Tölvumál - 01.07.1999, Qupperneq 33
AtvinnujDróun
Tölvur og prentiðnaðurinn
Hjörtur Guðnason
Það má segja að
þessi bylting hafi
skollið á okkur með
tilkomu Macintosh-vél-
arinnar fyrir u.þ.b. 20
arum.
Gæðum og útliti
prentverks hrakaði
mjög um tíma þegar
allskonar áhugafólk
fór að brjóta um texta
og myndir af mikilli
vankunnáttu.
Blaðamenn eru t.d.
smátt og smátt farnir
að seilast inn á svið
umbrotsmannsins og
Ijósmyndarar sömu-
leiðis með stafrænum
myndavélum og frek-
ari vinnslu á myndum
sínum í tölvum.
Við sem vinnum í prentiðnaðinum
teljum að fáar aðrar hefðbundnar
iðngreinar hafi tekið þvílíkum
breytingum sem prentiðnaðurinn vegna
innreiðar tölvunnar á þann vettvang.
Það má segja að þessi bylting hafi
skollið á okkur með tilkomu Macintosh-
vélarinnar fyrir u.þ.b. 20 árum. Tölvur
höfðu komið inn í iðnaðinn fyrr en það
voru mjög sérhæfðar setningartölvur sem
eingöngu gátu sett upp texta. Þegar Makk-
inn kemur svo með skjáborðsum-
brot(„Desk Top Publishing“) verða mikil
umskipti í þessum iðnaði. A einni nóttu
gerist það að umbrot á prentverki, sem
áður fór fram í höndum umbrotsmanns á
(ljósa)borði þar sem hann vann með texta
sem búið var að framkalla á pappír og síð-
an vaxbera, færðist yfir á tölvuskjáinn
með öllum þeim tæknibreilum sent tölvan
býður upp á. Iðngrein, sem hét og heitir
reyndar ennþá skeyting, var allt í einu
komin að fótum fram. Vinnsla á myndum,
sem hafði farið þannig fram að myndin
var sett í risastóra myndavél og færð
þannig yfir á filmu, var þess í stað sett í
skanna sem tók við af „rebbunum" en það
voru þessar myndavélar kallaðar eftir teg-
undarheiti flestra þeirra, „Repromaster".
Á tölvuskjánum var hægt að brjóta um
bæði texta og myndir, setja inn strik og
ramma af öllum gerðum og grunnar runnu
inn á skjáinn eins og töfrasprota væri veif-
að. Þar að auki gat umbrotsmaðurinn séð
prentverkið í lit á skjánum og gat þar af
leiðandi gert sér betur í hugarlund hvernig
prentverkið myndi líta út. Þessi bylting
átti eftir að hafa ýmis áhrif á prentiðnað-
inn og voru þær ekki allar til bóta. Prent-
kaupandinn sá sér allt í einu leik á borði
að vinna sjálfur forvinnsluna fyrir prent-
verkið. Flestir gleymdu þó einu mikil-
vægu atriði sem er kunnátta fagfólksins.
Gæðum og útliti prentverks hrakaði mjög
um tíma þegar allskonar áhugafólk fór að
brjóta um texta og myndir af mikilli van-
kunnáttu. Kröfur prentkaupandans um út-
lit fóru allt í einu neðst á gæðakvarðann
vegna þess að hann var að vinna verkið
sjálfur og hafði svo gaman af því. Fræg
eru fonta- og lita-„fyllirí“ ásamt ofnotkun
ramma og allskonar grunna. Oft gerðist
það að eitthvað sem einhver var búinn að
hanna á skjánum var ónýtt vegna ýmis-
legra tæknilegra galla og notkunar rangra
forrita, fengu þessir tölvuvinir nafnið
„riddarar skjáborðsins“. Þetta er reyndar
enn þann dag í dag vandamál með aukinni
tölvueign landans.
Flestir prentkaupendur áttuðu sig smátt
og smátt á því að betra var að láta fagfólk
hanna og vinna prentverkið ef t.d. auglýs-
ing eða bæklingur átti að hafa tilætluð
áhrif. Svo voru sjálfsagt einhverjir sem
fengu einfaldlega leið á umbrotinu þegar
mesta nýjabrumið var horfið. Smátt og
smátt jafnaði prentiðnaðurinn sig á þessu
og starfsfólk hans náði betri tökum á þess-
ari nýju tækni. Margir skeytingamenn
fluttu sig frá ljósaborðinu að tölvuskján-
um og smátt og smátt hefur þessi stétt ver-
ið að þurrkast út. Störf þeirra og grafískra
hönnuða, sem þá hétu auglýsingateiknar-
ar, fóru að skarast. Það átti svo eftir að
gerast með fleiri stéttir í upplýsingaiðnað-
inum. Blaðamenn eru t.d. smátt og smátt
farnir að seilast inn á svið umbrotsmanns-
ins og ljósmyndarar sömuleiðis með staf-
rænum myndavélum og frekari vinnslu á
myndum sínum í tölvum.
Menn í prentiðnaði sáu fljótlega að á
einhvern hátt þurfti að bregðast við þess-
ari tölvuinnrás í iðngreinina með aukinni
og bættri menntun starfsfólksins. Þess
vegna var Prenttæknistofnun komið á fót
af félagi bókagerðarmanna og Samtökum
iðnaðarins 1991. Starfssvið hennar var að
sjá til þess að starfsfólk í prentiðnaði gæti
lært þessa nýju tækni og sí- og endur-
menntað sig af krafti. Hér var ekki bara
spurning urn þörf heldur bráða nauðsyn.
Prenttæknistofnun hefur starfað af krafti
allt frá stofnun. Helst er þar urn að ræða
námskeiðahald í tölvuvinnslu. Aðsókn að
námskeiðum Tölvuskóla Prenttæknistofn-
unar hefur verið mjög góð allt frá upphafi
og kemur þar hvort tveggja til bráð nauð-
syn og að til alls námskeiðahalds hefur
Tölvumái
33