Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 39
Tölvusýningar
Af CeBIT'99
Einar H. Reynis
Líkt og gjarnan áður
er fjarskiptahluti
sýningarinnar mest
áberandi enda
tengjast símar og
tölvur æ traustari
böndum
Eftir þrjá daga hér er ég búinn að fá
nóg, sagði einn ferðafélaga minna,
„en samt verð ég alveg friðlaus
þegar nær dregur næstu sýningu". Þetta er
sjónarmið sem vel á við og hann er
áreiðanlega ekki einn um það. Er CeBIT
vanabindandi? Það er allavega borðlagt
að þarna er hægt að sjá ein tvö til þrjú ár
fram í tímann, sem telst ágætt eins og
breytingar eru örar.
Og enn stækkar þessi stærsta tölvusýn-
ing veraldarinnar og tölvufólk frá öllum
heimsins hornum flykkist til Hannover til
að skoða það nýjasta á þessu sístækkandi
sviði. Líkt og gjarnan áður er fjarskiptahluti
sýningarinnar mest áberandi enda tengjast
símar og tölvur æ traustari böndum.
Það sem var fyrirsagnarefni fyrir ári eða
tveimur árum síðan er nú svo sjálfsagt að
því er ekki gefinn sérstakur gaumur.
Dæmi urn þetta er DVD sem erfitt var að
fmna í eina tíð en var núna um allt.
Reyndar er ferill DVD til þessa forvitni-
legur. Samkvæmt fréttum á CeBIT höfðu
einungis 150.000 sjálfstæðir DVD spilarar
fyrir kvikmyndir selst í allri Evrópu á
árinu 1998 en slík drif fylgja hins vegar í
æ ríkari mæli með tölvum og tæknin sem
slík búin að skjóta traustum rótum. Sem
hlutfall af tölvum í notkun í Evrópu eru
tölvur búnar DVD enn afar fáar eða innan
við 2%. Það bólar ekkert enn á öðru efni á
DVD diskum en kvikmyndum þó líklegt
sé að það breytist einn daginn þegar
margmiðlunarefni sprengir utan af sér CD
diskana. Svo varpað sé fram einni spá þá
er áætlað að á árinu 2002 verði helmingur
tölva í Evrópu búnar DVD.
Af öðrum tölum má nefna að á CeBIT
var kynnt, með fyrirvara, sala á tölvurn á
árinu 1998. Alls var salan rétt tæpar 90
milljón tölvur og hafði aukist um 12,1%
frá 1997. Compaq trónar efst með 13,3
milljónir og hafði 14,8% markaðshlut-
deild. Þar á eftir koma IBM, Dell, HP og
Packard Bell NEC en þessir fimm voru
með rétt innan við helming af seldum
tölvum.
Mikið hefur verið bollalagt hvernig PC
tölvan muni þróast. IBM slær úr og í hvað
þróun snertir og á einum punkti hafði
fyrirtækið spáð að helmingur tækja sem
noti Internetið verði einhverskonar
smátölvur, eða tæki til sérstakra nota, en
ekki PC tölvur eins og nú er.
Fjarskipti mest áberandi
Þýsk fyrirtæki sem keppa í fjarskiptum
höfðu mikið umleikis og Deutsche
Telekom lét sér ekki nægja minna en
heilan skála undir sitt þar sem öll þjónusta
var sýnd og kynningar í gangi annaðhvort
á vegum fyrirtækisins eða samstarfsaðila.
Samkeppnin er mikil og gríðarstórir
borðar prýddu skála Deutsche Telekom.
Ef borið er niður á einstök atriði í
fjarskiptunum var GSM stjarnan. Nýjar
kynslóðir símtækja eru að koma fram sem
eru undir 100 g. á þyngd, með mjög
endingargóðum rafhlöðum og hlaðnir
möguleikum. Símar sem ráða við
svokallað Dual-band voru áberandi en þá
geta tækin tengst hvort sem er 900 eða
1800 MHz kerfi þar sem notandinn er
staddur. Ericsson sýndi GSM síma sem
getur tengst 900 MHz kerfum í Evrópu
eða 1900 MHz afbrigði GSM sem notað
er í Bandaríkjunum. GSM er ekki lengur
einskorðað við símtækin eins og þau
þekkjast í dag því Siemens var að sýna
síma sem eru GSM en að útliti eins og
borðsímar. Ennfremur mátti sjá svokölluð
„Fleet Management“ kerfi sem nota SMS
skeyti til að sjá staðsetningu farartækja og
senda tilkynningar til og frá þeim.
18.-24.3.1999
HANN0YER
Tölvumál
39