Tölvumál - 01.07.1999, Page 26
Skilmálar í hugbúnaði
Islenska ríkið hefur
sett af stað átak til að
útrýma ólöglega afrit-
uðum hugbúnaði á
eigin tölvum. Það er
gott mál. En þegar
Microsoft kvittar fyrir
sig með trakteringum
eins og þessum notk-
unarskilmálum þá fer
ég að efast um að
allir aðilar séu á réttri
leið
Ég styð þá viðleitni,
en hvet alla hlutaðeig-
andi til að hemja mál-
ræpu lögfræðing-
anna þegar kemur að
íslensku notkunarskil-
málunum og orða skil-
málana þannig að
venjulegt fólk geti les-
ið þá og skilið og
samþykkt af heilum
hug. látum ekki
bjóða okkur svona
rugl lengur
orða bundist. Sjá mynd. Ekki er textinn
einungis langur og algjört torf, heldur fel-
ast í honum fullyrðingar sem ég trúi ekki
að séu réttar, ýmis atriði sem alls ekki eiga
við og loks er í honum alllangur kafli á
frönsku þótt hann sé að mestu leyti á
ensku. Heildarlengdin er 2159 orð eða 3
þéttprentaðar A4 síður. Læt ég afrit af
textanum fylgja, en það er í valdi ritstjóra
hvort hann birtir hann í heild sinni eða
hlífir lesendum við ósköpunum.
Ef ég vil vera viss um að setja hvorki
mig né vinnuveitanda minn í kostnaðar-
samar skuldbindingar vegna þessa disks
verð ég að kaupa faglegt álit lögfræðinga
og aðstoð löggiltra skjalaþýðenda, bæði
fyrir enska og franska tungu því að sumt í
skilmálunum skil ég ekki og annað sem ég
skil get ég ekki samþykkt út á eigin sam-
visku.
Islenska ríkið hefur sett af stað átak til
að útrýma ólöglega afrituðum hugbúnaði
á eigin tölvum. Það er gott mál. En þegar
Microsoft kvittar fyrir sig með traktering-
um eins og þessum notkunarskilmálum þá
fer ég að efast um að allir aðilar séu á
réttri leið. Vellíðanin sem fylgir því að feta
hinn þrönga stíg réttvísinnar og breyta
heiðarlega hverfur gjörsamlega fyrir
óbragðinu sem fylgir því að samþykkja
ósköpin og smella á „Yes“ -takkann. Til-
finningin er lík því að skrifa nafn sitt á
óútfyllt víxilblað.
Vel er við hæfi að rifja
upp þjóðsöguna um fund
sendimanna IBM við Gary
heitinn Kildall, aðaleiganda
og forsvarsmann fyrirtækis-
ins Digital Research. IBM
vildi semja um að fá CP/M
stýrikerfið á PC-tölvuna,
sem þá var nýhönnuð og al-
gjört iðnaðarleyndamál. Eft-
ir að hafa lesið áðurnefnda
notkunarskilmála get ég vel
gert mér í hugarlund hvernig
gubbubragð Gary Kildall
hefur fengið í munninn við
lestur á þagnareiðs- og við-
ræðuskilmálum IBM, en
sendimönnunum var óheim-
ilt að bera upp erindið eða
nefna PC tölvuna á nafn
nema plöggin hefðu verið
undirrituð. Ekki hefur hann þá gert sér
grein fyrir því hve afdrifaríka ákvörðun
hann tók þegar hann neitaði að skrifa und-
ir lögfræðibullið og Microsoft fékk næsta
leik á borði IBM.
Ráðamenn íslensku þjóðarinnar hafa
gert samkomulag við Microsoft um ís-
lenskun á Windows gegn því að hreinsa til
í eigin ranni og gerast heiðarlegir í sam-
skiptum við rétthafa hugbúnaðar. Eg styð
þá viðleitni, en hvet alla hlutaðeigandi til
að hemja málræpu lögfræðinganna þegar
kemur að íslensku notkunarskilmálunum
og orða skilmálana þannig að venjulegt
fólk geti lesið þá og skilið og samþykkt af
heilum hug. Látum ekki bjóða okkur
svona rugl lengur. Það er einmitt svar mitt
við slagorði sem Microsoft notar oft:
Where do you want to go today?
PS
Grínsögukaflinn er algjör uppspuni. Ef
eitthvað kemur fram í honum sem líkist
raunveruleikanum, pirrar einhvern eða
það flögrar að einhverjum að hann sé til-
efni til lögsóknar, skaðabótakröfu eða
annarrar kúgunar gagnvart mér og vinum
mínum þá skal tekið fram að slíkt er algjör
tilviljun og ekki með vilja gert.
Ágúst Ulfar Sigurðsson
er deildarstjóri við hugbúnaðargerð
Seðlabanka Islands
:rosoft BizApps 99 ToolKit License Agreement
Please read ihe following liceme agreement. Piess the PA6E DOWN key to see the
lest of the agreement.
MlCROSOFT BUSINESS APPLICATIONS CONFERENCE TOOLKIT
END-USER LICENSE AGREEMENT FOR MICROSOFT SOFTWARE ~
IMPORTANT-READ CAREFULLY: This End-Usei License Agieement ("EUIA") fe a
legal agieement between yon (eithei an individýal oi a single entity) and Miciosoít —
Coiporation. its suppliers and third party content providers for the software producí
identified above, which includes computer software and may include associated
media, printed materials, and “online" or electronic documentation (“SOFTWARE
PRODÚCT"), Any soítware provided along with the SOFTWARE PRODUCT that is
associated wKh a separate end-user license agreement is licensed toyou under the
terms of that lieerne agreement. By installing, copying, dovinloading, accessing, or
otherwise using the SOFTWARE PRODUCT, you agree to be bound by the lerms
of this EULA. If you do not agree to the teims of this EULA, do not install or use the
SOFTWARE PRODUCT
SOFTWARE PRODUCT LICENSE
The SOFTWARE PRODUCT is protected by copyright laws and internalional
copyright treaties, as well as other inteliectual property laws and treaties. The
SQFTWARE PRODUCT is licensed, not sold.
1. GRANT OF LICENSE. The SOFTWARE PRODUCT is comprisedof
various components, all of which aie licensed as follows:
Use and Copy. You may install and use one copy of the SOFTWARE
PRODUCT in conjunction with validly licensed copies of Miciosoft operating
systems products (e. g., Wmdows® 95; Windows® 98; Windows N T ®) on a single
computei. The primary user of the computer on which the SOFTWARE PRODUCT
is installed may make a second copy for his or hei exclusive use on a portable
Doyouacceptallof Ihetermsof the precedingLicenseAgieement?lfyouchooseNo,
the Microsoft BizApps 99 ToolKit will close. To run the Microsoft BizApps 99 ToolKit. you
rnust accept this agreement.
26
Tölvumál