Tölvumál - 01.07.1999, Qupperneq 17

Tölvumál - 01.07.1999, Qupperneq 17
Linux og Windows Reynslan hefur einnig sýnt að uppitími Linux er yfirleitt betri en NT. Linux með K-skjáborði hefur mun fleiri tól og tæki en bert Microsoft stýrikerfi. Flestir þurfa hins vegar meira og vilja t.d. nota Word og Excel úr Microsoft Office pakkanum. Það eru til forrit á Lin- ux sem eru að fullu samhæf þessum forrit- um. Mun fljótlegra er að setja upp Linux en NT. Mun þægilegra er að fylgjast með þjónust- um sem þar keyra og stýra miðlaranum. Nýlega hófst dreifing á tóli fyrir Linux sem heitir LinuxConf. Þetta tól má keyra í X- umhverfi, textaham eða í gegnum vefand- lit. Með LinuxConf má stilla marga þætti kerfisins og halda utan um notendur og heimasvæði. Þrátt fyrir að stillingar séu all- ar geymdar í textaskrám á Linux tölvunni tekur yfirleitt styttri tíma að breyta stilling- um en með gluggaumhverfinu í Windows auk þess er Linux yfirleitt mun sveigjan- legri en NT. Reynslan hefur einnig sýnt að uppitími Linux er yfirleitt betri en NT. Einn mikilvægur kostur við Linux umfram NT er að Linux þaif nánast aldrei að endur- ræsa þrátt fyrir að verið sé að bæta við nýj- um þjónustum eða uppfæra gamlar þjón- ustur. Það verður hins vegar að telja til undantekningatilfella ef ekki þarf að endur- ræsa NT við svona aðgerðir. Þrátt fyrir allt sem hér hefur verið sagt þá eru það forritin sem þarf að keyra á miðlaranum sem ráða endanlegu vali. Ef fyrirtækið þarf þjónustur eins og lén- stjórnun (domain controller), Exchange þjón eða Microsoft SQL þjón er nauðsyn- legt að keyra NT miðlara. Svo eru allmörg kerfi sem byggja á NT miðlurum, svo sem bókhaldskerfi og upplýsingakerfi fyrir- tækja. Ég held að óhætt sé að segja að hjá flestum fyrirtækjum í dag, sem á annað borð nota Microsoft netkerfi, er nauðsyn- legt að keyra NT miðlara með lénstjómun. Samba, sem er skráarmiðlari á Unix kerf- um, er nýlega komin með lénstjórnun fyrir Windows 95/98 og Windows NT. í Linux er einnig að finna skráarmiðlara sem er samhæfur Novell Netware. Fyrirtæki sem þurfa netþjónustu fyrir Macintosh geta valið bæði NT og Linux. I sumum fyrirtækjum getur verið hent- ugt að keyra NT og Linux miðlara sam- hliða. Þó að Element hf. sé ekki stórt fyrir- tæki þá keyrum við bæði NT og Linux miðlara. Við keyrum Fjölnisþjóna, Exchangeþjón, Faxþjón, innhringiþjón- ustu og lénstjórnun á NT miðlaranum, á meðan að Linux miðlarinn sér um Inter- netaðgang, Tölvupóst, prentbiðraðir og netstjórnun. Við erum tengdir við mörg önnur netkerfi og Linux tölvan sér um að verja og loka aðgangi að okkar netkerfi og að hleypa viðskiptavinum sem tengjast okkur út á Internetið. Með pakkastýringu (IP Masquerading) er hægt að gefa tölvum á innraneti fullan aðgang að Internetinu eins og tölvan væri beintengd við Internet- ið. Tölvan er samt sem áður falin á bak við Linux tölvuna og ekki aðgengileg frá Internetinu. Báðið miðlararnir eru skiáarmiðlarar, báðir eru með heimasvæði, báðir keyra ftp þjón og vefþjón. Ég sé ekki að við gætum leyst okkar þarfir eingöngu með Linux miðlara eða NT miðlara. Vélbúnaðurinn í þessum vélum er ekki sambærilegur. NT miðlarinn okkar er vandaður HP netþjónn en Linux tölvan er gömul vinnustöð. Það má því áætla að kostnaðurinn við NT net- þjóninn sé tífaldur á við kostnaðinn við Linux þjóninn. Við val á stýrikerfi á vinnustöð verður fyrst og fremst að hafa í huga hvert hlut- verk notandans er og hvaða hugbúnað hann þarf að geta keyrt. Stýrikerfi á vinnustöð verður að henta notandanum og hann verður að kunna ákveðna grunnþætti í viðkomandi stýrikerfi. Ef við tökum fyrir almennan notanda sem þekkir tölvur mjög lítið þá verður að velja stýrikerfi og um- hverfi sem keyrir forritin sem notandanum er ætlað að vinna í. Ef um takmarkaða notkun er að ræða er oft hægt að komast af með mjög ódýra lausn. Sem dæmi þá get ég tekið útstöðvar í Element hf. Fyrir almennan notanda noturn við Windows NT. Nokkrir eru einnig með Linux vinnu- stöðvar. Einni tölvu er einungis ætlað að keyra viðskiptahugbúnaðinn Fjölni. Tölvan keyrir DOS og er með netaðgang. Tölvan tengist Linux tölvu með telnet sambandi (naviterm) sem að keyrir upp viðskipta- hugbúnaðinn. í slíka vinnustöð er hægt að nota hvaða PC tölvu sem er. Afköstin ráð- ast af stærð Linux tölvunnar og klukkan ræðst af klukku Linux tölvunnar. í þessum útstöðvum er því enginn 2000 vandi. Okk- ur er alveg sama þó að klukkan á vinnu- stöðinni sé 15. apríl árið 1980. Þessari Linux tölvu tengjast í dag um 40 aðilar á þennan hátt bæði á vinnustað og í heima- húsum, og keyra þannig viðskiptahugbún- aðinn. Sambærilega uppsetningu er hægt að gera með MetaFrame og Windows við- móti. Tölvumál 17

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.