Tölvumál - 01.03.1998, Síða 21
T 0
L V U
Á L
ar sem var opnaður 15. nóv. sl.
Sigurður Jónsson frá Arnarvatni,
sem var þá starfsmaður Baldurs,
tölvuskráði allt efnið í fyrstu út-
gáfunni.
Vinna við fyrstu útgáfu Tölvu-
orðasafnsins varð grunnur að því
sem á eftir kom. Það hafði alltaf
verið ætlun nefndarmanna að
gefa út stærra rit og hafa þá skil-
greiningar með. En okkur var ljóst
að til þess að geta gert það þyrfti
einhver að geta unnið við verkið
samfellt í nokkurn tíma. I lok árs
1984 var ég ekki í fastri vinnu og
tók mér það fyrir hendur að sann-
færa stjórnarmenn í Skýrslu-
tæknifélaginu um að þeir ættu að
útvega fjármagn til þess að hafa
mig í vinnu í tvö ár við að setja
saman nýja bók með skilgreining-
um. Það tókst að safna nægilegu
fé og ég vann við verkið ásamt
Kristínu Bjarnadóttur í tæp tvö ár.
Samkvæmt sérstökum samningi
við íslenska málnefnd fengum við
vinnuaðstöðu í íslenskri málstöð.
Hlutverk orðanefndarinnar var
eins og áður að finna heitin en rit-
stjórinn átti að þýða eða semja
skilgreiningar og koma bókinni
saman að öðru leyti. En það er
tvennt ólíkt að finna heppileg
heiti fyrir hugtök og að skilgreina
þau svo að vel fari. Fyrstu tilraun-
irnar við skilgreiningasmíðina
voru ekki mjög burðugar. I mörg-
um tilvikum þurfti að búa til nýtt
orðalag. Þarna var verið að fjalla
um tækni sem ekki hafði verið
skrifað mikið um á íslensku fyrr.
Ég byrjaði á því að skrifa uppkast
að þýðingu og svo kom Kristín og
spurði hvað þetta þýddi eigin-
lega. Þegar ég var búin að útskýra
það í venjulegu máli var stundum
auðveldara að orða þá hugsun
skýrar. Þegar ég var að vinna við
þriðju útgáfuna sá ég hversu vel
þessi aðferð okkar Kristínar hafði
reynst og hversu mikið Kristín
átti í skilgreiningunum. Þegar
staðlinum sleppti var leitað í ótal-
margar erlendar tölvuorðabækur.
Einnig var notað efni sem orða-
Sigrún Helgadóttir, nýkjörin
heiðursfélagi í Skýrslutækni-
félagi Islands. Frásögn Sigrún
sjálfrar í þessari grein lýsir
því best hvers vegna stjórn fé-
lagsins þótti ástæða til að
sæma hana þessum titli.
nefndinni barst frá
áhugasömum tölvunot-
endum og efni sem við
tíndum úr íslensku og er-
lendu kynningarefni.
Önnur útgáfa varð að
lokum 207 blaðsíðna bók
með um 2600 hugtökum,
um 3100 íslenskum heit-
um og nær 3400 enskum
heitum. Kristín Bjarna-
dóttir sá um alla tölvu-
skráningu og las prófark-
ir og Magnús Gíslason sá
um tölvuvinnslu eins og
áður.
Það var mikið átak að
ljúka annarri útgáfu,
bæði fyrir nefndina og
stjórn félagsins. Nefndin hélt þó
áfram að halda fundi. Afgreidd
voru erindi frá áhugasömum
tölvunotendum eins og áður og
við reyndum að fylgjast með því
efni sem kom frá Alþjóðlegu
staðlasamtökunum. Formaður
skrifaði einnig pistla í Tölvumál
til þess að kynna það sem nefnd-
in var að vinna við. Nefndar-
mönnum var ljóst að önnur bók
kæmi ekki út nema við gætum
ráðið ritstjóra. Stjórn Skýrslu-
tæknifélagsins skipaði fram-
kvæmdanefnd til þess að vinna
að málinu og voru í henni Heimir
Sigurðsson, Douglas A. Brotchie
og ég sjálf. Sumarið 1995 var svo
komið að framkvæmdanefndin
treysti sér til þess að hefjast
handa. Styrkur hafði þegar fengist
árið 1993 frá Ráðgjafanefnd um
upplýsinga- og tölvumál (RUT) til
þess að vinna að endurskoðun
Tölvuorðasafnsins. Auglýst var
eftir ritstjóra og stjórn félagsins
hóf fjársöfnun. Stefán Briem eðl-
isfræðingur var ráðinn ritstjóri og
hóf hann störf í lok ágúst 1995.
Og aftur var gerður samningur við
Islenska málnefnd um að ritstjór-
inn fengi vinnuaðstöðu í íslenskri
málstöð í Aragötu 9.
Það var mikið happ að fá Stef-
án Briern til þess að starfa með
nefndinni. Hann er í fyrsta lagi
einstaklega elskulegur og kippir
sér ekki upp við smámuni og
brosir þessu yndislega brosi á
hverju sem gengur. Þá hefur hann
óslökkvandi áhuga á vélrænum
þýðingum. Hann tók fljótlega til
við að beita vélrænum þýðingum
á skilgreiningar í staðlinum sem
við höfum alltaf haft til viðmið-
unar. Að sjálfsögðu þarf að um-
skrifa texta sem er þýddur á þann
hátt en þýðingar á helstu íðorðum
í skilgreiningum liggja fyrir og
þessi vinnubrögð spara tíma.
Stefán sá einnig um alla tölvu-
skráningu og tölvuvinnslu. Hann
vann m.ö.o. verk mitt, Kristínar
og Magnúsar Gíslasonar ef miðað
MARS 1998 - 21