Tölvumál - 01.05.1999, Page 28
Að tölvuvaeða grunnskóla
Að tölvuvæða grunnskóla
Birgir Edwald
Starfsaðferðir þeirra
sem við skólann
starfa hafa lítið breyst
á undanförnum árum.
Því er ekki að leyna
að tölvur hafa haldið
innreið sína í
grunnskólana en enn
sem komið er hafa
þær að stærstum
hluta verið notaðar til
að kenna á þessa
nýju tækni
Þegar bornar eru saman þær breyt-
ingar sem átt hafa sér stað undan-
farin ár á vinnuaðferðum í
fyrirtækjum og stofnunum annars vegar
og innan grunnskólans hins vegar kemur í
ljós að mikill munur er á. Það er í raun
sama hvert litið er, alls staðar hafa átt sér
stað róttækar breytingar á vinnuaðstöðu
og vinnuferlum mikils hluta starfsmanna.
Starfsfólk banka, tryggingafélaga, sölu-
menn framleiðslu- og innflutningsfyrir-
tækja, afgreiðslumenn á bensínstöðvum,
lagerstarfsmenn svo og auðvitað allir þeir
sem eitthvað hafa með fjármálastjórn og
bókhalda að gera hafa tekið í notkun nýja
tækni við störf sín. Sú nýja tækni hefur
gert þeim kleift að auka afköst og stækka
verksvið sitt umfram það sem áður var
mögulegt. Sá sem tekur á móti pöntunum
viðskiptavina sér nú einnig um að skipu-
leggja framleiðsluferli, afgreiða pantanir,
uppfæra stöðu viðskiptavina í bókhaldi
fyrirtækisins og svo mætti lengi telja.
Innan grunnskólans er aðra sögu að
segja. Starfsaðferðir þeirra sem við
skólann starfa hafa lítið breyst á undan-
förnum árum. Því er ekki að leyna að
tölvur hafa haldið innreið sína í grunn-
skólana en enn sem komið er hafa þær að
stærstum hluta verið notaðar til að kenna á
þessa nýju tækni. Þá hafa tölvur einnig
verið notaðar til að keyra kennsluforrit
sem styðja við það starf sem fer frarn í
bekkjarstofunni. Endurskoðun á öllum
verkþáttum og þeim starfsaðferðum sem
beitt er innan grunnskólans hefur hins
vegar ekki farið fram í neinni líkingu við
það sem gerst hefur í fyrirtækjum og
stofnunum annars staðar í þjóðfélaginu.
Því er óhætt að segja að reynsla fólks á
almennum vinnumarkaði af upplýsinga-
og tölvutækni er í flestum tilfellum meiri
en sú sem kennarar og nemendur hafa
öðlast.
Lagerstarfsmaður hjá íslensku fram-
leiðslufyrirtæki eða sölumaður hjá meðal-
stórri heildsölu hefur orðið fyrir meira
áreiti af upplýsingatæknibyltingunni en
framsækinn, bókmenntasinnaður íslensku-
kennari í íslenskum grunnskóla. í ljósi
þess að það er skylda grunnskólans að búa
nemendur undir nám og starf í því
þjóðfélagi sem verða mun við lýði eftir 10
til 20 ár er það afar óheppilegt ef starfs-
aðferðir þær sem beitt er innan grunn-
skólans og nemendunr eru tamdar eru
langt á eftir því sem almennt tíðkast.
Erfitt er að fullyrða hvers vegna þetta er
svona en þó má gera ráð fyrir að sá hvati
sem liggur að baki slíku breytingastarfi
hafi þar talsverð áhrif. í fyrirtækjum er
það augljóst hverjum stjórnanda að vilji
hann tryggja hagkvæmni í rekstri og auka
líkur á góðri afkomu er fyrirtækinu
nauðsynlegt að leggja verulegt fé í
upplýsingatækni. Sá sem ekki bregst við
þeirri þróun sem á sér stað í samfélaginu
verður undir í samkeppni og á erfitt með
að standast keppinautum sínum snúning.
Það krefst hins vegar mikillar framsýni að
taka tillit til bættrar samkeppnisaðstöðu
þjóðarinnar og mikilvægi meiri færni
þegnanna eftir 20 ár þegar fjárhagsáætlun
grunnskóla til næstu 12 mánaða er gerð og
vart á færi nema framsýnustu ráðamanna.
Þar við bætist að það starf sem fram fer
innan grunnskólans er afar flókið, miklu
flóknara en flestir gera sér grein fyrir við
fyrstu sýn og í raun flóknara en það starf
sem fram fer í hefðbundnu innflutnings-,
sölu-, eða framleiðslufyrirtæki.
Kerfis- eða tölvunarfræðingur sem fær
það verkefni að tölvuvæða fyrirtæki hefst
gjarnan handa með því að skoða og skil-
greina þá starfsferla sem fram fara innan
fyrirtækisins. í framhaldi af því er skoðað
hvaða starfsferla má bæta með tölvu-
væðingu og loks hvaða búnað og þekk-
ingu þarf. Þegar hafist er handa við að
breyta hefðbundnum íslenskum grunn-
skóla í tæknivæddan skóla sem er í stakk
búinn til að undirbúa nemendur sína undir
þátttöku í upplýsingasamfélaginu þarf að
huga að því hvaða meginþættir það eru í
skólastarfinu sem verða fyrir áhrifum af
slíkri breytingu.
Innan skólans leynast fjölmargir starfs-
ferlar sem eru lítt eða ekki skráðir. Flestir
28
Tölvumál