Tölvumál - 01.07.1999, Blaðsíða 36
Tölvufjarskipti
Reynslan hefur einnig
sýnt að netstjóri getur
stjórnað allt að 7
sinnum meira gagna-
magni séu gögnin
miðlæg miðað við
umsjón dreifðra
gagna
A/leð Frame Relay má
skilgreina trygga lág-
marksbandvídd og
hámarksgusuband-
vídd sem þó er ein-
ungis til reiðu sé
bandvídd í netinu til
reiðu.
toppa. Ályktunin er sú að ekki dugi minna
en 2 Mbit/s hámarksflutningsgeta á víð-
netinu fyrir þessa skrifstofu. Það má jafn-
vel álykta sem svo að 10 Mbit/s gusugeta
sé það sem þarf og með aukinni getu út-
stöðva verður þörf fyrir góðri gusugetu
enn meiri. Notkun margmiðlunar ýmis
konar svo sem videoefnis hef auk þess
ekki enn verið komið í atvinnuþágu í um-
ræddu fyrirtæki.
Staðreyndir sem draga má út úr þessari
umferð eru
• meðalumferð á daginn er 250kb/s
• Gusugeta nets sé a.m.k. 1100 kb/s og
helst ekki minni en 2000 kb/s
• Hlulfall inn/út umferðar = 12,7 (óssy-
metrískt)
Þjónusta sem hentar
Æskilegt væri fyrir fyrirtækið sem á þetta
útibú að geta keypt meðalumferð 250kb/s
með áðurnefnda gusugetu. Sveigjanlega
bandvídd sem þessa gætu fjarskiptafyrir-
tæki sem byggja umhverfi sitt á ATM
tækni auðveldlega boðið upp á. í ATM
orðabókinni heitir flutningsþjónusta sem
býður upp á gusukennda getu en tryggir
jafnframt ákveðinn meðalbitahraða VBR
sem er skammstöfun á Variable Bit Rate.
Eðli gagnaflutninga í dag eru eins og
myndin sýnir, þ.e. háar gusur með meðal-
bandvídd stærðargráðu minni en
toppgusugeta. Þær tengingar sem fyrir-
tækjum bjóðast í dag gera engan veginn
ráð fyrir þessari staðreynd þar sem gert er
ráð fyrir fastri bandvídd og gjaldi óháð
notkun. Nú á þessu ári hyllur undir breyt-
ingar í þessa veru. Bæði Landssíminn h.f.
og Islandssími h.f. boða nýjar háhraða-
tengiþjónustur er byggja á áðurnefndri
ATM tækni. í byrjun hyggjast fyrirtækin
að bjóða uppá upp á Frame Relay sem
býður að nokkru leiti uppá þá getu sem
gagnaflutningar í dæminu að ofan krefjast.
Með Frame Relay má skilgreina trygga
lágmarksbandvídd og hámarksgusuband-
vídd sem þó er einungis til reiðu sé band-
vídd í netinu til reiðu.
Onnur hagræðing af nútíma fjarskipta-
tækni
Önnur hagnýting háhraðafjarskipta eins
og Frame Relay og ATM er fækkun tengi-
punkta hjá fyrirtækjum. I núverandi um-
hverfi eru gjarnan tvær línur á hvert útibú
þar sem önnur er fyrir gagnasamskipti og
hin fyrir samtengingu símstöðva. Fyrir 5
útibú eru því hér um að ræða 10 línur. Þar
að auki eru gjarnan tengingar frá tölvu-
miðstöð til internetsheildsala, samtals 11
línur. Með nýtingu ofangreindrar tækni
má fækka þessum línum allt frá því að
vera 6 niðrí 1 línu í tölvumiðstöð. Einfald-
aður strúktúr skilar sér alltaf í lægri og ör-
uggari rekstrarkostnaði. Hér verða nokkr-
ar leiðir nefndar.
Gagnasendingar ó Frame Relay
I stað fimm aðgangspunkta í tölvumiðstöð
fyrir gangasendingar er einn stór aðgangs-
punktur fyrir öll útibúin. Hér fækkar lín-
um um 4 í okkar dæmi og vegna tölfræði-
legra eiginleika gagnasamskipta má heild-
arbandbreidd aðgangspunkts vera minni
en samanlögð bandbreidd eldri tenginga,
það kallast að yfirbóka. Ef unnt er einnig
að tengjast Internetveitu um sama að-
gangspunkt með Frame Relay þá má
leggja eina línu í viðbót niður og línum
hefir fækkað um 5. Sama sparnaði mætti
einnig ná um ATM aðgangspunkt. Flug-
leiðir hafa tengt skrifstofur erlendis með
þessum hætti í um fjögur ár.
36
Tölvumál