Tölvumál - 01.05.1999, Page 15
2000 vandinn
2000 villur í íslenskum hugbúnaði
Ágúst Úlfar Sigurðsson
Mikið hefur verið rætt og ritað um
ártalið 2000, hvað getur gerst í
tölvukerfum heimsins og
hverjar afleiðingamar kunna að verða. I
stað þess að bæta við enn einum lang-
hundinum finnst mér nú korninn tími til að
safna saman staðreyndum um það hvaða
forritsvillur vegna ártalsins 2000 hafa
raunverulega fundist í íslenskum forritum.
Ég hef tekið saman meðfylgjandi lista
yfir tegundir af villum sem ég hef fundið í
forritum og lagfært á mínum vinnustað
við yfirferð vegna ársins 2000.
Villuflokkunum hef ég gefið heiti eða
gælunöfn og læt svo örstutta lýsingu
fylgja. Talan í fjöldadálkinum mun sýna
hversu margir aðilar hafa tilkynnt urn
hverja einstaka villutegund.
Ef þið, lesendurTölvumála, sendið mér
lýsingu á forritavillum vegna ársins 2000,
sem þið fmnið sjálf eða sjáið hjá sam-
starfsfólki ykkar, þá mun ég flokka þær og
bæta inn í töfluna. Taflan verður síðan
birt í hverju hefti Tölvumála fram til
ársins 2000, öllum lesendum til fróðleiks.
Athugið að ég heiti fullri þagmælsku '
um það hverjir tilkynna um villur og í
hvaða kerfum þær fundust. Því munu
upplýsingar sem þið sendið mér um þetta
hvorki skaða ykkur, vinnuveitendur ykkar
né umbjóðendur á neinn hátt.
Tilkynningamar má senda á tölvupósti
til agust.ulfar.sigurdsson@sedlabanki.is
eða til ritstjóra Tölvumála.
Ágúst Úlfar Sigurðsson
er deildarstjóri við hugbúnaðargerð
Seðlabanka Islands og stjórnar
undirbúningi þar vegna ártalsins 2000
Heiti villu Örstutt lýsing á villunni Fjöldi
N ítj ánhundruðog Fjögurra stafa ártal var myndað með því að skeyta 19 framan við 2 stafa ártal 1
Dagsprófun Prófun á (innsleginni) dagsetningu hafnaði 29. feb.2000 1
Dagarímánuði Fomt sem skilar dagafjölda mánaðar taldi 28 daga í febrúar árið 2000 1
Tímabil Forrit sem reiknar dagafjölda milli tveggja dagsetninga hljóp yfir 29. febrúar 2000 1
Gærdagurinn Forrit sem fær senda dagsetningu og skilar næsta degi á undan vann ekki rétt á 1.1.2000 1
Kennitöluprófun Forrit sem vartöluprófar (innslegna) kennitölu leyfði 8 og 9 en ekki 0 í aftasta sæti hennar 1
Tölvumál
15