Tölvumál - 01.07.1999, Side 25
Skilmálar í hugbúnaöi
Hvert vilt þú láta okkur teyma þig í dag?
Ágúst Ulfar Sigurðsson
Þegar ég setti diskinn
í drif tölvunnar kom á
skjáinn gluggi með
skilmálum sem mér
finnast svo fáránlegir
að ég fæ ekki orða
bundist
Eitt sinn var land nokkurt þar sem
smjör draup af hverju strái og vel-
megun slík að á öllum heimilum
var einkatölva af nýjustu gerð auk annarra
stöðutákna. Tölvurnar þurftu að vera öfl-
ugar og voru eigendur þeirra sífellt að
endurnýja þær. Ekki hafði tíðkast að
greidd væru gjöld fyrir hugbúnaðinn á
tölvunum, enda var hann fyrst og fremst
notaður sem stöðutákn og það heyrði til
undantekninga ef nokkur kunni að nota
hann að gagni. Ekki höfðu fundist skýr-
ingar á hinni miklu velmegun og töldu
sumir hagfræðingar að meginorsök hennar
væri einmitt fólgin í sparnaðinum af því
að engar greiðslur voru greiddar til er-
lendu hugbúnaðarrisanna ólíkt því sem
tíðkaðist í öðrum löndum.
Stærstur allra tölvunotenda í landinu
nefndist Ríkið. Átti það margar skrifstofur
þar sem starfaði margt fólk við að stjórna
öðru fólki, semja lög, framfylgja lögum,
leggja á skatta og ráðstafa skattfénu til að
uppfylla loforð sem æðstu stjórnendur
landsins gáfu þegnum sínum fjórða hvert
ár. Á öllum skrifstofum Ríkisins voru not-
aðar tölvur af ótal gerðum og hafði að
sjálfsögðu ekki verið greitt fyrir hugbúnað
á þær fremur en aðrar tölvur.
Smám saman rann upp fyrir fólkinu að
dagar hinna frjálsu afritana voru liðnir.
Landið lá undir ásökunum Alþjóðaréttlæt-
isstofnunarinnar og Ríkinu þótti tími til
kominn að hreinsa mannorð sitt og þegna
sinna. Samkomulag var því gert við Al-
þjóðasamtök Hugbúnaðanétthafa, AHA
um að skrásetja skyldi allan hugbúnað á
tölvum landsmanna svo hægt væri að
senda eigendum tölvanna gíróseðla til að
innheimta afnotagjöld vegna hugbúnaðar-
ins. Viðhengisblað á gíróseðlinum bar yf-
irskriftina „Aflausnarvottorð vegna fjöl-
földunar hugbúnaðar" og fékk það gildi
um leið og gjaldkeri hafði stimplað í við-
komandi reit. Á hverju ári skyldi endur-
taka leikinn og gera svonefnt hugbúnaðar-
tal (sbr. manntal) og senda gíróseðla fyrir
öllum nýjum útgáfum forritanna, en allir
vissu að flest forritin voru með þeim
ósköpum gerð að úreldast á hverju ári og
a.m.k. missa gildi sem stöðutákn.
Þar sem aðeins var um að ræða fram-
kvæmd á samningi og ekki lögbrot heyrði
málið ekki undir Dóms- og kirkjumála-
stofu þótt aflausnir væru sérsvið hennar.
Endurskoðunarstofa Ríkisins var fengin til
að framkvæma hugbúnaðartal á tölvum
Ríkisins, en Skattmannsstofa hjá öðrum
þegnum landsins. Skyldi það gert á hinu
sívinsæla árlega skattaframtali lands-
manna og allir skyldaðir til að telja fram
tölvuhugbúnað á sérstöku eyðublaði að
viðlögðu drengskaparheiti. Öllum heimil-
um landsins var jafnframt sent leiðbein-
ingarit um notkun LFNINSTALL forritsins
og DEL-skipunarinnar og þeir sem þess
óskuðu skriflega gátu fengið sérritið
REGEDIT gegn loforði um að geyma það
þannig að óvitar og börn næðu ekki til.
Vegna þess að Lögreglustofunni hafði
verið ýtt til hliðar í málinu með tilkomu
aflausnarbréfsins var henni falið að sjá um
fælandi og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
ólöglegri afritun og hugbúnaðarstuldi.
Forvarnadeildir hennar klæddust MS bol-
um (MjólkurSalan) og buðu veiklunduð-
um tölvueigendum geisladiska með ólög-
lega afrituðum hugbúnaði til sölu á gjafa-
verði, fyrsti diskurinn ókeypis, o.s.frv. en
viðtaka og frekari dreifing á ólöglegum
diskum leiddi að sjálfsögðu til tafarlausrar
handtöku og ákæru.
... grínsögu lýkur,
raunveruleikinn hefst hér...
Grínsagan var kannski ekkert fyndin, en
hún spannst í huga mér fyrir skömmu þeg-
ar ég fékk í pósti geisladisk frá Microsoft
og uppgötvaði skilmálana sem ég þarf að
samþykkja áður en ég má skoða innihald
hans. Diskurinn er merktur sem ítargögn
frá ráðstefnu sem vinnuveitandi rninn
sendi mig á og voru engir skilmálar fyrir
innritun og þátttöku aðrir en að greiða
uppsett gjald.
Þegar ég setti diskinn í drif tölvunnar
kom á skjáinn gluggi með skilmálum sem
mér finnast svo fáránlegir að ég fæ ekki
Tölvumól
25