Tölvumál - 01.05.1999, Síða 12
Landkönnuður
huga að tækjum og hugbúnaði en smám
saman er sjónum beint að hvernig nýta
megi tæknina í þágu námsmarkmiða. A
þriðja þrepi er tæknin orðin eðlilegur hluti
af starfi stofnunarinnar og að því skal
stefnt.
Til að þoka þessari þróun áleiðis verður
að greina stöðu kennara og átta sig á að
þeir þurfa stuðning til og að nauðsynlegt
er að skapa umhverfi sem styður þá með
ráðgjöf. Ráðgjafmn þarf að vinna að því
að skapa tengsl milli námskrármarkmiða
og viðeigandi tölvutækni og ganga jafn-
framt út frá persónulegri reynslu kennar-
ans. Sú aðferð sem best hefur reynst eru
óformlegar samræður sem felast í því að
ráðgjafinn hlustar og gefur góð ráð
(Davis. 1997. 256).
Ef rannsókn mín er mátuð við þessar
hugmyndir er greinilegt að frumkvöðull-
inn íslenski hefur tekið þátt í fyrsta þrepi
sem frumkvöðull en er nú að færa sig yfir
á annað þrep þar sem hún leggur áherslu á
hlutverk stjórnenda og ráðgjafa og hefur
hug á að nýta reynslu sína sem frum-
kvöðull í hlutverk ráðgjafa. Hugmyndir
hennar um hlutverk ráðgjafa sýnist mér
fara alveg saman við þær hugmyndir sem
Nikis Davis lýsir.
Ef áhöfnin á skólaskipinu hefur orðið
sammála um hvert á að að setja stefnuna
og skipstjórinn tekur það hlutverk sitt
alvarlega að halda kúrsi og hefur auk þess
ákveðið að ráða landkönnuðinn til að vera
leiðsögumaður um borð þá er von til þess
að ferðin geti orðið bæði skemmtileg og
lærdómsrík og að ef til vill verði ný lönd
numin.
Þuríður Jóna Jóhannsdóttir
Heimildir
Cuban, Larry. 1993. Computers Meet Classroom.
Classroom Wins. Teachers College Record,
95(2): 185-210
Davis, Niki. 1997. Strategies for staff and institution-
al development for IT in education. An integrated
approach. Using Information Teclmology
EJfeclively in Teaching end Learning. 255-268
I krafti upplýsinga. Tillögur mennlamálaráðuneytis-
ins um menntun, menningu og upplýsingatækni
1996-1999. 1996.
Saye, John. 1997. Technology And Educational
Empowerment: Students 'Perspectives.
Educational Teclinology Research and
Developnient 45 (2):5-25
Þuríður Jóna Jóhannsdóttir. 1998. Landkönnuður um
borð í skólaskipi. Rannsókn ú sögu frumkvöðuls í
notkun upplýsingatœkni íframhaldsskólum á
Islandi. Verkefni í aðferðafræði rannsókna -
eigindlegar rannsóknir, í Kennaraháskóla íslands
á haustmisseri 1998. Kennari Guðrún
Kristinsdóttir, lektor. (ekki útgefin)
12
Tölvumál