Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Page 42

Tölvumál - 01.05.1999, Page 42
Tölvusýningar Þessi þróun, ásamt auðveldari tengingum vélanna við annan búnað, gæti þýtt að fyrr en vari muni hefðbundin myndafaka með filmum verða liðin tíð en það er í samræmi við annað, að stafræn tækni yfirtaki hlutverk hliðrænnar eiginleiki vélanna að geta í sömu töku tekið nokkrar myndir þar sem sumar eru undir- eða yfirlýstar, til að tryggja að ein sé alveg eins og ljósmyndarinn óskar sér. Það kemur ekki á óvart að Kodak keyrir á þessa nýju tækni af fullum þunga og ef kíkt er á heimasíðu fyrirtækisins má sjá vélar af ýmsum gerðum og dæmi um eiginleikana. Þessi þróun, ásamt auðveldari tengingum vélanna við annan búnað, gæti þýtt að fyrr en vari muni hefðbundin myndataka með filmum verða liðin tíð en það er í samræmi við annað, að stafræn tækni yfirtaki hiutverk hliðrænnar. Vel varið heimili Stærstu fjai'skiptafyrirtækin voru að kynna ýmis konar rannsóknarverkefni og eitt slíkt, Residential Gateway, var til sýnis hjá Siemens. Um var að ræða síma sem var um leið tölva til að stjórna rofum og skynjurum á heimiiinu með þráðlausri tækni. Með einni aðgerð var hægt að gefa fyrirmæli við brottför af heimili um að lækka hitann, taka rafmagn af ýmsum búnaði og athuga glugga en skynjarar á stærð við kreditkort voru í gluggafölsum. Ef gluggi var opinn var það strax tilkynnt. Til að hindra að óviðkomandi geti átt við kerfið var þessu samfara notuð önnur tækni, Fingertip, sem er aflestur af fingra- fari. Með Residential Gateway var hægt að kalla fram lista yfir hversu oft og hvenær dyrabjallan hringdi og ef reynt var að opna hurð eða glugga gaf kerfið strax viðvörun með ljósum og sendi tilkynningu til heimilisfólks urn símann. Residential Gateway leyfir einnig að hægt er að hringja í símann og kveikja og slökkva á tilteknum tækjum með tónvalsskipunum. Maðurinn sem sýndi þetta lagði á það áherslu að tæknin væri einföld í uppsetningu, til dæmis væri litlum viðbótarrofum komið fyrir innan í fyrirliggjandi rafmagnstenglum. Þó svo tækni sem þessi sé í raun gamalkunnug er stefnt að því að verðið verði það lágt að þetta höfði til almennings. Og næsta sýning... Eftir lokun streymdi fólk út á brautarstöð. Við rúllustigann stóð maður með lírukassa 18.-24.3.1999 CeBU HANNOVER og snéri sveif af miklum krafti og tónlistin fyllti loftið en margir kímdu því undan tækinu hékk snúra prýdd RS-232 tengli. Já, það er ekki allt sem sýnist og allstaðar koma tölvur við sögu. Vegna Expo 2000 í Elannover verður næstu CeBIT-sýningu flýtt urn mánuð og þegar sýningin lokar verða skálar 27 og 28 rifnir og nýjar byggingar byggðar í þeirra stað. Einnig er vert að minnast á sýn- inguna CeBIT Home, sem snýr meira að tækni fyrir almenning, sem verður að þessu sinni haldin í Leipzig. A heimasíðu Skýrslutæknifélagsins er að finna ýmsar vefslóðir í tengslum við þessa grein. Slóðinn www.sky.is. Einar H. Reynis starfar á vöruþróunardeild Landssímans og er ritstjóri Tölvumála 42 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.