Tölvumál - 01.12.1990, Síða 16
Desember 1 990
En EDI-stjórinn (EDI-"server")
er ekki aðeins móttökustjóri, hann
er líka sendistjóri. Svo vitnað sé
í dæmið að ofan um tollakerfið,
þá sendir tollakerfið samkvæmt
staðli til baka staðfestingu til
sendanda um að tollskýrslan hafi
verið móttekin. Sendistjórinn
tekur við staðfestingunni frá
tollakerfínu, þýðir hana yfir á
Edifact-staðal, skráir hana hjá
sér og sendir hana eftir sömu
flutningsleið til baka til sendanda
tollskýrslunnar.
Og EDI-stjórinn gegnir þessu
hlutverki móttökustjóra og
sendistjóra jafnt fyrir tollskýrslu
sem önnur EDI-skjöl.
Tengsl EDI-stjórans við Skýrr
og þær flutningsleiðir sem neíhdar
hafa verið og Skýrr hafa hingað
til einbeint sér að, eru sýnd á
mynd 2. Þar kemur fram að hér
var sú leið valin að fá ísnet til að
mynda brú milli gagnahólfa-
þjónustu P&S og EDI-stjórans.
Skjöl frá gagnahólfaþjónustunni
eru fyrst send til Isnets sem síðan
kemur þeim áfram til EDI-
stjórans. Myndin sýnir að Isnet
býður tveimur hópum við-
skiptavina virðisaukaþjónustu í
sambandi við EDI. Annars vegar
þeim sem eru þegar viðskiptavinir
gagnahólfaþjónustunnar og þurfa
ekki að leggja út í viðbótar-
ijárfestingu til að tengjast Skýrr
vegna EDI og hins vegar sínum
eigin viðskiptavinum sem geta
tengst Skýrr beint vegna EDI og
þurfa ekki að leggja út í
viðbótarljárfestingu þess vegna.
EDI-vinnustöð
Vinnustöðvamar, sem sýndar eru
á mynd 2, eru EDI-vinnustöðvar.
EDI-vinnustöð getur verið
einmenningstölva með forriti sem
tekur við skjölunum með þeim
Mynd 2
upplýsingum, sem senda á, og
þýðir þau yfir á Edifact-staðal,
skráir þau hjá sér og sendir þau
eftir viðeigandi flutningsleið til
EDI-stjórans. Sá tekur við þeim
og meðhöndlar þau, eins og lýst
var að ofan. Upplýsingarnar
sjálfar geta hafa verið skráðar
beint eða skjölin orðið til í
Almennt er talið að EDI-
væðing fyrirtækja sé
aðeins að hluta verkefni
tæknilegs eðlis eða um
30%, en 70% séu
stjórnunarlegs eðlis.
ákveðnum viðföngum, t.d.
bókhaldskerfum sem líka eru
keyrð í einmenningstölvunni eða
bókhaldskerfum sem keyrð eru í
öðrum tölvum sem vinnustöðin
ertengd. í síðastnefndatilfellinu
er vinnustöðin einskonar EDI-
stjóri (EDI-"server" eða EDI-
"frontend") fyrir viðkomandi
tölvu og gegnir ekki ósvipuðu
hlutverki og EDI-stjóri Skýrr og
sagt var frá hér að framan.
Skýrr og
samstarfsaðilar
Allt það, sem hér hefur verið
greint frá, var sýnt á EDI-
sýningunni sem haldin var í
tengslum við ráðstefnu um
pappírslaus viðskipti og haldin
var nýlega á vegum EDI-
félagsins. Það skal tekið fram að
1 6 - Tölvumál