Tölvumál - 01.07.1996, Blaðsíða 21
Júlí 1996
sem eru lítil og lítið er um erfðir,
þ.e.a.s. maður býr til hluti úr klös-
um sem búið er að útfæra. Þegar
verkefnin verða stærri er nauðsyn-
legt að búa til eigin klasa og þá
koma erfðir inn í myndina. Til þess
að nota málið á skynsamlegan hátt
er nauðsynlegt að læra það og þá
sérstaklega það sem snýr að því
hlutbundna. Hér á eftir má sjá brot
úr kóda sem umhverfið býr til
þegar Delphi er ræst.
Þarna er verið að skilgreina
klasann TForml og búa til hlutinn
Forml sem er tilvik af þessum
klasa. Þó að hlutir séu búnir til líkt
og Forml hér fyrir ofan er ekki
búið að smíða hlutinn. Hér er
málið frábrugðið Turbo Pascal þar
sem hlutir voru smíðaðir þegar
þeir voru skilgreindir. Forml er í
raun og veru bendir og þarf að
kalla á smið klasans til að raun-
verulegur hlutur verði til. Þó að
Forml sé bendir þarf ekki að nota
bendisrithátt þegar vísað er í að-
gerðir og eiginleika formsins. Þetta
og aðrar breytingar sem orðið hafa
á málinu kallar Borland „The Del-
phi Object Model“.
Allir klasar í Delphi erfa frá
TObject klasanum en þessi for-
faðir allra klasa inniheldur eigin-
leika eins og upplýsingar um tag.
Þannig er hægt að skrifa
þarna er vísað í hlutinn Sender og
ef hann er tilvik af klasanum
TButton eða afleiddum klasa þá
er segðin sönn. Með þessu móti er
hægt að grennslast fyrir um tegund
hluta í keyrslu.
Object Pascal er geysilega öfl-
ugt forritunarmál og klasasafnið
sem fylgir með Delphi hefur að
geyma klasa sem auðvelda forrit-
aranum lífið. Þó fer í taugamar á
mér eftir áralanga veru í C og C++
að erfitt er að fá
þýðandann til
að samþykkja
einfaldar
aðgerðir á borð
við minnisafrit-
un á milli
ó s k y 1 d r a
svæða. Nýlega
notaði ég til
dæmis Win-
Sock eininguna
sem fylgir með
Delphi en hún
kallar á WinSock þjónust í Win-
dows. Þegar ég reyndi að forrita
líkt og ég var vanur í C / C++ gerði
þýðandinn mér lífið leitt og þurfti
ég að blekkja hann til að hann sam-
þykkti kódann. Þetta telst þó til
undantekninga og í flestum tilfell-
um er maður þakklátur fyrir tag-
meðvitaðan þýðanda.
Gagnavinnsla
Forrit sem skrifuð eru í Delphi
geta eins og Turbo Pascal forrit
unnið með taggerðar skrár og
textaskrár. Að auki er hægt að
nálgast gögn í gegnum BDE sem
er skammstöfun á Borland Data-
base Engine. í gegnum BDE geta
forrit unnið beint með gögn á Para-
dox og DBase formi eða farið
áfram í gegnum ODBC að gögn-
um. Borland
hefur einnig
upp á að bjóða
SQL Link sem
hægt er að nota
frá BDE yfir í
if Sender is TButton then
type
TForml = class(TForm)
private
{ Private declarations }
public
{ Public declarations }
end;
var
Forml: TForml;
gagnagrunna eins og Oracle. Mælt
er með SQL Link í stað ODBC
vegna hraða. Með í pakkanum eru
verkfæri til að vinna með gögn og
gagnagrunna en það er reyndar
háð því hvaða útgáfa er keypt. Á
mynd á næstu síðu má sjá skjá-
mynd af Database Desktop en það
forrit er þægilegt að nota til að
smíða töflur og slá inn gögn.
í Delphi forritum er hægt að
setja gagnastýringar á form.
Gagnastýringum má skipta í þrjá
flokka. Það eru stýringar sem vísa
í gagnagrunn, stýringar fyrir með-
höndlun gagna á formi eins og
innsláttarsvæði og flutningahnapp-
ar og að lokum stýring sem er
nefnd gagnauppspretta (Data
Source). Gagnauppsprettan gegnir
eingöngu því hlutverki að vera
milliliður fyrir gagnavinnslustýr-
ingar. Hægt er að kóda allt saman
og nota hefðbundnar Windows
stýringar en það er að sjálfsögðu
meiri vinna. Aftur á móti hefur
maður meiri stjórn yfir kódanum.
Sérstakir klasar eru fyrir töflur og
fyrirspurnir og er hægt að nota
SQL skipanir í kódanum en það
eykur hraða ef um ODBC tengingu
er að ræða. Þegar nokkur form
þurfa að nota sama gagnagrunninn
er hagstætt að nota gagnaeiningu
(Data Module). Hún hefur að
geyma töflur og fyrirspumir og eru
þær sýnilegar í öllum þeim form-
um sem nota eininguna. Að lokum
má nefna gagnaaðstoð eða „Data-
Base Form Expert“. Með þessari
aðstoð sem virkjuð er frá valmynd-
inni er hægt að hanna alls konar
glugga sem tengjast gögnum.
Lokaorð
Að velja þróunarumhverfi fyrir
sig og sína er ekki létt og það getur
reynst fyrirtækjum dýrkeypt að
velja umhverfi við hæfi. Mitt ráð
til fyrirtækja er að prófa sem flesta
pakka þannig að þau geti sjálf val-
ið það sem hentar. Ef notaðir eru
pakkar eins og Delphi er nauðsyn-
Tölvumál - 21