Tölvumál - 01.05.2002, Page 16
CeBIT 2002
A( CeBit 2002
Einar H. Reynis
Það leyndi sér ekki að annar bragur
var á sýningunni þetta árið en fyrri
ár. Bæði kom til að róttækar breyt-
ingar voru gerðar á uppröðun sýningarað-
ila en hitt líka að aðsóknin var minni en á
síðasta ári, en þegar upp var staðið hafði
gestum fækkað um 18%. Einnig bárust af
því fréttir að sum fyrirtæki heimiluðu ekki
starfsfólki sínu að sækja sýninguna á
vinnutíma. Minnst var á að 130 Bandarísk
fyrirtæki hafi afboðað að sýna en þegar
upp var staðið hafði sýnendum samt ekki
fækkað svo mjög frá seinasta ári. Stjórn-
endur CeBIT tilkynntu að til stæði að
halda tæknisýningar í Kína, Astralíu,
Tyrklandi og Bandaríkjunum undir sama
nafni og færa þannig þema sýningarinnar
nær heimaslóðum viðkomandi lands.
Hvað innihald snertir var sem fyrr úr
geysilega miklu að moða en umfangið er
þannig að höfundur varði heilum degi í
einum skála af 27 og það segir sig sjálft að
margt verður útundan sem ella væri
áhugavert að skoða. Hvað heildarútkom-
una snertir má segja að þetta ár hafi rneira
byggst á frekari úrvinnslu þeirrar tækni
sem hafði verið kynnt á fyrri sýningum.
Það má líka vel vera að það hafi verið
vegna almenns samdráttar í tækniheimin-
um og að minna sé varið í rannsóknir og
þróun en áður. Aðstandendur sýningarinn-
ar vöktu athygli á því að áherslan þetta
árið væri á öryggismál og þá á sviði
„biometric“-auðkenna, í gagnaflutningi og
fjarvinnslu og í veiruvömum.
Bless, VHS
I umfjöllun um CeBIT-sýninguna á sein-
asta ári var fjallað um eiginleika þjöppun-
arstaðalsins MPEG-4 og að þessu sinni
voru ýmsir aðilar að sýna tæknina á lófa-
tölvum. Ekki verður annað sagt en að það
sem fyrir augu bar lofaði góðu. Það sem
núna stendur í vegi fyrir því að tæknin
verði aðgengileg almenningi er að leysa
deilumál vegna afnota af tækninni en unn-
ið er að úrlausn á þeim þætti. Að því loknu
verður mögulegt að skoða hreyfimyndir
með betri gæðum miðað við bandbreidd
en þekkst hefur til þessa. Þá voru einnig
16
Tölvumál