Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Qupperneq 37

Tölvumál - 01.05.1999, Qupperneq 37
Hjallskólavefurinn Hjallaskólavefurinn hjallaskoli.kopavogur.is Sigurður Davíðsson / IHjallaskóla, líkt og í mörgum öðrum skólum, hefur lengi ríkt áhugi á upp- lýsingatækni og möguleikum hennar í skólastarfi. Einstakir kennarar eða kenn- arahópar hafa tekið þátt í þróunarstarfi hér innanlands eða samstarfsverkefnum á vegum Sókratesáætlunar Evrópusam- bandsins þar sem tölvu- og upplýsinga- tækni kom talsvert við sögu. Heimasíðu fyrir skólann bar því oft á góma í sam- ræðum manna á milli en þar sem fjárntagn til slíkra hluta er af skornum skammti í grunnskólum landsins varð minna úr framkvæmd hugmynda en hugur stóð til. Þegar Þróunarsjóður grunnskóla auglýsti eftir umsóknum um styrki til að efla sam- skipti heimila og skóla eða til að efla upplýsingatækni í skólum sáurn við okkur leik á borði og sendum inn umsókn sem hlaut náð fyrir augum sjóðsins. í umsókn Hjallaskóla sagði varðandi markmið verkefnisins: Meginmarkmið verkefnisins er að efla samstarf heimila og skóla með aðstoð Internetsins m.a. með því að: - koma á fót póstlista fyrir foreldra og starfsfólk Hjallaskóla þar sem fram fer gagnvirk umræða um skóla- og uppeld- ismál. - koma skólanámskrá skólans á vefinn (árganganámskrám, Skólavísi, kennara- handbók). - gefa út blað, Vefpóstinn, á vefnum. - annast birtingu upplýsinga frá foreldrafélagi og foreldraráði. - gera kannanir gegnum Internetið. - birta upplýsingar urn þróunarverkefni, bæði gömul og ný. - birta ýmsar tilkynningar urn það sem fyrirhugað er í skólastarfinu jafnóðum og þær berast. - birta síður sem nemendur gera í skólanum. - auðvelda foreldrum að leita sér upplýsinga urn uppeldis- og skólamál á vefnum. Umsjón með verkinu hafa Árni Jónsson, Hulda I. Rafnarsdóttir og Vigfús Hallgrímsson kennarar við Hjallaskóla og Sigurður Davíðsson, aðstoðarskólastjóri. Þau hafa jafnframt séð um alla vinnu við vefinn; hannað hann, tekið ljósmyndir, safnað efni, skrifað greinar o.fl. Verkið er unnið í FrontPage sem sett hefur verið upp á nokkrum tölvum á neti skólans þannig að margir geta ofið í einu og einfalt er að uppfæra. Vefurinn er síðan vistaður á FrontPage miðlara Skímu. Vinna við vefmn hófst strax s.l. sumar og var þá grunnur lagður að honum. Afar mikilvægt er að vel takist til með skipulag vefseturs þannig að vefarar velkist ekki í vafa hvar hin ýmsu skjöl eiga heima en ekki síður vegna þess að notendum þarf samstundis að verða ljóst hvar upplýsingar er að finna. Margir notendur hafa ekki mikla reynslu af því að flakka um vefmn og því þarf skiplag vefs sem ætlaður er tjölbreytilegum hópi notenda að vera skýr og einfalt að rata um hann. Haustið fór í að koma inn ýmsu af því efni sem var þegar til og fínpússa fyrir opnun. Vefurinn var síðan formlega kynntur á opnum degi í skólanum þann 16. nóvember s.l. í tilefni af 15 ára afmæli skólans. Bæjarstjórinn í Kópavogi, Sigurður Geirdal, opnaði vefinn við hátíðlega athöfn á sal að viðstöddum elstu nemendum skólans. Skipta má vefnum gróflega í nokkra hluta. Fyrst ber að nefna síður er innihalda ýinsar almennar upplýsingar um Hjalla- skóla. Þá eru síður þar sem athyglinni er beint að nemendum annars vegar en hinsvegar kennurum og síðan foreldrum. Einnig má nefna síður þar sem þróunar- verkefni sem tengjast Hjallaskóla eru kynnt svo og Vefpóstinn, frétta- og upp- lýsingamiðil skólans. Þá eru stór verkefni á heimasíðu Hjallaskóla eða tengjast henni beint (Nýbúinn-Migratory Children through the Internet og För til fortíðar- Travelling to Mysteryland) og eru sérstak- Tölvumál 37

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.