Tölvumál - 01.07.1999, Side 22
2000 vandinn
Einhliða yfirlýsing um
ábyrgðarleysi síðar
yrði vart metin gild
Islensku kaupalögin
heimila fleiri úrræði
en bætur vegna galla
Lögin geyma ákvæði
um almennan þriggja
ára fyrningarfrest
Stjórnendur hlutafé-
lags bera ábyrgð á
tjóni sem þeir á sak-
næman hátt valda fé-
laginu
Kaupandi fær í raun
bara leyfi til að nýta
sér búnaðinn í starf-
semi sinni
almennt. Hér má þó benda á dóm héraðs-
dóms Reykjaness frá 31. desember 1998,
þar sem kaup á tveimur mismunandi kerf-
um sem ætlað var að starfa saman, voru
metin sem lausafjárkaup. Með hliðsjón af
þessum dómi má því ætla að kaup á heild-
arlausnum, sem sérsniðnar eru að þörfum
fyrirtækis, falli undir ákvæði kaupalag-
anna. í þessu sambandi má reyndar benda
á að bandarísku kaupalögin (Uniform
Commercial Code) hafa verið talin ná til
fjöldaframleidds hugbúnaðar, en síður til
hugbúnaðar sem sérhannaður er fyrir
starfsemi kaupanda. Islensku kaupalögin
heimila fleiri úrræði en bætur vegna galla.
Kaupandi getur þannig rift kaupunum ef
vanefnd telst veruleg, krafist afsláttar eða
ógallaðrar greiðslu í stað gallaðrar. Sam-
kvæmt lögunum ber kaupanda að tilkynna
um að hann hyggist krefjast vanefndaúr-
ræða sem fyrst eftir að hann verður ágall-
ans var, og í síðasta lagi innan árs frá af-
hendingu hins selda.
Hugsanlegt er, fyrir utanaðkomandi
tjónþola, að mögulegt sé að sækja bætur á
grundvelli sérlaga. Koma lög um skað-
semisábyrgð t.d. til skoðunar í því sam-
bandi. Samkvæmt þeim er heimilt að hafa
uppi kröfur á jafnt framleiðendur sem
dreifingaraðila þess búnaðar sem veldur
tjóni. Þar sem lögin ná einungis til tjóns af
völdum lausafjár yrði þessum lögum
væntanlega einungis beitt þegar um er að
ræða tjón af völdum tækja með inn-
byggðri tölvustýringu. Lögin geyma
ákvæði um almennan þriggja ára fyrning-
arfrest. Sá réttur getur þó talist hafa fallið
niður fyrir tómlæti ef ekki er gerð gang-
skör að því að tilkynna þeim er ábyrgð
geta sætt um tjónið og óska eftir að úr
verði bætt.
Stjórnendur hlutafélags bera ábyrgð á
tjóni sem þeir á saknæman hátt valda fé-
laginu í störfum sínum samkvæmt einka-
hlutafélagalögum og lögum um hlutafé-
lög. Gáleysi nægir í því sambandi. Þeim
ber því að sjá til þess að gerðar séu nauð-
synlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir
tjón vegna 2000 vanhæfni. Gera má ráð
fyrir að ríkari skyldur hvíli á stjórnendum
fyrirtækja ef reksturinn er mjög háður
tölvukerfum, t.d. fjármálafyrirtæki eða
tæknivætt fiskvinnsluhús. Þá er einnig
hugsanlegt að endurskoðendur geti orðið
ábyrgir ef þeir sinna ekki lögboðnum
skyldum sínum í þessu sambandi. Ef
fengnir eru sjálfstæðir ráðgjafar til að taka
út eða lagfæra kerfi, þá fer um ábyrgð
þeirra samkvæmt þeim samningi sem við
þá er gerður.
Rétt er að taka fram að við sölu á flest-
um af þeim staðlaða hugbúnaði sem við-
skipti eiga sér stað með í dag, eru gerðir
sérstakir leyfissamningar við kaupanda.
Oft er þá um að ræða að seljandi á Islandi
hefur gert dreifingarsamning við framleið-
anda um rétt til að selja afnotarétt af bún-
aðinum til notenda hér á landi. Kaupandi
fær þá í raun bara leyfi til að nýta sér bún-
aðinn í starfsemi sinni, en er ekki heimilt
að framselja hann eða gera neitt sem brýt-
ur í bága við söluskilmála. Þess ber að
geta að samkvæmt höfundalögum er eig-
endum hugbúnaðar almennt heimilt, nema
öðruvísi sé um samið, að breyta búnaðin-
um þannig að hann nýtist þeim með eðli-
legum hætti. Þegar um er að ræða hugbún-
að sem sérstaklega hefur verið lagaður að
þörfum notanda er oft samhliða leyfis-
samningi gerður sérstakur þjónustusamn-
ingur þar sem seljandi tekur að sér að
halda búnaðinum við eða uppfæra hann í
tiltekinn tíma. Ef gerður hefur verið þjón-
ustusamningur sem gildir fram yfir næstu
áramót standa líkur til þess að dreifingar-
aðili hafi tekið á sig ábyrgð á því að gera
hugbúnaðinn 2000 samhæfan. Jafnvel
þegar einungis er seldur afnotaréttur af
hugbúnaði getur komið til á grundvelli
ákvæðis samningalaga um ósanngjarna
samningsskilmála að dreifingaraðili yrði
látinn sæta ábyrgð ef tjón verður af bilun í
búnaðinum. Þar sem áður hefur verið
minnst á bandarískan rétt má benda á að
þarlend kaupalög hafa verið talin ná til
slíkra leyfissamninga sem hér um ræðir,
þ.e. fjöldaframleidds hugbúnaðar.
Bondaríkin
Bandaríkjamenn hafa lengi staðið fremstir
þjóða hvað varðar tölvur og tækni. Þeir
eru jafnframt þekktir fyrir að vera allra
þjóða ákafastir þegar kemur að lögsókn-
um og málaferlum. Það kemur því ekki á
óvart að 2000 vandinn hefur verið mikið
til umfjöllunar þar undanfarin ár. A
vídeófundi í apríl sem höfundur, ásamt
nokkrum forsvarsmönnum íslenskra fyrir-
22
Tölvumál