Tölvumál - 01.04.1991, Qupperneq 14
Apríl 1991
Hvað er (SAA)?
Guðmundur Hannesson og Þorsteinn Hallgrímsson, IBM á íslandi
Árið 1987, nánar tiltekið 17.
mars birtist smágrein á síðum
Wall Street Journal. ígreininni
var kynnt ný högun frá IBM,
SAA, sem stendur fyrir Systems
Application Architecture. Þessi
yfirlætislausa kynning var vísirinn
að stærstu breytingum á búnaði
og þjónustu frá IBM, fyrr og
síðar.
Markmið SAA er tvíþætt:
- Að auðvelda notendum að
flytja til verkefni milli tölva
- Að dreifa vinnslum og
gögnum
Sagt með öðrum orðum: Að
vinna verkefni í því tölvukerfi
þar sem það er hagkvæmast
þannig að vinnsluaðferðir og
kunnátta varðveitist sem best.
í SAA er skilgreint samræmt
safn af skilum, aðferðum og
samskiptareglum f þrem vélbún-
aðarumhverfum frá IBM. SAA
tekur yfir eða byggir á ijórum
megin þáttum:
* Samræmdum forritaskilum
* Samræmdum notendaskilum
* Samræmdum samskipta-
skilum
* Sameiginlegum hugbúnaði.
Lítum nánar á hvern þessara
þátta:
Sameiginleg forritaskil. Hér er
lögð áhersla á eftirfarandi atriði.:
- Hægt að flytja forrit milli
hönnunarramma
- Þekking forritara nýtist milli
hönnunarramma
Ákveðin forritunarmál hafa þegar
verið löguð að þessum forrita-
skilum, og önnur eru á leiðinni.
Innan rammanns eru forritunar-
kerfin:
- Cross System Products
(CSP)
- "C" (ANSI)
- COBOL (ANSI)
- FORTRAN 77 (ANSI)
- CMS (REXX)
- RPG IV
Önnur forritunarkerfi sem SAA
tekur væntanlega upp á arma
sína innan skamms eru Pascal og
ADA.
Samræmd notendaskil: Hér er
lögð áhersla á forritanlegar vinnu-
stöðvar en einnig ertekið tillit til
hefðbundinna skjástöðva. Helstu
þættir samræmdra notendaskila
eru:
* Hægt að flytja notendur milli
hönnunarramma
* Tölvuumhverfi lagað að
vinnuumhverfi
* Hlutbundin hönnun þar sem
gögn notenda eru þungamiðja
samskipta
* Val með því að benda
* Notkun myndrænnar fram
setningar til þess að einfalda
skýringar
* Gluggaumhverfi
* Óhlutbundin (modeless)
hönnun þar sem notandi
hefur stjórnina.
Þegar eru nokkrir stærri
hugbúnaðarframleiðendur hér-
lendis farnir að hafa samræmd
notendaskil að leiðarljósi, hafa
lagað eldri kerfi af þessu nýja
staðli og hanna ný í samræmi við
hann.
Samræmd samsldpti: hersluatriði
eru eftirfarandi:
* Ferli geta talað saman milli
hönnunarramma
* Grunnhugmyndir byggja á
miðlara/biðlara (Client/
server) þannig að gagnagrunnur
liggi á miðlægri vél og framsetn-
ing á einmenningstölvu
* Allar tölvur sem tala máli
sameiginlegra samskipta geta
tengst inn á net (LU 6.2)
Samræmdur hugbúnaður: Fyrsta
hugbúnaðarkerfið sem uppfyllir
skilyrði SAA um samræmingu
hugbúnaðar er Skrifstoíúsýn, sem
þýdd hefur verið á íslensku.
Ekki er hægt að yfirgefa þetta
efni án þess að minnast á tvo nýja
sprota á síungum meiði SAA
stofnsins. Þetta eru samvinnsla
eða Cooperative Processing og
AD/CYCLE hönnunar-ramminn.
Meðan fyrra hugtakið er vel
skilgreint er rétt að benda á grein
í síðasta októberblaði Tölvumála
um AD/CYCLE. Þá má búast
við skilgreiningum á dreiíðum
gagnagrunnum innan SAA og er
sú þróun þegar farin að sjá dagsins
ljós.
SAA er framtíðarstefna IBM í
hönnun vél- og hugbúnaðar.
SAA er framtíðarstefna IBM I
samskiptum,
- notenda við verkefni
- hönnuða við verkefnagerð
- tölvu við tölvu
- hönnuða um verkefnagerð
Við munum sjá SAA breytast og
lagast að nýjum tímum og
aðstæðum. Dæmi um slíkt er
opnun SAA rammanns fyrir
UNIX kerfi. Alls staðar þar sem
því verður við komið eru notaðir
viðurkenndir staðlar eins og
ANSI/SQL og LU 6.2.
Megin markmið SAA mun alltaf
verða að auðvelda notendum
aðgang að gögnum og verkefnum
tölvanna. Þannig verður tölvan
sjálfsagt og þjált amboð sem léttir
okkur daglegu störfin.
14 - Tölvumál