Eimreiðin - 01.04.1919, Page 50
114
TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR [EIMREIÐIK
Hann verði fyrst að fara i líkami manna, og láta þá svo-
gera tjónið. Svo kemur sönnunin: Djöfullinn sjálfur getur
ekki gert slíkt tjón. Samt sem áður er það sannað, að-
slíkt tjón verður. Og þá hljóta líka galdramenn að vera til.
þá er rædd spurningin: Hvers vegna er það miklu oftar
konur, sem galdra?1) Og þeirri spurningu er svarað meá
þeim svivirðilegustu skömmum um kvenfólk, sem til eru.
þetta er smekkur af því: »Syndin er í heiminn komin
fyrir konu, hennar vegna deyjum vér allir. Hvað er konan
annað en fjandmaður allrar vináttu, óhjákvæmilegt stralT
á mönnunum, óumflýjanlegt böl (malum necessarium),
sifeld treisting, hælta á heimili hverju, sjálft hið illa, hulið
undir lit hins góða? Það er synd að kasta henni frá sér„
en kvöl að búa saman við hana. Hversu auðvelt er það
fyrir djöfulinn, að tæla hana til samninga við sig, þar eð-
hún er laus á trúnni, kæruiaus, lausmál og forvitin, svo
að hann getur tælt hana svo langl i samningunum, að
hún getur ekki snúið aftur. Ivonan gengur aldrei beina
braut, og það er af því, að hún er sköpuð úr bognu rifi.
Jafnvel nafn hennar sýnir þetta strax, þvi að femina
(kona) er myndað úr fe = trú og minus = minna«2).
Fyrsti parturinn er fullur af svona uppbyggilegum hug-
leiðingum, t. d. er þar sannað, að galdramaður sé verri
en Satan. Því að Kristur hafi þó ekki dáið fyrir Satan„
Satan syndgi því að eins á móti skaparanum, en galdra-
maðurinn bæði móti skaparanum og endurlausnaranum.
í öðrum partinum er galdramönnum lýst og öllu þeirra
athæfi. Skal hér ekki farið langt út í það, vegna þess, að*
lýsingin, sem í næsta kafla inun gefin á því, er að miklu
leyti sú sama. I'að þurfti ekki annað en Galdrahamarinn
lýsti því nákvæmlega til þess að allir ímynduðu sér, að»
svoleiðis væri það.
Um þriðja partinn er sama að segja. Þar er lýst réttar-
1) í þessu efni er víst ísland eina undantekningin. Alstaöar nema hér voru*.
konurnar miklu fleiri, sem brendar voru.
2) Auðvitaö er þetta ramvitlaus málíræði. En Galdrahamarinn hefir meira.
af slíku, t. d. diabolus úr duo = tveir og bolus = biti, af þvi að hann sækistu
eftir tveim bitum, sál og likama!