Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Side 22

Tölvumál - 01.05.1999, Side 22
Skólasöfn Það er verulegt áhyggjuefni hve margir skólar fá enga skipulega þjónustu hvorki frá skólasafni eða almennings- bókasafni en jbó virðast framhaldsskólarnir mun betur settir en grunnskólarnir Tölvukerfi Grunnsk. Frh.sk. 96-97 97-98 Fengur 28 1 29 Embla 9 3 12 Micromark 7 6 13 Metrabók 6 18 24 Bókasafnskorn 4 - 4 FilemakerPro 3 - 3 Fróði 1 - 1 Bókver 1 - 1 Bókvís 1 - 1 Bókaormurinn 1 - 1 Clariswork 1 - 1 Excel 1 - 1 Ordo 1 - 1 Hannað f. skóla 1 - 1 Já 2 - 2 Alls 67 28 95 í Ársskýrslunum kemur ekki fram tölvu- eign skólasafna, tenging við staðarnet eða Internet en vísbendingar um það má finna í tveim könnunum sem gerðar voru 1996- 97. Jóhann Ásmundsson gerði könnun um tölvur í grunnskólum í tengslum við end- urskoðun námskrárinnar og þar kom fram að rúmlega 60% grunnskóla væru með tölvuver og um 45% með staðarnet. Um 80% skóla áttu margmiðlunartölvur og um 80-90% voru með tengingu við Internetið í tölvuverum, kennslustofum eða á kenn- arastofum. Því miður var ekki spurt um tölvur eða tengingar á skólasöfnunum sérstaklega, en það hefði verið ákaflega fróðlegt að sjá það í þessum samhengi. í könnun sem Þórdís T. Þórarinsdóttir gerði 1996 um bókasöfn í framhalds- skólum, kom fram að á höfuðborgarsvæð- inu höfðu öll söfnin tölvuvæðst og hafið tölvuskráningu safnkostsins en á lands- byggðinni höfðu um 64% safnanna hafið tölvuskráningu. Þessi tala hefur væntan- lega hækkað nokkuð og einhver söfn lokið við að skrá safnkost sinn nú. I könnun hennar kom einnig fram að milli 80 og 90% bókasafnanna áttu margmiðlunartölvur og gera má ráð fyrir að í dag séu öll þessi söfn með slíkan búnað. 40% safnanna á höfuðborgar- svæðinu voru með Internetteningu 1996 en 60% á landsbyggðinni. Þessar tölur hafa væntalega einnig breyst og mín til- finning er sú að flest öll söfnin búi nú að Internettengingum. Þá var einnig kannað hvort bókasöfn framhaldsskólanna væru tengd við staðarnet skóla sem höfðu slíkt og voru um 60% þeirra tengd við staðar- net. Það er einnig gríðarlega mikilvægur punktur því nauðsynlegt er að veita aðgang að skrám bókasafnsins í öllum nettengdum tölvum innan hvers skóla. Tölurnar eru frá sitt hvoru árinu og gefa okkur einungis vísbendingu um hvernig hlutirnir líta út. En í stuttu máli má lesa má úr þeim að: - stór hluti grunnskóla og nokkiir framhaldsskólar hafa ekkert eða óvirkt skólasafn - einungis hluti skólasafna hefur skráð safnkost sinn í tölvukerfi - skólasöfn eru ekki endilega tengd staðameti eða interneti Hvað þarf að gera? Ef ég reyni að draga saman þau atriði sem mér finnst að mætti bæta, þá kalla ég á einhverskonar praktíska stefnumörkun af hálfu opinberra aðila, menntamálaráðu- neytis og sveitarfélaga. Það er verulegt áhyggjuefni hve margir skólar fá enga skipulega þjónustu hvorki frá skólasafni eða almenningsbókasafni en þó virðast framhaldsskólarnir mun betur settir en grunnskólarnir. Viðmið - Staðlar Eg tel nauðsynlegt að sett verði einhvers konar viðmið eða staðlar fyrir skólasöfn. I ritinu íkrafti upplýsinga er fjallað um skólasöfn sem upplýsingamiðstöðvar og síðan segir: „Gera þarf áætlun um hvernig hægt verði að byggja upp skólasöfn þannig að þau geti sinnt þessu hlutverki sínu.“ (s. 18) Vinna við þessa áætlun hefur enn ekki farið af stað en ég álít að það mundi auð- velda okkur starfið mikið að hafa slíka áætlun. Þá vildi ég gjarnan sjá einhvers konar viðmiðunartölur um rekstur safn- anna, safnkost, starfsfólk, húsnæði, tölvubúnað o.fl. Aðrar þjóðir hafa sett sér slík viðmið og hefur það þótt gefast vel og ég er þess fullviss að hefði þetta verið gert hér á landi fyrir 15-20 árum, þá væri land- slagið allt annað í dag. Einungis í Reykjavík hefur verið markviss upp- bygging og stuðningur við skólasöfnin á 22 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.