Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Side 10

Tölvumál - 01.05.1999, Side 10
Landkönnuður 7/7 jbess að það blómstri einhvers konar tölvuvinna í skólum þá þurfi að vera einhver sem er ráðgjafi Ekki hafa allir kennarar sama viðhorf til starfsins og sá sem er frumkvöðull er óvenjulega nýjungagjarn svo á að þessi sigling eigi að vera skemmtileg. Honum frnnst að ferða- mennimir eigi að upplifa ævintýri á siglingunni. Honum tekst af og til að telja skipstjórann á að lána sér bát og fær stundum með sér einhvern úr áhöfninni til að bjóða ferðamönnunum í landkönnunar- leiðangur. Það finnast stundum athyglisverðir staðir, og hópur landkönnuðarins nær stundum athygli fjölmiðla heimsins fyrir bragðið. En það verður yfirleitt ekkert úr frekari landkönnun vegna þess að skip- stjórinn, áhöfnin og stór hluti ferðamann- anna líta ekki svo á að skipið sé land- könnunarskip. Fyrir flesta er aðalatriðið að halda áætlun og skila farþegunum af sér í næstu höfn. Áhöfnin lítur ekki á það sem sitt hlutverk að fara að æða með ærinni fyrir- höfn úr alfaraleið sem enginn veit hvar muni enda. Áhöfnin og flestir ferðamann- anna leggja mest upp úr örygginu. Þessar bátsferðir með landkönnuðinum stefna óneitanlega öryggi ferðamannanna í voða segja þeir. Hann leggur stundum í ferð- imar með tæki sem eru langt í frá tilbúin til notkunar. Þess vegna eru þeir frekar pirraðir yfir óvissuferðum landkönnuðar- ins og eru lítið fyrir að hrósa honum fyrir afrekin þó svo að þau veki í bland heims- athygli. Ymislegt í viðtali mínu við frumkvöðulinn virðist mér geta stutt það að þessi líking eigi við. Að nýta reynslu frumkvöðlanna Frumkvöðullinn á erfitt með að skilja áhugaleysi samkennara sinna sem hún upplifir ýmist sem tómlœti eða amasemi sem lýsir sér í nöldri. Tómlœtið kemur fram í áhugaleysi á því að láta svo li'tið að skoða það sem hún hefur unnið að með nemendum sínum og allur heimurinn getur þess vegna séð á Internetinu. Ekki hafa allir kennarar sama viðhorf til starfsins og sá sem er frumkvöðull er óvenjulega nýjungagjarn. Og óneitanlega leggur frumkvöðullinn stundum upp í ferðir sínar afmeira kappi en forsjá og stundum er auðvelt að skilja þá sem ekki eru tilbúnir aðfylgja. í viðtölunum kemur ekki fram að unnið hafi verið að þróun tölvunotkunar samkvæmt stefnu, þvert á móti virðist frumkvöðullinn fá stuðning skóla- stjórnenda til að fara sínar eigin leiðir og gera þær tilraunir sem hún er tilbúin til að leggja á sig, stundum með styrki í þróunarverkefni til stuðnings. Sömuleiðis virðast hugmyndir þær sem hún vinnur eftir vera alfarið hennar eigin en ekki unnar í neinu samstarfi við samkennarana. Frumkvöðullinn hefur velt fyrir sér hvemig eigi að vinna til að fá fleiri kennara til þess að taka þátt í tilraunum með upplýsingatækni í skólunum. ...ég held að til þess að það blómstri einhvers konar tölvuvinna í skólum þá þurfi að vera einhver sem er ráðgjafi, - ekki tæknilegur ráðgjafi [...] heldur sé ein- hver kennari sem þekkir þennan miðil þokkalega vel og hefur langa reynslu af kennslu, [...] sem geti t.d. sest niður með kennurunum og spjallað bara um það hvernig væri hægt að nota tölvur, [...] bara að leita eftir hugmyndum og hjálpa fólki síðan til að framkvæma hugmyndirnar. Ekki að stýra neinu, [...] en væri svona hvetjandi [...] og ég mundi sem sé gjarna vilja fara í slíkt starf. Það hefur líka vakið til umhugsunar urn hvernig þurfi að standa að hlutunum að fylgjast með áhugasömum frumkvöðlum vítt og breitt um landið sem hafa lagt sig fram á undanförnum árum en svo virðist sem ekki bætist nýjir kennarar í þann hóp. Þetta er alltaf sama fólkið, þetta eru alltaf sömu frumkvöðlarnir sem eru alltaf að vinna þetta í aukavinnu af hugsjón. Þeir fara að brenna út. ...ég hef alltaf þurft að bæta þessu ofan á aðra vinnu. Líklega eru bæði frumkvöðlamir og skólastjóramir komnir með nógu mikla reynslu til að geta farið að draga af henni lærdóma. Saga frumkvöðuls á íslandi í fræðilegu samhengi Nú er forvitnilegt að bera þessa sögu saman við erlendar rannsóknir á þessu sviði en um þessar mundir er mjög mikið skrifað um niðurstöður rannsókna á sviði 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.