Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Page 56

Eimreiðin - 01.04.1919, Page 56
120 FRESKÓ [EIMREIÐIN hún bjr við, drepa hverja góða hugsun í dróma og varna því, að rödd hjartans fái nokkru að ráða. Nú er hér staddur hertogi einn af Kingslj'nn. Hann er einn af þessum óteljandi fjarskyldu frændum, sem hún á„ og alt fólk hennar kvað vilja, að hún gangi að eiga hann. Hann er góðlyndur maður og þægilegur i viðmóti. Hún kallar hann Vic. og gerir ekki annað en kvelja hann á allar lundir. Hann hefir eitthvað herramannlegt og einfalt við sig, og lætur því ertni hennar eins og vind um eyrun þjóta. En hann er alls eigi jafnoki hennar að andlegri atgervi, og ef hún giftist honum, þá er það eingöngu af þvi, að hana langar til þess, að verða hertoginna af Kingslynn. En það mundi kosta það, að þau yrðu bæði ógæfusöm, ef ekki hlytist enn verra af því. Eg vildi óska, að eg gæti lýst henni verulega ljóst fyrir yður. Eg sendi yður nú aðra mynd af henni, sem eg dró upp í gærkveldi. Hún hafði verið á hestbaki, og fór af baki hjá dálitlum gras-stalli, en eg stóð þar hjá, því aö þessi gras-stallur er fyrir framan danssalinn. Hún tók af sér litla hattinn, sem hún var með á höfðinu, hallaði sér upp að grindunum og spjallaði við mig dálitla stund. Kvöldroðinn læddist milli eikartrjánna og baðaði hár hennar í roða-lind sinni, og augu hennar urðu svo ein- kennilega mild og björt. Eg ætla að mála stóra mynd eftir þessum uppdrætti, þegar alt þetta er búið, og eg verð kominn aftur til Forinella, því að þá finst mér þetta víst eins og draumórar, að eg hafi verið norður á Englandi og málað freskómyndir þar. Þá verður hún án efa gift þessum Vic. og búin að svifta hann sálarfriði og sælu lífsins. Hún kom með alla hersinguna inn í danssalinn í gær eftirmiðdag. Eg á ekki svo hægt með að loka eigandann úti, og varð þvi að opna dyrnar, þó að eg verði að segja, að eg gerði það nauðugur. Þarna var sægur af fólki, körlum og konum. Þau töl- uðu ekkert nema ensku, og eg skildi auðvitað ekkert orð. Eg óskaði að einhver þar kynni itölsku, svo að eg gæti sagt honum, hvað mér þætti þetta ruddaleg framkoma.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.