BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 8
GUNNAR ÞORLÁKSSON
1979 -1981
Það var Ijúft og spennandi að starfa að
málefnum Bindindisfélgs ökumanna. Þar skipti
mestu að markmiðin voru jákvæð störf í almennu
félagslífi og unnið var að bindindi og bættri
umferðarmenningu, og jafnframt að unnið var
með glöðum hópi að framkvæmdinni, fólki sem
starfaði saman í eindrægni og einlægni og gerði
það sem best það gat hverju sinni.
Ljóst er að þátttaka í almennu fundarstarfi á
ekki upp á pallborðið hjá nútímafólki. Kemur þar
ýmislegt til. Lengri vinnutími, sjónvarp og svo sú
staðreynd að þeir sem helst gefa sig að frjálsu
félagsstarfi eru jafnframt bundnir í fjölda annarra
félaga sem kalla sífellt á starfskrafta.
Mér er það mikil ánægja að rifja upp þau
starfsár mín í BFÖ þegar ég sat á forsetastól, en
það var tímabilið frá nóvember 1979 til nóvember
1981.
Mig óraði ekki fyrir því þá, þegar félagið klifaði
sífellt á notkun öryggisbelta í bifreiðum, myndi ég
þrem árum síðar sitja við að minnast þess, og
hafa þá nýlega upplifað sjálfur að bílbelti var lífgjöf
mín í umferðarslysi. Já, ég upplifði þessa lífs-
reynslu nýlega. Ég var með beltið sþennt, og hef
reyndar verið frá því ég kom í stjórn BFÖ, en áður
stóð ég sjálfan mig að því að nota það aðeins í
utanbæjarakstri. Fyrir þessa hvatningu BFÖ vil ég
þakka hér og nú, um leið og ég hvet alla til
þrotlausrar baráttu fyrir notkun bílbelta, bæði í
fram og aftursæti.
í minni forsetatíð var það einkum þrennt sem ég
vil minnast á hér: Fjármálin voru þá og eru
grundvöllur starfsins, og horfði ekki vel haustið
1979, eftir mikilvirk og dugandi störf fyrri stjórnar.
Við settum þá af stað happdrætti, vinningum var
safnað og salan reynd á fleiri miðum en áður. Auk
þess var hafin útgáfa BFÖ blaðsins sem innihélt
markvissa auglýsingasöfnun. Þetfa tvennt gerði
gæfumun á ótrúlega skömmum tíma, og gerði
mögulegt að framkvæma það sem ég segi frá hér
á eftir.
Tölvuvinnsla félagaskrár fór fram á árinu 1980,
til mikilla þæginda fyrir stjórnendur félagsins.
Þetta var mikil tímabundin vinna sem allir stjórnar-
menn tóku þátt í, en hefur síðan nýst á margan
vinnusparandi hátt í starfinu. Félagaskráin, inn-
heimtan, útsending blaða, útsending happdrættis-
miða og yfirlit þegar óskað er eftir, léttir mjög alla
vinnu og gerir hlutina aðgengilegri og réttari.
BFÖ bíllinn. Sá draumur margra að félagið
Frá liðnum dögum.
Svipmynd frá ársþingi 1971
8