Tölvumál - 01.07.1999, Blaðsíða 29
Tungutækni
Islenskan er utan-
garðsmál. Pví verður
ekki breytt nema Is-
lendingar móti sér
stefnu til að koma
málinu að í ráðandi
tungutækni
í fjórða lagi er og verður tungutækni
notuð í farartækjum. Nú þegar er dýrustu
fólksbílar búnir ýmiskonar tungutækni,
s.s. lalskipanir fyrir síma og útvarp, auk
þess sem tilkynnt er um ýmist ástand með
tali. Talkennsl er upplögð leið til að trygg-
ja að farartæki þjóni aðeins eigendum sín-
um og í viðunandi ástandi, þ.e minnkar
lrkur á þjófnaði og ölvunarakstri.
Utangarðsmál
Ljóst er hvað verður um tungumál sem
ekki fá viðeigandi og nauðsynlegan stuðn-
ing í tungutækni. Þau verða ósýnileg fyrir
vélræna vinnslu og upplýsingar vistaðar
með þeim verða ekki aðgengilegar nein-
um, nema talendum málsins. Þau verða
ekki nothæf í upplýsingavinnslu og fjar-
skiptaþjónustu. Rafeindatæki og farartæki
munu ekki þýðast þau né tala. Þessi
tungumál verða ekki einu sinni nothæf í
daglegu lífi talenda þeirra og munu ekki
eiga friðhelgi innan veggja heimilanna,
þar sem samskipti við sjónvarp, síma og
annan búnað verður á öðru tungumáli. Ör-
lög utangarðsmála við tungutækni er því
ljós. Þau daga uppi og deyja.
Hvað með lítil málsvæði?
Vandi málsvæða eins og íslenskunnar er
smæðin. Þróun tungutækni er drifin af
gróðravon og því munu markaðsöfl ekki
sinna slíkum málsvæðum.
Óhætt er að skilgreina málsvæði sem
lítið ef markaðöfl hafa ekki áhuga á því.
Það þýðir að lítil málsvæði verða utan-
garðs við tungutækni, nema talendur
þeirra kjósi að ákveða annað og berjist
fyrir máli sínu.
íslenskan er utangarðsmál. Því verður
ekki breytt nema íslendingar móti sér
stefnu til að koma málinu að í ráðandi
tungutækni. Tryggja þarf fjármuni af
sömu stærðargráðu og menn eru vanir í
vega- og gangnagerð í landinu. Byggja
þarf upp málgrunna fyrir íslensku og
vinna að málinu í samstarfi við eigendur
ráðandi tungutækni á hverjum tíma.
Kjósi íslendingar að berjast fyrir máli
sínu er mikilvægt að gera sér grein fyrir
því að það er verkefni sem líkur aldrei -
fyrr en við ósigur.
Heiðar Jón Hannesson
er eðlisfræðingur. Hann starfar hjá Vika
- íslenskri tungutækni ehf.
heidar@iceland. cc
www.iceland.ee
Tölvumál
29