Tölvumál - 01.07.1996, Síða 15

Tölvumál - 01.07.1996, Síða 15
Ekkert viðhald hjá Reiknistofu bankanna! Júlí 1996 Eftir B irg i Rafn Þráinsson Undanfarið hefur verið unnið í nokkrum vinnuhópum á kerfis- sviði RB að gerð nýs kerfisþró- unarlíkans (SDLC líkan') ásamt mótun aðferða við beitingu þess þarsem gamla líkanið sem byggir á sœnskum staðli (SYS/RAS) var löngu úrelt. I þessari grein er stuttlega lýst tilurð og uppbygg- ingu kerfisþróunarlíkans RB og hvernig Lotus Notes er notað við meðhöndlun og geymslu ýmissa afurða hugbúnaðargerðarinnar. Hjá Reiknistofu bankanna (RB) hefur verið unnið að hugbún- aðargerð fyrir banka og sparisjóði í rúmlega tuttugu ár. Hugbúnaður RB er byggður upp af mörgum, nokkuð sjálfstæðum kerfum, sem tengjast hvert öðru með einum eða öðrum hætti. Aldur kerfanna er misjafn, sum má rekja til upphafs- ára RB, önnur eru ný. Eftir því sem kerfunum fjölgar fer sífellt meiri tími í breytingar eldri kerfa, sum- um er stöðugt verið að breyta, önnur breytast sjaldan. Eðli breytinganna er einnig mismunandi, sumar breytingarnar felast jafnvel í því að kerfi er búið til að nýju. í slíkum tilfellum er samt sem áður talað um breytingu kerfisins fremur en gerð nýs kerfis. Þannig er oft skipt um haus og enn oftar um skaft en alltaf er notand- inn þó með sama gamla góða ham- arinn! Þegar unnið er að breytingum kerfis er oft, meðvitað eða ómeð- vitað, slakað á kröfum um form- legar, skipulegar aðferðir við hug- búnaðargerðina, ólíkt því þegar um gerð nýs kerfis er að ræða. Þá er hugtakið viðhald jafnan notað um allt „klabbið“ og hverjum í lófa lagið hvernig breytingarnar eru framkvæmdar. Nýtt kerfis- þróunarlíkan Snemma varð ljóst að þó ein- stakar aðferðir mætti velja líkt og „pakkalausnir“ varð að móta sjálft kerfisþróunarlíkanið að þörfum RB. Þar þurfti meðal annars að taka tillit til þess skipulags sem RB býr við. Þyngsta þrautin var þó að koma fram með líkan sem hentar jafn vel við gerð nýrra kerfa sem og til breytinga á eldri kerfum, svo sem þeirra sem getið er í upphafi greinarinnar. Ekki þótti heppilegt að hafa nokkur mismunandi líkön eftir eðli kerfa eða umfangi breyt- inga, fremur að hafa sveigjanleika líkansins nægilegan til að því megi beita í öllum kerfum, enda er upp- bygging þeirra tiltölulega keimlík. Nokkur þeirra líkana sem fjall- að er um í fræðiritum og öðrum skrifum voru skoðuð og valið að leggja svokallað V-líkan til grund- vallar þar sem reynt er að sann- reyna sem best kröfur og hönnun áður en miklum tíma hefur verið eytt í útfærslu og prófanir. Reynt er af fremsta megni að styðjast við alþjóðlega staðla1 2 og hugmyndir sóttar víða. Við þann grunn voru tvinnuð þau „góðu“ vinnubrögð sem við höfum þegar tileinkað okkur og reynt að sauma fyrir þau göt sem „slæmu“ vinnubrögðin orsökuðu. Þannig felur líkanið í sér endur- skipulagningu á hugbúnaðargerð- inni með ívafi fjölmargra núver- andi vinnubragða, sem mótast hafa afreynslunni. Líkanið gerir ráð fyrir útgáfu- stýrðri hugbúnaðargerð þar sem gangsetning nýs kerfis markar fyrstu útgáfu þess og allar breyt- ingar sem á því verða eftir það fel- ast í gangsetningu nýrra útgáfa. Skýr munur er gerður á breytingu (viðbót eða betrumbót) annars vegar og galla (villu) hins vegar. Til breytinga teljast allar breyting- ar á samþykktri virkni kerfis, sama hversu stórar eða smáar eða hvers eðlis þær eru, jafnt vegna breyttra þarfa eða lagabreytinga. Á milli þess sem nýjar útgáfur kerfis eru gangsettar verður notandi kerfisins aðeins var við lagfæringar á göll- um, hvort sem þar er um hönnunar eða forritsvillur að ræða. Sam- kvæmt þessu lýkur gerð kerfis aldrei, hugtakið viðhald á því ekki við og kemur ekki fyrir í þessu lík- ani, ólíkt t.d. ISO stöðlum. 1 Software Development Life-Cycle Model 2 Svo sem ANSI/IEEE 830, ANSI/IEEE 1016, ISO 9001 og ISO 9000-3 Tölvumál - 15

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.