Tölvumál - 01.03.1998, Qupperneq 11

Tölvumál - 01.03.1998, Qupperneq 11
TOLVUMAL m. lega og hraðvirka lausn, sem ekki kostar of mikið, því 15-20 sek- úndur þykja orðið heil eilífð í nú- tíma tölvusamskiptum. Staðgengilsvinnsla Eins og fyrr segir er tenging ffá heimildagjafabúnaðinum til höf- uðstöðva Visa í Englandi, m.a. vegna staðgengilsvinnslu fyrir Electron kort. Staðgengilsvinnsla er það þegar heimildargjafakerfi í stórtölvu RB er einhverra hluta vegna ekki starfandi og leita þarf til varakerfa til að fá svör við heimildarbeiðnum. Vegna Maestro korta, sem eru frá EUROPAY, þurfa posarnir að hringja í vara- númer til að leita heimilda ef það tekst ekki í RB. Staðgengils- vinnsla þessi er nokkrum tak- mörkum háð, enda hafa stað- genglar ekki aðgang að stöðu reikninga þótt þeir hafi aðgang að svörtum listum yfir stolin og glöt- uð kort og þessháttar. Af þessum ástæðum fá margar tegundir sí- hringikorta enga þjónustu þegar þetta ástand ríkir. DK-uppgjör Eins og fyrr segir þá er inn- hringihlutfall í Debetkortakerfinu kringum 45%. Það þýðir að ekki er leitað beinlínuheimilda fyrir meirihluta færslna. Engu að síður þarf að koma þessum færslum til skila til að skuldfæra korthafa og svo söluaðilar fái eitthvað fyrir sinn snúð. Posar og kassakerfi safna því öllum færslum saman og senda til RB við uppgjör í svokölluðum bunkum. Oftast ger- ist það í lok hvers dags, en dæmi eru um söluaðila sem senda sjaldnar eða gera upp kassana á öðrum tímum. Safntölvur I RB eru staðsettar safntölvur, sem taka við þessum bunkum og hafa milligöngu um að koma þeim áfram til stórtölvunnar og þaðan inn í DK-uppgjörið og inn í færslukerfi kreditkortafyrirtækj- anna. Þetta er svokallaður MACHS-búnaður, en um hann gildir það sama og um VAP-bún- aðinn, að hann er í eigu Visa International, en er leigður og þjónustaður af RÁS-þjónustunni, þótt daglegur rekstur sé í höndum RB. Pörun Höfuðhlutverk runuvinnsl- unnar, sem fer fram í RB að kvöldi klukkan 22:00 sex daga vikunnar, er að para saman færsl- ur í innsendum bunkum við heimildarfærslur sem þegar hafa borist og bóka þær færslur sem ekki hafa þegar verið bókaðar. Lit- ið er á uppsöfnunarfærslurnar í innsendum bunkum sem staðfest- ingu á heimildarbókun og þess- vegna getur þurft að bakfæra heimildarfærslur, þegar ekki berst nein staðfestingarfærsla innan níu daga frá viðkomandi söluað- ila. Ákveðið hefur verið að stytta þennan tíma úr níu dögum í þrjá fyrir innlendar færslur, en fimm daga fyrir erlendar. Uppgjör Einnig býr DK til innborganir til söluaðila vegna færslna í inn- sendum bunkum, en þeir fá upp- gert samdægurs og innlagt á reikninga sína að kvöldi, sem ku vera nánast einsdæmi í heimin- um. Þykir mörgum sjálfsagt að borga fyrir slíka þjónustu og losna að auki við tímafreka og kostnað- arsama talningu og umsýslu pen- inga og ýmislegt það sem þeim fylgir. Ljóst er þó að ekki eru allir söluaðilar á þeirri skoðun eins og dæmin sanna. Bókun Sjálf bókun færslnanna fer fram í Innlánakerfinu, en það er kerfið sem sér um bókun á við- skiptareikninga og hefur gert nán- ast frá stofnun RB árið 1973, en hét reyndar AH-kerfi þá (Ávísana og hlaupareikningskerfið). Einnig er úrvinnslna og afstemming færslna sem berast erlendis frá fyrirferðarmikil, en notkun Debet- korta erlendis er sívaxandi. Erfiðleikar síðustu mánaða Seinni hluta síðasta árs 1997 var RB nokkuð á milli tannanna á fólki, kaupmönnum og fjölmiðl- um vegna erfiðleika af ýmsu tagi, sem oft lýstu sér í vandamálum í heimildagjafakerfi DK. Ekki verð- ur farið ofan í saumana á þeim hér, en einungis minnt á að eins og fram kemur hér að framan þá er búnaðurinn sem myndar Debetkortakerfið fjölbreyttur; posar og kassakerfi, tengdir al- menna símakerfinu eða gagnanet- inu, heimildagjafatölvur og safn- MARS 1998 -11

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.