávexti jarðar, ber víngarðanna, ávexti trjánna, og einnig
skaði þeir, kæfi og drepi menn og konur, fé og skepnur,
víngarða, skóga, engi og bithaga, strá og korn og annan
afrakstur jarðar; sömuleiðis komi af stað í mönnum og
konum, fé og skepnum, innri og ytri óþolandi kvölum,
ac eosdem homines non gignere, et mulieres ne concipere,
virosque ne uxoribus, et mulieres ne viris actus conju-
gales reddere valeant, impedire o. s. frv. Felur hann svo
tveim áðurnefndum mönnum að koma í veg fyrir þetta
og gefur þeim ótakmarkað vald. Hótar öllu illu þeim, er
reyni að hefta framkvæmdir þeirra og ákveður að dóm-
um þeirra skuli ekki verða áfrýjað.
Eina hindrunin, sem nú var í vegi þessara manna, var
sú, að einstaka menn voru ófúsir á að viðurkenna galdr-
ana. Því tók Jakob Sprenger sig til og samdi bókina
Malleus Malificarum. Framan við hana er prentað páfa-
bréfið: Tenor Bullae apostolicae, og aftan við samþykki
guðfræðinga og þar minst leyfisbréfs frá Maximilían keisara.
Bókin er í þrem aðalköflum. í fyrsta kaflanum eru
sannanirnar fyrir því, að galdrar séu og hafi verið til.
Eru þar tilvitnanir í ritninguna og kirkjufeðurna, og mikill
lærdómur. Og þeir byrja með þvi að slá varnagla við
því, að menn neiti göldrum, ineð því að segja: »Sú stærsta
villukenning sem til er, er sú, að neila göldrum«. Þá vissu
menn á hverju þeir áttu von frá rannsóknardómurunum, ef
þeir neituðu tilveru galdranna. Um það, hvers vegna galdra-
menn og konur séu til, segir þar, að djöfullinn geti ekki
sjálfur, af því að hann sé andlegur, gerl líkamlegt tjón.
8