Tölvumál - 01.07.1999, Page 34

Tölvumál - 01.07.1999, Page 34
Atvinnuþróun Þrátt fyrir harðnandi samkeppni frá afþrey- ingariðnaðinum er ekki að sjá að vin- sældir prentverks hafi minnkað. Prent- og út- gáfuiðnaðurinn er ein- faldlega að breytast með nýrri tækni og harðnandi sam- keppni. verið sérstaklega vandað. Það má segja að annar stig þessarar byltingar hafi orðið fyrir u.þ.b. 5 árum með stafrænni vinnslu, þ.e. stafræn skönnun, stafræn ljósmyndun, stafræn plötugerð og stafræn prentun. All- ar þessar nýjungar hafa komið mjög fljótt inn í hinn íslenska prentiðnað og er óhætt að segja að hann sé að fullu samkeppnis- fær við það besta erlendis. Öll þessi tækniþróun hefur að sjálfsögðu verið kostnaðarsöm fyrir íslenskan prentiðnað en um leið gert hann að sérlega spennandi starfsvettvangi. Þrátt fyrir harðnandi sam- keppni frá afþreyingariðnaðinum er ekki að sjá að vinsældir prentverks hafi minnk- að. Prent- og útgáfuiðnaðurinn er einfald- lega að breytast með nýrri tækni og harðn- andi samkeppni. Vönduð vinnubrögð og fjölbreytni munu sjá til þess að vegur prentverksins fer ekki dvínandi á komandi árum. Það má segja að prentiðnaðurinn hafi sprungið út á undanförnum árum og fjölbreytni hans orðið gífurleg. Ekki má gleyma að í hinum grafíska iðnaði er ekki bara fengist við prentverk heldur hafa Netið og margmiðlun með öllum sínum þáttum einnig orðið viðfangsefni hans í sí- auknum mæli. Þess má geta að síðastliðið haust setti Prenttæknistofnun á laggirnar Margmiðlunarskóla. Þar fer fram ítarlegt nám í öllu sem margmiðlun tengist og læra nemendur þar að flétta saman texta, myndir og hljóð. Fyrstu nemendur þessa skóla útskrifast í vor og verður spennandi að sjá hvaða framtíð þeir eiga sér á nýrri (tækni)öld. Höfundur er framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar og skólast/óri Margmiðlunarskólans. 34 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.