Tölvumál - 01.12.1990, Qupperneq 6
Desember 1 990
180.000 dollara greiðslu, og
sögðust ætla að rifta síðari hluta
samningsins, sem metinn er á
800.000 dollara.
16. október hringdu menn hjá
Logisticon inn á tölvukerfi
Revlon, og tóku hugbúnaðinn úr
sambandi. Til að tolla í tískunni
sögðu Revlon að Logisticon hefði
sett af stað "vírusa" sem gerðu
gögnin óaðgengileg. Logisticon
ber það af sér, þeir segja að
gögnin séu óskemmd, en Revlon
hafí ekki aðgang að þeim, meðan
hugbúnaðurinn er óvirkur.
Reyndar tengdu þeir hugbúnaðinn
aftur 18. október.
Revlon hefur stefnt Logisticon
fyrir samningsbrot, innbrot,
truflun á starfsemi og önnur brot.
Þeir segja aðgerðir Logisticon
vera "viðskiptaleg hryðjuverk"
og halda fram að þær hafi lokað
tveimur stórum dreifingar-
stöðvum í þrjá daga, stöðvað 20
milljóna dollara birgðasendingar
og gert hundruð manna verklausa.
Þeir telja einnig líklegt að
Logisticon hafí brotið ýmsar
öryggisreglur.
Logisticon svara því til að þrátt
fyrir að Revlon hafi kvartað yfir
villum forritinu - sem reyndar
megi búast við í öllum flóknum
kerfum - hafi þeir notað
hugbúnaðinn án þess að borga
fyrir hann.
16. október hringdu menn
hjá Logisticon inn á
tölvukerfi Revlon, og tóku
hugbúnaðinn úr sambandi.
Logisticon hafi einungis verið
að draga hugbúnaðinn til baka,
þetta hafi verið eina leiðin til
þess eftir að þessi deila kom upp.
Þeir neita brotum á
öryggisreglum, þar sem Revlon
hafi veitt þeim aðgang að
tölvukerfinu til að laga villurnar
sem upp höfðu komið. Að lokum
segja þeir að Revlon ýki skaðann,
þar sem bakráðstafanir hafi verið
til staðar ef tölvan skyldi bila.
Leichter segir lögin vera óljós á
þessu sviði. Þó sé þekkt að
fyrirtæki láti hugbúnað taka
sjálfan sig úr sambandi eftir
reynslutíma, eða árlega þar til
greiðsla hefur borist.
Einnig sé vel þekkt í heimi laganna
að taka aftur það sem ógreitt er.
Að sögn lögmanna muni
niðurstaðan fara eftir samningnum
sem Logisticon og Revlon gerðu
sín í milli.
Leichter segir að sleppi Logisticon
frá þessu sé víst að fyrirtæki
muni verða treg til að leyfa
forriturum aðgang að tölvukerfum
sfnum, og að minnsta kosti muni
þau vilja fá góða yfirsýn yfir það
sem gert er.
Og viti menn, í næsta skeyti á
ráðstefnunni kom frétt frá Jim
Kimble, þar sem hann segir frá
Sumir viðskiptavina hans
krefjast þess að
frumforritstextinn sé
geymdur í öryggishólfi.
auknum öryggisráðstöfunum
viðskiptavina sinna, þökk sé
Logisticon.
Versta tilfellið hljóðar þannig:
Fyrst þarf hann að gera minnisblað
um hverju á að breyta, og senda
viðskiptavininum með 48 stunda
fyrirvara.
Þegar það hefur verið yfírfarið
og samþykkt, fær hann að tengjast
gegnum mótald - eftir að hann
hefur hringt og látið vita að þetta
sé hann sjálfúr - og gera breytingar
sínar. Innan 72 stundaþarfhann
svo að skila inn yfirliti um hvað
var gert, hvaða skrám var breytt,
hvers vegna og svo framvegis.
Þetta skýrsluflóð fer einnig inn á
borð hjá deild innan lögreglunnar
þannig að rangfærslur geta kostað
ýmsar sakargiftir.
Sumir viðskiptavina hans kreijast
þess að frumforritstextinn sé
geymdur í öryggishólfi, svo
"lagfæra" megi skaða sem hann
veldur - meðvitað eða ekki - með
því að nota frumritið.
Hann tekur til þess að þetta minnki
afköst sín, sérstaklega ef um er
að ræða minni háttar breytingar.
I stað þess að vinna að
vandamálunum fari allur tíminn
í pappírsvinnu.
Tefldi við rangan
andstæðing
Nú til dags nota flestir stór-
meistarar gagnabanka til að
undirbúa sig íyrir mót. Þeir skoða
uppáhaldsbyrjanir andstæðinga
sinna, og reyna að finna veikleika
þeirra.
Peter Rice segir frá því þegar
villa, líklega ættuð úr skákblaði,
læddist inn í gagnasafn stór-
meistara. Þegar á hólminn var
komið tefldi andstæðingur hans
ekki eins og við var búist, og
seinna komst hann að því að
hann hafði skoðað skák teflda af
konu andstæðings síns - hún mun
einnig vera sterkur skákmaður.
Einnig hefur Polgarsystrunum
verið ruglað saman á þennan
hátt, segir Rice.
Þær leynast víða hætturnar!
6 - Tölvumál