Tölvumál - 01.07.1999, Síða 16

Tölvumál - 01.07.1999, Síða 16
Linux og Windows Hvenær Linux og hvenær Microsoft Windows Gunnar Þór Gestsson Prófanir hafa sýnt að tinux miðtari afkastar almennt meira en NT miðlari á sama vél- búnaði. Það er ekki þar með sagt að alltaf eigi að velja Lin■ ux miðlara S Iþessari grein kem ég til með að bera saman Linux og Microsoft NT. Ástæðan fyrir því að ég vel Windows NT til samanburðar er sú að Windows 95 og Windows 98 lít ég fyrst og fremst á það PC umhverfi sem þarf á leikjatölvu. Þegar verið er að velja stýrikerfi þarf að vera ljóst hvaða verkefni tölvan á að fást við. Er um að ræða venjulega vinnustöð, miðlara eða tölvu sem á að sameina báða eiginleikana? Á venjulegri heimilistölvu sem þarf að geta keyrt hina ýmsu leiki er æskilegt að keyra Windows 95 eða Windows 98. Ef hins vegar einhver á heimilinu vill nota tölvuna í viðkvæmari verkefni, eins og t.d. bókhald, er æskilegt að hafa einnig Windows NT á tölvunni og setja hana þá þannig upp að NT hlutinn sé varinn og ekki aðgengilegur úr Windows 95 eða Windows 98 umhverfinu. í sumum tilfellum hentar að hafa Linux umhverfi á heimilistölvunni, en oftast nær er þá um að ræða tölvu fyrir einn einstakling sem vanur er Unix umhverfi og vill helst hvergi annarsstaðar vera. Að sjálfsögðu er hægt að setja tölvuna upp þannig að hægt sé að velja á milli allra þessara stýrikerfa við ræsingu. Á netkerfi í fyrirtækjum í dag eru bæði miðlarar og vinnustöðvar. Þegar verið er að velja stýrikerfi á PC tölvur inn í fyrir- tæki ætti valið, í flestum tilfellum, að vera á milli Linux og Windows NT. Við þetta val þarf að hafa í huga hvaða hugbúnað viðkomandi PC tölva skal keyra. Ýmsar leiðir eru til að samtvinna þessi umhverfi. Til dæmis er hægt að keyra X- miðlara á NT tölvu og ná þannig hlut af gluggaumhverfinu frá Linux tölvu á stað- arnetinu. (Gluggaumhverfið í Linux og öðrum Unix kerfum er kallað X-umhverfi eða bara X, á meðan að gluggaumhverfið í NT er einfaldlega kallað Windows.) Svo er hægt að keyra DOS hermi og Windows hermi á Linux tölvu. Enn ein leið er að keyra Windows NT miðlara sem miðlar NT umhverfinu yfir á X umhverfið þannig að það sé aðgengilegt öllum Unix tölvum. Prófanir hafa sýnt að Linux miðlari af- kastar almennt meira en NT miðlari á sama vélbúnaði. Það er ekki þar með sagt að alltaf eigi að velja Linux miðlara. Um- sjónarmaður þarf að stýra og fylgjast með miðlaranum. Þá skiptir máli hvort að um- sjónarmaðurinn er tengdur staðarnetinu, í sama húsi eða hvort hann eru í öðrum landshluta. Ef þú stendur fyrir framan skjáinn á NT miðlara er yfirleitt mjög ein- falt að stilla hann til eftir þínum þörfum þar sem nánast allar stillingar fara fram í gluggaumhverfi. Ef þú ert hins vegar ekki fyrir framan skjáinn er ekki eins auðvelt að stilla og fylgjast með miðlaranum. I sumum tilfellum er hægt að nota vefandlit til að stilla miðlarann. í mörgum tilfellum eru notaðar lausnir eins og pcANYWHERE til þess að fá aðgang að miðlaranum frá annari vinnustöð. pcANYWHERE gerir notandanum kleyft að kalla fram skjámyndina á miðlaranum í glugga á eigin vinnustöð. Meðan að glugginn er virkur hefur notandinn full- komna stjórn á lyklaborði og mús á miðl- aranum og getur því stillt hann eftir þörf- um og jafnvel endurræst miðlarann ef þess gerist þörf. Ef miðlarinn keyrir Linux er utanum- haldið allt annað. Hægt er að hafa gluggaumhverfi keyrandi á Linux miðlar- anum, en í flestum tilfellum er það óþarfi. Stillingar á miðlaranum eru nánast allar í textaskrám sem umsjónarmaðurinn getur breytt í Telnet aðgangi. Hægt er að ná Tel- net aðgangi inn á Linux miðlara frá öllum tölvum sem tengdar eru víðnetinu. Telnet er einungis flutningur á stöfum en ekki myndum svo að slrkt samband er mun hraðvirkara en pcANYWHERE samband. Umsjónarmaðurinn hefur fullkomna stjórn á Linux miðlaranum í gegnum Telnet sam- band og getur stöðvað eða ræst þjónustur eftir þörfum. Ef viðkomandi er með X keyrandi á sinni vinnustöð getur hann kallað á X-glugga frá Linux miðlaranum. í X-glugga er komið myndrænt andlit á Linux miðlarann. Fyrir þann sem þekkir bæði Linux og NT hefur Linux nokkra kosti umfram NT. 16 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.