BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Page 15
BFÖ-bíHinn - Stjórnstöð á
hjólum.
Umferðarráð hafði nokkurs konar yfirumsjón og
stjórn með öllu því sem unnið var að á þessum
vettvangi og bæði gerði tillögur og óskaði eftir því
að sem flest félagasamtök tækju þátt.
Framlag BFÖ var með ýmsu móti. ( Ökuleikn-
inni var nú s.l. sumar lögð meiri áhersla á
umferðaröryggi en áður hefur verið, einkum í
umferðarspurningunum, sem lagðar voru fyrir
keppendur. Félagið gaf út og dreifði upplýsinga-
bæklingi um BFÖ, bæði markmið og leiðir, en þar
var einnig fjallað um umferðaröryggisárið.
Þessum bæklingi var dreift um allt land í sumar
í tengslum við Ökuleiknina. Félagið tók þátt í
ýmsum fundum og ráðstefnum sem tengdust
umferðaröryggisárinu og þá gjarnan fundum sem
önnur félagasamtök stóðu að.
Þá var nú nýverið, nánar tiltekið 23.-25.
september haldin hér í Reykjavík norræn ráð-
stefna á vegum BFÖ og NUAT-Ungdom, er
fjallaði um unga fólkið í umferðinni frá ýmsum
sjónarhornum séð. Ýmsum innlendum og erlend-
um gestum var boðið á ráðstefnuna, aðilum sem
starfa í tengslum við umferðaröryggismál, lög-
gæslu og dómsmál.
Um árangur þessa norræna umferðaröryggis-
árs er kannski erfitt að dæma á þessari
stundu. Þó er ég þess fullviss að öll markviss
fræðsla og upplýsingastarfsemi er af hinu góða og
leiðir huga almennings að því að margt má betur
fara í umferðinni. En það er einmitt einstaklingur-
inn sjálfur, sem leikur aðalhlutverið í sjónarspili
umferðarinnar. Það er tillitssemin sem er aðal-
atriðið, þolinmæðin við náungann og sú tilhugsun
að einn góðan veðurdag þurfi maður sjálfur að
verða hennar aðnjótandi.
Ökuleikni
ökuleiknikeppnirnar 1982 og 1983 fóru í alla
staði mjög vel fram. Augljóst er að keppnirnar eru
farnar að skipa sér fastan sess í bæjarlífi margra
kaupstaða sem heimsóttir eru og ýmsir byrjunar-
örðugleikar eru nú úr sögunni.
Auðvelt reynist að fá keppendur, en þó eru
stærri staðirnir erfiðari hvað það snertir, eins og
áhuginn sé þar minni, eða e.t.v. framboðið á
dægrastyttingu þeim mun meira en á smærri
stöðunum úti á landi.
Tæplega 600 manns tóku þátt í Ökuleiknis-
keppnum samtals þessi tvö ár.
BFÖ hefur verið í samstarfi við Dagblaðið-Vísi,
en í blaðinu hafa birst greinar og myndir frá
keppnunum. Þetta samstarf hefur farið batnandi
og voru stjórnendur Ökuleikninnar mjög ánægðir
með það hversu góð skil blaðið gerði kepþnunum
s.l.sumar.
Þá hefur Sambandið, véladeild lánað bíla til
úrslitakeppnanna og greiddi farseðil fararstjór-
ans til norrænu keppninnar árið 1982. Ýmsir
aðilar, fyrirtæki og einstaklingar úti um allt land og
hér á Reykjavíkursvæðinu hafa síðan gefið
verðlaun til keppnanna og þar að auki auglýsa
jafnan nokkur fyrirtæki á BFÖ-bílnum. Allt hefur
þetta hjálpast að til að greiða niður þann mikla
kostnað sem af Ökuleikninni er.
Hvort árið um sig voru heimsóttir milli 20 og 25
staðir um landið og hefur Einar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri BFÖ séð um keppnirnar og
notað til þess sendibifreið félagsins, sem er af
gerðinni Toyota Hiace, árgerð 1981.
Samanstendur þá dagskráin af hálfsmánaðar
hringferð um landið og síðan keppnum hér í
nágrenni Reykjavíkur, allt frá Garði og austur á
Hellu.
Á s.l. sumri var í fyrsta skipti keppt í sérstökum
kvennariðli og var þátttakan vonum framar.
Sumarið 1982 hafði BFÖ þó í fyrsta skipti sent
stúlku til keppni ásamt tveimur piltum í norrænu
ökuleiknina.
15