Tölvumál - 01.07.1999, Page 18
Linux og Windows
Sífelt fleiri forrit eru að
verða til fyrir Linux og
þessa daganna kepp-
ast vélbúnaðarfram-
leiðendur um að til-
kynna um Linux sfuðn-
ing fyrir sína vöru.
Linux er hægt að
nálgast án endur-
gjalds og býður upp
á frábæra sveigjan-
leika. Stöðugleiki, af-
köst og mikið öryggi
eru mikilvægir kostir.
Þegar einstaklingur sem aldrei hefur
komið nálægt tölvuvinnslu er spurður um
hvort að hann vilji nota Windows um-
hverfið á ensku eða K-skjáborðið sem er á
íslensku, er valið trúlega í flestum tilfell-
um íslenska umhverfið. Ef viðkomandi
einstaklingur er búinn að vinna með
Windows yrði valið trúlega erfiðara. Ef K-
skjáborðinu fylgja öll tól og forrit sem
einstaklingurinn þarf að nota verður valið
eflaust Linux. Ef einstaklingurinn þarf að
keyra forrit sem ekki keyrir á Linux - eitt-
hvað forrit frá Microsoft, er hann ennþá
bundinn við Microsoft stýrikerfin. Ef um
takmarkaða notkun á Windows forritum er
að ræða getur viðkomandi eflaust leyft sér
að keyra Linux með Windows hermi.
Hægt er að kaupa mjög góðan Windows
hermi fyrir Linux en einnig hægt að fá
slakari hermi endurgjaldslaust.
Umtalaður einstaklingur hefur hins veg-
ar ekki valið. Flestum nýjum PC tölvum
fylgir Microsoft stýrikerfi. Sífellt fleiri
framleiðendur eru byrjaðir að selja PC
tölvur með Linux stýrikerfinu. Sala á Lin-
ux stýrikerfinu hefur verið að aukast um
25% á hverju ári á meðan að salan á
Microsoft stýrikerfunum hefur aukist um
10% á ári. Linux með K-skjáborði hefur
mun fleiri tól og tæki en bert Microsoft
stýrikerfi. Flestir þurfa hins vegar meira og
vilja t.d. nota Word og Excel úr Microsoft
Office pakkanum. Það eru til forrit á Linux
sem eru að fullu samhæf þessum forritum.
Til dæmis er pakki sem heitir StarOffice
frá Stardivision í Þýskalandi. StarOffice og
Microsoft Office geta notað sama skráar-
formið, en vinnuumhverfið er alls ekki það
sama. Einstaklingar hafa því ennþá til-
hneigingu til að nota Microsoft hugbúnað-
inn. Stóri munurinn á þessum pökkum er
að fyrir Microsoft Office þarf að greiða
fúlgu fjár, en StarOffice má einstaklingur
nota án endurgjalds.
Sífellt fleiri forrit eru að verða til fyrir
Linux og þessa daganna keppast vélbún-
aðarframleiðendur um að tilkynna um
Linux stuðning fyrir sína vöru. Notenda-
viðmót K-skjáborðsins er stöðugt að batna
en ennþá eru nokkur smáatriði óleyst sem
gera Microsoft viðmótið þægilegra í notk-
un. Fyrir þá sem unnu með Word Perfect á
sínum tíma eru gleðifréttir að útgáfa átta
er til fyrir Linux.
í flestum fyrirtækjum í dag eru einhver
forrit sem ætlast er til að keyri á hverri
vinnustöð. Flest fyrirtæki hafa sitt upplýs-
ingakerfi. Ef upplýsingakerfið keyrir ekki
á Linux, þá er erfitt að réttlæta Linux
stýrikerfi á vinnustöðvar.
í mínu fyrirtæki keyrum við Fjölni sem
bókhaldskerfi. Fjölni get ég keyrt bæði á
NT og Linux. Við notum Exchange og
Outlook fyrir tölvupóst, samskipti og sem
sameiginlegt upplýsingakerfi. Outlook,
eins og önnur Microsoft kerfi keyra ekki á
Linux. Við sjáum um rekstur á mörgum
tölvum; þjónum og vinnustöðvum. Þjón-
arnir keyra HP Unix, Windows NT og
Linux. Við erum með hátt í 20 Linux tölv-
ur í okkar umsjón. Vegna þessa þá hef ég
tvær tölvur á borðinu hjá mér. Keyri
Windows NT á annarri og Linux með K-
skjáborði á hinni. Eg er með einn skjá, eitt
lyklaborð og eina mús. Svo nota ég skipti
til að velja á hvora tölvuna ég er að vinna
hverju sinni.
Windows umhverfið þekkja flestir og
eiga því auðveldara með að vinna með NT
en Linux. Styrkur Microsoft NT stýrikerf-
isins liggur fyrst og fremst í úrvali hug-
búnaðar. Ymsar þjónustur sem Microsoft
hefur hannað og sent frá sér hafa eingöngu
verið gerðar fyrir NT stýrikerfið. NT stýri-
kerfið er mjög algengt svo að flest fyrir-
tæki sem senda frá sér miðlara og önnur
forrit gera þau fyrir NT stýrikerfið. Þetta
gerir NT miðlara mjög mikilvægan í
rekstri flestra fyrirtækja
Styrkur Linux liggur í netkerfis- og net-
þjónurn. Vegna þessa er Linux mest notað
fyrir netstýringu, skráar-, prentara-, vef-,
og póstþjóna, sem Internet leiðstjórar og
sem þróunarumhverfi.
Linux er hægt að nálgast án endurgjalds
og býður upp á frábæra sveigjanleika.
Stöðugleiki, afköst og mikið öryggi eru
mikilvægir kostir. Að auki er auðvelt að
nota Linux í blönduðum netkerfum þar
sem að nær allir samskiptastaðlar eru fyrir
hendi. Með tilkomu K-skjáborðsins á ís-
lensku verður Linux mun aðgengilegra
fyrir allan almenning og vissulega er
framtíðin björt og væntingarnar miklar.
Gunnar Þór Gestsson
er kerfisstjóri Elements hf.
18
lölvumál