BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Síða 3
HELGIHANNESSON
1967 -1975
Efni þessa blaðs er sérstaklega tengt þeim tímamótum
Bindindisfélags ökumanna að eiga nú að baki 30 ára starf.
í því tilefni snéri BFÖ blaðið sér til Helga Hannessonar,
deildarstjóra og ræddi við hann um starfog stefnumið B.F.Ö. á
liðnum árum, en Helgi er einn þeirra manna, sem í áraraðir hefur
unnið að vexti og viðgangi þessara félagssamtaka.
Hann gerðist snemma virkur starfskraftur innan þeirra, var
formaður Reykjavíkur- og Hafnarfjarðardeildar BFÖ um árabil,
og þegar skipulagi BFÖ var breytt á þann veg 1957 að
Landssamband BFÖ var stofnað var Helgi kjörinn í sambands-
stjórnina og átti hann sæti í henni allt til ársins 1975 að hann
gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en þá var hann búinn að vera
forseti sambandsins síðustu átta árin.
Hver voru tildrög að stofnun Bindindisfélags
ökumanna?
— Aðal hvatamenn að stofnun samtakanna
voru þeir Ásbjörn Stefánsson læknir, Pétur Sig-
urðsson, ritstjóri og Sigurgeir Albertsson, húsa-
smíðameistari, en þeir höfðu kynnst starfsemi
Bindindisfélaga ökumanna bæði í Noregi og
Svíþjóð.
Hvenær voru samtökin stofnuð?
— Það var 1953. Það ár var haldið í Reykjavík
Norrænt bindindisþing. Þing þetta sóttu margir
mætir menn úr stjórnarnefnd NUAT-Nordisk Union
For Alkoholfri Trafikk. Þann 31. júlí þetta sumar
var haldinn fundur á Hótel Borg, þar sem mættir
voru níu fulltrúar frá Svíþjóð, fimm frá íslandi og
einn fulltrúi frá hverju landanna: Danmörku,
Finnlandi og Noregi. Á fundi þessum var ákveðið
að stofna Bindindisfélag ökumanna á íslandi,
jafnframt var samþykkt að BFÖ gerðist formlegur
aðili að NUAT, en einmitt þennan dag 1926 var
M.H.F. - Motorförernes Helnykterhedsforþund
stofnað í Svíþjóð.
Á fundinum var samþykkt að halda framhalds-
stofnfund síðar, og var hann haldinn 29. seþt-
ember 1953, og teljum við hann stofndag fé-
lagsins.
Milli norrænu BFÖ félaganna er fyrir voru og
félags okkar hefur jafnan verið mikið og gott
samstarf.
Samhugur og hugsjónatengslin komu vel í Ijós
1973, þegar BFÖ. - (M.H.F.) - í Svíþjóð efndi til
fjársöfnunar meðal félagsmanna sinna til stuðn-
ings Vestmannaeyingum vegna eldgossins í
Heimaey, og afhentu BFÖ á fslandi yfir tvær
milljónir ísl. króna í þessu skyni.-
Hvernig erskipulag BFÖ og hvert er markmiðið?
— Fyrstu fjögur árin var eitt félag fyrir Hafnar-
fjörð og Reykjavík. Ennfremur voru 10 félög eða
deildir víðsvegar úti á landi.
Þann 24. júní 1957 stofnuðu þessi félög
Landssamband BFÖ og hefur starfsemin verið í
því formi síðan.
Ég vil gjarnan koma því að hér, að BFÖ —
félögin eru samtök manna sem rétt hafa til þess
að stjórna vélknúnum farartækjum og eru algjörir
bindindismenn.
Varðandi markmið samtakanna er því til að
svara, að í lögum þeirra segir í 2. gr. svo m.a.:
Tilgangur sambandsins er:
a) að stuðla að auknu umferðaröryggi með
því að fá sem flesta ökumenn til þess að gjörast
algjörir þindindismenn.
b) að auka og efla á annan hátt umferðar-
öryggi og umferðarmenningu í orði og verki og
3