Tölvumál - 01.03.1998, Síða 14
TOLVUMAL
þetta efni. Ég vil hvetja menn til
að kynna sér þetta rit.
Þó að ég hafi hér aðeins drep-
ið á í hverju vandinn sé fólginn,
og á þá vinnu og fjármuni sem
þarf til að leysa hann, vil ég ein-
dregið hvetja alla þá sem fara með
yfirstjórn á upplýsinga- og tölvu-
tæknimálum, að þeir láti, hver í
sínu fyrirtæki, fara fram úttekt á
því hver sé staða þessara mála hjá
þeim nú, og í kjölfar þeirrar út-
tektar sjái þeir síðan um að sett
verði upp raunhæf tímasett áætl-
un um hvernig staðið verði að
lausn þessa vanda.
Ekki er ólíklegt að við slíka út-
tekt komi í sumurn tilfellum upp
spurningin um hvort ekki sé rétt
að koma upp nýju kerfi, í stað
þess gamla, og leggja frekar vinnu
í endurhönnun verk- og vinnu-
ferla en lagfæringar og endurbæt-
ur á gömlu kerfi. (A ensku:
Reengineering eða business
process redesign). Slík spurning á
fullan rétt á sér, en því aðeins ef
menn eru reiðubúnir að vanda vel
til endurhönnunar á verk- og
vinnuferlum, en varla ef nýju
kerfi er ætlað að verða nánast
spegilmynd af því eldra, því vel
unnin endurhönnun verk- og
vinnuferla ætti ávallt að vera
undanfari uppsetningar á nýjum
kerfum.
Ég vil enn og aftur vekja at-
hygli manna á því hversu mjög
rekstur fyrirtækja byggir orðið á
tölvukerfum, og hversu háð þau
eru því að þeirra tölvukerfi virki
nánast hnökralaust, en það er
ekki nóg að menn líti aðeins til
sinna eigin tölvukerfa, heldur er
einnig nauðsynlegt að gengið sé
úr skugga um að öll samskipti við
önnur tölvukerfi, jafnt innlend
sem erlend, séu og verði örugg, og
skili réttum færslum og niður-
stöðum þegar nota þarf ártalið
2000.
I hinni hröðu þróun alþjóð-
legra viðskipta, sem á mörgum
sviðum skiptir okkur Islendinga
meira máli en flesta aðra, verða
tölvukerfin sífellt mikilvægari, og
í ljósi þess hversu mjög alþjóðleg
viðskipti byggja á háþróaðri tölvu-
og fjarskiptatækni, verða íslensk
fyrirtæki að halda vöku sinni á
því sviði. Það getur skipti sköpum
fyrir þau að vel takist til með
lausn, ekki aðeins þessa ár 2000
vanda, heldur einnig að þau
fylgist vel með öllu sem á því
sviði er að gerast, því ef það er
ekki gert getur það verulega ógnað
þeirri stöðu sem þau hafa í dag.
Því er það, að vegna síaukins
mikilvægis sem upplýsinga- og
tölvutæknimálin hafa hjá hverju
fyrirtæki, verður yfirstjórn þeirra
að vera í höndum æðstu stjórn-
enda, þar sé stefnan mörkuð, og
þar liggi ábyrgðin, og því munu
vaxandi kröfur verða gerðar til
þeirra um nauðsynlega þekkingu
á þessum málum.
Það er kannski ekki viðeigandi
svona í lokin á þessu spjalli míni,
og mitt í allri umræðunni um
mikið góðæri, að minnast á að í
skýrslu frá hinu virta ameríska
fyrirtæki Gartner Group, segir að
eftir að árið 2000 er gengið í garð,
séu umtalsverðar líkur á efna-
hagslegri niðursveiflu, sem komi
til að rnestu leyti vegna þess hver-
su mjög vanti á að búið sé að
leysa ár 2000 vandann í tölvu-
kerfum.
Ég vil að endingu vona að ís-
lensk fyrirtæki verði á meðal þeir-
ra sem hvaða besta einkunn fá,
vegna þess að þau tóku á vandan-
um í tíma, og unnu skipulega að
lausn hans.
Jakob Sigurðsson er heiðurs-
félagi í Skýrslutæknifélagi
íslands.
Aðalfundur Skýrslutæknifélagsins
Aðaliundur Skýrslutækniiélagsins var haldinn 13.
iebrúar 1998 og var dagskrá með heiðbundnum
hætti. Stjórnar- og neindakjör iór iriðsamlega
iram að venju og urðu helstu breytingar þær að
úr stjórn ióru Haukur Oddsson, sem heiur verið
iormaður í þrjú ár, Lauiey Erla Jóhannesdóttir,
Douglas Brotchie og Gunnar Sigurðsson. í stjórn
Skýrslutækniiélags íslands 1998 eru:
Óskar B. Hauksson, Eimskipaiélagi íslands hi.,
iormaður
Eggert Ólaisson, Borgarverkiræðingsembættinu,
varaiormaður
Ingi Þór Hermannsson, EAN á íslandi, ritari
Steián Kjærnested, Skýrr hi., gjaldkeri
Heimir Sigurðsson, Olíuiélaginu hi., meðstjórnandi
Hulda Guðmundsdóttir, Tölvudeild Ríkisspítala,
meðstjórnandi
Magnús Sigurðsson, Landsteinum ehi., varamaður
Sigríður Olgeirsdóttir, Tæknival hi., varamaður
Gísli Ragnarsson, sem verið hehir ritstjóri Tölvu-
mála, baðst undan endurkjörí. Aðalíundur kaus nýjan
rítstjóra Tölvumála, Agnar Bjömsson, Skýrr hi.
Aðrar breytingar voru ekki gerðar á aðaliundi.
14- MARS 1998