Tölvumál - 01.07.1996, Blaðsíða 23
Júlí 1996
Tillaga um MS nám í tölvunarfræði við
Háskóla íslands
Eftir Odd Benediktsson
Tillögur þessar fjalla um að
komið verði á laggimar 60 eininga
„hefðbundnu“ MS námi í tölvun-
arfræði við raunvísindadeild í tölv-
unarfræðiskor. Tillögumarbyggja
á tillögum sem Starfshópur um
stuðning við hugbúnaðariðnað
lagði fram fyrr í vetur. í starfs-
hópnum eru Auðun Sæmundsson,
Friðrik Sigurðsson, Oddur Bene-
diktsson (formaður) og Sveinn
Þorgrímsson. Hópurinn starfar á
vegum iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytis.
íslenskur
hugbúnaðariðnaður
íslenskur hugbúnaðariðnaður
er einn af vaxtarbroddunum í há-
tækni hér á landi eins og annars
staðar á vesturlöndum. í Samtök-
um Islenskra Hugbúnaðarfyrir-
tækja eru nú 25 fyrirtæki með nær
300 starfsmenn alls. En alls starfa
á að giska 1200 manns við hug-
búnaðargerð og þjónustu á íslandi.
Útflutningur á hreinum hug-
búnaði er áætlaður um 300Mkr
árið 1995 og um lOOOMkr með
útflutningi Marels. Hugbúnaðar-
gerð er eina hátæknisviðið þar sem
stöðug eftirspurn virðist vera eftir
háskólamenntuðu fólki.
A meginlandi Evrópu þekkist
varla að háskólamenntun ljúki með
þriggja ára BS prófgráðu. Til þess
að teljast full menntað þarf fólk
að hafa lokið MS eða sambærilegu
námi.
Þörf á MS í
tölvunarfræði
Útskrifaðir tölvunarfræðingar
eru nú um 340 og um 20 útskrifast
árlega. Meirihluti útskrifaðra tölv-
unarfræðinga starfa við hugbúnað-
argerð. Einungis fáir þeirra hafa
framhaldsmenntun. Ætla má að
300-400 verkfræðingar, stærð-
fræðingar og annað tæknimenntað
fólk starfi á þessum vinnumarkaði.
Félag tölvunarfræðinga gekkst
nýverið fyrir könnun á áhuga fél-
agsmanna á framhaldsnámi. Alls
53 svöruðu og höfðu 47 (89%)
áhuga á að sækja slíkt nám ef boð-
ið væri upp á það hérlendis en 17
(32%) ef þyrfti að fara til útlanda.
Ætla má að yfir 600 manns
hefðu nú áhuga á MS námi í tölv-
unarfræði.
Meginþörfin er fyrir almenna
framhaldsmenntun og rannsókna-
tengt nám. Einnig er þörf fyrir
endurmenntun hjá eldri starfs-
mönnum til endumýjunar á þekk-
ingu.
Nemendur í MS verkefnum
munu færa auknar rannsóknir og
þróunarvinnu inn í fyrirtækin.
Mikil þörf er fyrir það.
MS nám myndi einnig styrkja
BS námið í tölvunarfræði sem og
rannsóknir í Raunvísindadeild.
Auk þess má ætla að aðrir nemar í
MS námi í Verkfræði- og Raun-
vísindadeild gætu haft áhuga á að
sækja námskeið í MS tölvunar-
fræðináminu.
Það skal tekið fram að fram-
haldsnám erlendis mun eftir sem
áður gegna veigamiklu hlutverki.
Frh.á næstu síðu
LlíILÖLIí li.LÍ LtLÖ.UÍQl
Bay Networks
Ee<: 7 7 VV