BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Qupperneq 23
bæöi með þeim peningagjöfum sem afhentarvoru
þar og einnig meö samskotum meöal veislugesta.
Má því segja að fáninn hafi verið kærkomin
afmælisgjöf.
Heiðursfélagar
Á afmælishátíöinni 24. september s.l. voru 7
menn kjörnir heiðursfélagar BFÖ, þsir eru:
Guömundur Jensson, Leifur Halldórsson, Þor-
lákur Jónsson, Gissur Pálsson, Gunnar Jónsson,
Jón Hoffmann og Þorkell Ásmundsson.
Aðrir núlifandi heiðursfélagar BFÖ eru:
Helgi Hannesson, Njáll Þórarinsson, Jens
Hólmgeirsson, Óðinn S. Geirdal, Gunnar Árnason
og Steinar Hauge.
Látnir heiðursfélagar eru:
Sveinbjörn Jónsson, Pétur Sigurðsson og Bryn-
leifur Tóbíasson.
Lokaorð
Góðir félagar. Ég vona svo sannarlega að ég
hafi ekki verið of svadsýnn í skýrslu minni. Til
þess er heldur engin ástæða.
Vissulega má benda á margt sem betur hefði
mátt fara í tíð núverandi stjórnar BFÖ. Sumum
málum hefði ugglaust farnast betur, hefðum við
lagt meiri vinnu í þau og einnig fyrirfundust
verkefni sem aldrei komust til framkvæmda.
En hvað er það sem í raun markar árangur í
félagsstarfi. Er það langur listi yfir verkefni, sem
æskilegt væri að framkvæma? Varla. Það eru ekki
orð, heldur athafnir, sem hér skipta máli.
Bindindisfélag ökumanna er ekki fjöldahreyfing
og reynslan sýnir okkur að tiltölulega mjög fáir
félagar koma í raun nærri félagsstarfinu — því
miður. Æskilegt væri að fleiri kæmu til starfa og
gerðu hlut félagsins enn meiri. En vissan um að
verið sé að vinna að góðum málefnum, vissan um
að Ijúka megi framkvæmd ákveðinna verkefna og
ekki síst veran í góðum félagsskap fólks sem vill
vinna sameiginlega að áhugamálum sínum, það
er mælikvarðinn á gott félagsstarf.
Félagar góðir. Ég hef ákveðið að gefa ekki aftur
kost á mér til forsetaembættis hjá BFÖ. Þessi tvö
ár í því embætti hafa verið mér lærdómsrík og
ánægjuleg. Ég hef átt gott samstarf við fjölda fólks
og öðlast ómetanlega reynslu í samvinnu við
félagsmenn.
Ég vil nota þetta tækifæri og þakka fyrir mig og
þó einkanlega vil ég þakka vini mínum Einari
Guðmundssyni fyrir aldeilis frábært samstarf. Ég
óska eftirmanni mínum í embætti alls hins besta
og hvet félagsmenn í BFÖ til að leggja hönd á
plóginn á næsta starfstímabili, félaginu okkar til
heilla. Fram til baráttu fýrir bindindi og bættri
umferðarmenningu. Sigurður R. Jónmundsson
Fombíla-
klúbbur
s
Islands
Jóhann E. Björnsson
Fornbílaklúbbur íslands var stofnaður á upp-
stigningardag, 19. maí 1977 og voru stofnfélagar
um 80.
Megin hlutverk klúbbsins er:
a) að efla samheldni meðal eigenda og
áhugamanna um gamla bíla.
b) að gæta hagsmuna eigenda gamalla bíla í
hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir þá gagnvart
innlendum og erlendum aðilum
c) að vekja áhuga og skilning á gömlum
bílum, varðveislu þeirra og minjagildi.
Fornbílaklúbburinn hefur allt frá stofnun leitast
við að hafa forgöngu um varðveislu gamalla bíla
og ekki sfst bíla, sem hafa sögulegt gildi.
Klúbburinn skilgreinir það á víðan hátt, hvað telst
gamall bíll, endamegaallirbílarteljastgamlirsem
ná því að verða 20 ára við okkar aðstæður.
Klúbburinn telur mikilvægt að fornbílar séu
varðveittir sem best, sem minjar um mesta
breytinga- og þróunarskeið í sögu íslands. 1
Starfsemi klúbbsins hefur verið blómleg þau ár
sem hann hefur starfað. Margir klúbbfélagar eru
virkir í starfi í hinum ýmsu nefndum klúbbsins. Má
þar nefna félagatengslanefnd, sem annastfélags-
heimili klúbbsins, sem opið er öllum félögum og
áhugamönnum einu sinni í mánuði yfir vetrar-
mánuðina. Ferðanefnd skipuleggur hópakstur á
fornbílum á sumrin. Geymsluhúsnefnd annast
hús klúbbsins, þar sem félagar geta geymt bíla
sína, og þar sem varahlutalager klúbbsins er
23