Tölvumál - 01.04.1991, Page 13
Apríl 1991
Þróunarumhverfi
Staðlað þróunarumhverfi er mjög
mikilvægur þáttur í að skapa
aðstöðu sem einfalt er að setja
nýjan starfskraft inn í. Staðlað
þróunarumhverfi samanstendur
af þróunartólum sem eru öflug,
en jafnframt einföld í notkun, og
notandi getur reitt sig á að séu til
staðar, rétt upp sett eftir að
skipanaskráin sem mótar um-
hverfið er keyrð upp. Staðlað
þróunarumhverfi felst því fyrst
og fremst í því að búa til skipana-
skrá sem mótar umhverfíð. Skip-
anaskrá skal vera í leitarslóða
þegar kveikt er á vélinni eða
notandi tengist staðbundnu neti.
Regla:
< Skipanaskrá> :: =
< Verkefni > start.
[bat | cmd]
Dæmi:
tvistart.cmd
(PM umhverfi)
tvistart.bat
(Windows umhverfi)
Umhverfísþættir sem skipana-
skráin skal móta eru eftirtaldir:
- Textaritill
- Auðlindaritlar
- Kembiforrit
- Þýðandi
- Gagnasafnskerfí (ef við á)
Til að einfalda fíutning manna
milli verkefna skal leitast við að
staðla áðurnefnd tæki og tól.
Mikilvægt er að hafa í huga að
eðlileg þróun á sér stað á þessum
tólum. og mikilvægt er að vera
vel vakandi fyrir nýjum og betri
tólum.
Niðurbrot vinnusvæða
Einnig er mikilvægt að upp-
bygging vinnusvæða sé samræmd
milli verkefna, og er mælt með
að hvert verkefni eigi a.m.k.
eftirtalin undirvinnusvæði (sub-
directories): DBS, WIN, DOC,
TEST og RUN. í stærri
verkefnum er einnig æskilegt að
brjóta verkefnið niður í einingar,
sem hvert um sig meðhöndlast
sem sjálfstætt verkefni. Undir-
forritasöfn sem nýta má í mörgum
verkefnum skulu hafa sitt eigið
vinnusvæði, og vera á ábyrgð
eins aðila, líkt og um venjulegt
þar með talið hjálparskrá, log-
skrár, handbækur og hugsanlega
fúndargerðir.
TEST: Vinnusvæði sem notað
er til prófunar. Einnig er ætlast
til að eldri kóði, sem ekki er
æskilegt að henda sé geymdur í
þessu vinnusvæði til að tryggja
að önnur vinnusvæði endurspegli
þá útgáfu af forritinu sem verið
er að þróa.
RUN: Sýningarhæf keyrslu-
útgáfa skal vera á þessu vinnu-
svasði.
{=================================================================
t Undirforric...: Nafn undirforrics
I
I Verksviö......: Lýsing á virkni undirforrics.
I NoCkun........:
! For skilyröi..: Forskilyröum lýsc
I Efcir skilyröi: Efcirskilyröum lýsc
I Skilagildi...: Lýsing á skilagildi
I Hliðaráhrif..: Áhrif undirforrics sem ekki koma fram í færibreycum
I = = === = = = = = = = = = = = = = = = = === = = ====== = = = = = === = = = = = = = = = = = = = = = = = = = = = ====}
Mynd 7.
verkefni sé að ræða. Mikilvægt
er að forritari sem nýtir sér slík
undirforritasöfn líti á þau sem
svartan kassa, þar sem gert er
ráð fyrir að API-skil (Application
Programming Interface) séu
stöðug, og einu skil forritara við
eininguna. Nota skal tilvísun í
undirforritasafnið frekar en flytja
það á vinnusvæði verksins.
Ætlast er til að undirvinnusvæðin
verði notuð á eftirfarandi hátt:
DBS: Gagnagrunnshluti verk-
efnisins.
WIN: Framsetningar- og rök-
hluti kerfísins.
DOC: Inniheldur allar ritvinnslu-
skár sem tilheyra verkefninu,
Lokaorð
Þessar reglur eru ætlaðar sem
grunnur að staðli fyrir fyrirtæki
jafnt sem hugbúnaðarhús.
Aðlögun að þörfum hvers og
eins er þó nauðsynleg, til að taka
mið af mismunandi þróunar-
umhveríum og forritunarmálum.
Reynslan sýnir að notkun þeirra
virkar ekki sem kvöð, heldur
sjálfsagður þáttur í hugbúnaðar-
gerð, sem forritarar meta vegna
kosta stöðlunar í forritafasa.
1 3 - Tölvumál