Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 40

Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 40
Tölvusýningar Þarna gaf einnig að líta fyrstu eintök af næstu kynslóð GSM tækja sem styðja svokallað WAP eða Wireless Access Protocol Þó svo mikið sé um að vera á sviði GSM fengisí því síagur milli Symbian EPOC og Windows CE sem stýrikerfi á minnstu tölvurnar og símana Þarna gaf einnig að líta fyrstu eintök af næstu kynslóð GSM tækja sem styðja svokallað WAP eða Wireless Access Protocol en með þannig símum má skoða texta af Internetinu á skjá símtækjanna en slíkt kallar ekki á mikla bandbreidd og því þokkalega meðfærilegt innan núverandi tækni. Nokkrir framleiðendur sýndu frumgerðir WAP síma á básum sínum, til dæmis var Ericsson með frumgerð tækis, R380, sem hefur til þess að gera stóran grafískan skjá með valmyndum. Nokia var að kynna 7110 síma sinn sem er með WAP eiginleikum og ÍBM tilkynnti að boðið yrði upp á aðgang að Lotus Notes með WAP símum. Motorola tilkynnti að á næsta ári yrðu allir nýir GSM símar þeiixa búnir WAP. Deutsche Telekom hefur tilkynnt að í haust fari fyrirtækið að bjóða WAP og á CeBIT var kynning á möguleikum símans en talsverður hópur fylgdist með þegar sýnt var hvernig mátti fletta upp tímatöflum lesta og athuga hvaða veitingahús eru á því svæði sem símnotandinn var staddur á. Það verður athyglisvert að sjá hvernig þetta þróast. Skipt í næsta gír Þar sem núverandi gagnaflutningshraði í GSM er of lágur fyrir tlutning á grafísku efni, svo sem heimasíðum, var verið að kynna næstu kynslóðir en gróft séð eru ein þrjú stig framundan; GPRS eða General Packet Radio Service sem er pakkaskiptur flutningur sem til dæmis í tilfelli Deutsche Telekom mun í fyrstu ráða við 50 kbit/sek. og síðan 100 kbit/sek. og svo HSCSD eða High Speed Circuit Switched Data en þá eru rásir sameinaðar til að margfalda flutningshraða á bilinu 9,6 til 64 18.-24.3.1999 HANNOVER kbitar/sek. og síðan þegar lengra er litið kemur þriðja kynslóðin, 3G, sem mun ráða við 2 Megabit/sek. í hraða en eins og lesendum er ef til vill kunnugt hefur verið erfiðleikum háð að ná samkomulagi um einn alheims-staðal fyrir 3G. Ljós punktur í þessari baráttu var að á meðan að sýningin stóð tilkynntu Ericsson og Qualcomm, sem hafa átt í miklum deilum vegna 3G, að fyrirtækin hafi náð sam- komulagi um afnot af uppfmningum hvors annars. Trúlega verður rnikið um að vera á CeBIT 2000 á sviði GSM gagnaflutnings. Bitist um notendur Þó svo mikið sé um að vera á sviði GSM tengist því slagur milli Symbian EPOC og Windows CE sem stýrikerfi á minnstu tölvurnar og símana. Symbian hefur það framyfir CE að vera léttara á fóðrum fyrir rafhlöður, en Microsoft er ekki af baki dottið frekar en fyrri daginn, og segist vera með á sínum snærum mikinn fjölda aðila sem eru að þróa hug- búnað til að keyra á CE. Nokia, Ericsson og Motorola eru í samstarfí um að nota Symbian EPOC á sínum símum en R380 frá Ericsson notar það stýrikerfi. Þetta verður barátta og við spyrjum að leiks- lokum. Hugbúnaður til notkunar á smátölvum á borð við Palm Pilot var til sýnis en þá má samhæfa símaskrá í tækinu við símaskrá í GSM símanum, senda og lesa ST^IS skeyti og með viðbótarhugbúnaði fara a; heimasíður og vinna með tölvupóst. Einn sænskur hugbúnaðarframleiðandi sýndi lausn sem er mótald í hugbúnaði. Þá nægir að hafa rétta gerð af snúru til að tengja við símann en ekki þarf sérstakt kort fyrir viðkomandi tæki og því í orði kveðnu auðvelt að skipta urn síma eftir þörfum. Hugbúnaðurinn leyfði meðhöndlun á SMS og tölvupósti ásamt fleiru. Þessi aðili mun bjóða hugbúnaðinn bæði á Symbian EPOC og CE. Eins og sakir standa er annars gjarnan miðað við að innrauða tengið IrDA sé notað til að samtengja minnstu tölvurnar og GSM en trúlega mun 2,4 GHz tæknin Bluetooth taka við þegar fram líða stundir því símtækið gæti verið í vasa eða tösku meðan tengst er um símann. Bluetooth sást hvergi á CeBIT nema í formi nokk- 40 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.