Tölvumál - 01.12.1990, Qupperneq 8
Desember 1 990
Hádegisfundur um málefni
Rut nefndarinnar
27. nóvember sl. hélt SÍ
hádegisfund þar sem helstu störf
RUT nefndarinnar voru kynnt,
en RUT er stytting á
Ráðgjafanefnd um Upplýsinga-
og Tölvumál.
Fyrsti ræðumaður var Jóhann
Gunnarsson, formaður RUT
nefndarinnar. Hann kynnti
hlutverk og verksvið hennar.
Næst talaði Stefán Ingólfsson
um tiltekin verkefni sem nefndin
vinnur að. Þar ber hæst
samræmingu á hinum ýmsu
greinitölum í opinberri skráningu
(fólk, bflar, fasteignir ofl.) þá
kynnti hann sjálfa RUT
handbókina. í henni má m.a.
finna ýmiss konar fróðleik og
viðmiðunartölur sem máli skipta
þegar ákvarðanir eru teknar um
tölvuvæðingu og skyld mál.
Einnig ræddi Stefán um
mismunandi aðferðir við
kostnaðarmat. I næstu útgáfu
RUT handbókarinnar, sem er
væntanleg snemma á næsta ári,
verður gerð grein fyrir þrem
mismunandi aðferðum sem beita
má við kostnaðarmat á upp-
lýsingakerfum. Aðferðirnar
nefnir hann einingarmats-,
kerfisþátta- og samanburðar
aðferðina.
Loks talaði Jón Þór Þórhallsson
um vottun á bókhaldskerfum, og
staðfestingu á því að þau uppfylltu
kröfur um endurskoðun.
(ÁÚS)
Tölvunet Veðurstofu íslands, nútíð og framtíð
D_
P
<D
C
o
UJ
Q
Q_
\
O.
o
*.
Staðsett á
Raunvlsindastofnun
DECforms
CDD+
P.S.I.
CMU-TEK TCP/IP
frá Lamont
Hjálparforrit fyrir SUNView
Nóv.
Gulli
1990
8 - Tölvumál