Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Side 41

Tölvumál - 01.05.1999, Side 41
Tölvusýningar Núna hefur tengis- taðallinn USB (Universal Serial Bus) fyrir jaðarbúnað tekið flugið svo um munar eftir að hafa beðið færis í langan tíma urra lítilla skilta, sem er merkilegt því 220 aðilar standa að tækninni. Nýir tengistaðlar að taka við Núna hefur tengistaðallinn USB (Universal Serial Bus) fyrir jaðarbúnað tekið flugið svo um munar eftir að hafa beðið færis í iangan tíma og er það því að þakka að stuðningur er við tengilinn í Windows 98 og Apple iMac er eingöngu með USB tenglum í stað raðtengla og SCSI eins og áður var. USB leyfir 12 megabit/sek. hraða í gagnaflutningi, raðtengja má margvíslegan búnað saman og óþarfi að drepa á tækjum áður en þau eru samtengd fyrir utan það að stillingar eru alveg í lágmarki. Ennfremur getur tölvan lagt til allt að 500 mA í straum til að knýja viðtengdan búnað og þarf hann því ekki eigin aflgjafa. Ekki er verra að samtengja má allt að 127 tæki á eina braut. Allt þetta ætti að gera að verkum að tæknin verði notendavæn og streyma tækin á markað. Nýir skjáir voru til sýnis með USB tenglum, auglýstur var USB smartkortalesari, skanni búinn USB, Zip- drif og allskonarUSB fjarskiptabúnaður til sýnis og jafnvel stafrænar myndavélar búnar tækninni. Það skyldi þó ekki vera að dagar hins ævaforna RS-232 tengils séu taldir og USB taka við? í samhengi við USB ætti einnig að hafa vakandi auga með annarri brautartækni, ennþá hraðvirkari, sem kallast ýmist FireWire eða IEEE 1394. Fræðilega getur 1394 náð nokkurra Gígabita/sek. hraða og það er ekki að undra að þeir sem framleiða stafrænar videovélar líti tæknina liýru auga þó þær láti sér „bara“ nægja 100 til 400 Mbit/sek. hraða. Bæði væri þá hægt að tengja videovél milliliðalaust við tölvu til vinnslu á myndefni og samtengja videovélar beint. Enn sem komið er ber ekkert á tækninni því hún er fremur dýr en þannig er það gjaman með allt nýtt. Flatt upp á mig Líkt og í fyrra voru flatir tölvuskjáir áberandi hjá sýnendum og hjá sumum eingöngu notaðir en dagar gömlu skjáanna eru þó ekki taldir, öðru nær, því bæði eru notendur að færa sig yfir í stærri mynd- lainpaskjái og einnig er fyrirferðin að minnka þó myndflöturinn sé að stækka. 18.-24.3.1999 HANNOVER Myndlampaskjáir eru ennfremur ódýrari en þeir flötu og getur munað talsverðu. Talið er að eldri tæknin muni verða alls- ráðandi næstu sjö ár en núna er mest fjölgun í 19 tommu skjám. Gamla aðferðin við að nota glærur á fyrirlestrum er liðin tíð og tölvur og skjá- varpar hafa tekið við. Fyrstu skjávarpamir voru erfiðir í notkun. Þeir voru dýrir, þungir og háværir og kröfðust þess að myrkur væri í sýningarsalnum. Núna em skjávaipar mun meðfærilegri og léttari og tölva og varpi þurfa samanlagt ekki að vera meira en fjögur kíló og því auðvelt að ferðast með hvort tveggja. Salan vex að sama skapi og jókst um 123% milli 1997 og 1998. Upplausnin er verulega góð og varparnir búnir ýmsurn möguleikum til margmiðlunar. Panasonic var að kynna varpa sem hefur möguleika á að birta efni beint frá PCMCIA korti og því óþarfí að tengja tölvu við varpann ef halda á fyrir- lestur. Bless, filmur Núna er kominn mikill skriður á stafræna ljósmyndun eins og úrval véla á CeBIT bar með sér. Myndgæði eru meiri, auð- veldara að tengja, betri geymslumiðlar, endingarbetri rafhlöður, betri verð og upplausnin er að nálgast það sem filmur skila. Þó svo enn vanti upp á að stafrænar myndavélar slái venjulegum filmuvélum við er staðalbúnaður núna mun meiri en áður og þar að auki býr stafræna tæknin yfir möguleikum sem venjulegar geta ekki með neinu móti keppt við, svo sem að skila af sér mynd sem er í raun tilbúin heimasíða og taka upp hljóð. Það sem þó gæti riðið baggamuninn á endanum er sá Tölvumál 41

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.