Bókasafnið - 01.03.1982, Síða 13
KRISTÍN H. PÉTURSDÓTTIR
Um Þjónustumiðstöð
bókasafna
Þjónustumiðstöð bókasafna var stofnuð í
ágúst 1978 og opnuð sem fyrirtæki síðla vors
1979 að Hofsvallagötu 16 í Reykjavík.
Rættist þá gamall draumur íslenskra bóka-
varða. Þjónustumiðstöðin er sjálfseignar-
stofnun Bókavarðafélags íslands og Félags
bókasafnsfræðinga.
Lengi vorum við búin að líta öfundar-
augum til nágrannaþjóða okkar, Dana,
Finna, Norðmanna og Svía, sem hafa í
fjölda ára rekið öflugar þjónustumiðstöðvar
með fjölbreyttri þjónustu fyrir allar tegundir
bókasafna og teygt anga sína langt út fyrir
Norðurlöndin. T.d. eru starfsmenn dönsku
miðstöðvarinnar á stöðugum ferðalögum út
um allan heim við að skipuleggja söfn, og
„allar leiðir liggja til Rómar“, bókaverðir og
arkitektar úr öllum heimsálfum leggja leið
sína til Danmerkur til þess að kynna sér
byggingar og búnað safna.
Finnar og Svíar eru einnig framarlega á
þessu sviði, en Norðmenn fara sér hægar, og
við eltum þessa stóru bræður okkar á okkar
eigin hraða, hraða skjaldbökunnar, sem
kemst, þótt hægt fari. Þjónustumiðstöðin á
Hofsvallagötu hefur þegar haft geysimikla
þýðingu fyrir uppbyggingu og endurskipu-
lagningu safna hér á landi, þrátt fyrir æsku
sína og dálítil viðvaningsspor á því hála
sviði, sem heitir viðskiptasvið.
í erindi, sem Hrafn Harðarson, bæjar-
bókavörður í Kópavogi, hélt á 5. landsfundi
bókavarða, 6.—7. sept. 1978, um hlutverk
þjónustumiðstöðva bókasafna, sagði hann:
„Með sanni má segja að þjónustumiðstöð
bókasafna sé forsenda hvers kyns samvinnu
þeirra. Með tilkomu hennar er mögulegt að
spara margvíslegan tvíverknað, sem nú á sér
stað, og bókaverðir losna undan mörgum
tilbreytingarlausum störfum, sem í framtíð-
inni verða leyst af hendi í þjónustumiðstöð-
inni, og geta þeir þá í auknum mæli snúið
sér að þjónustunni við notendur safnanna og
að því að fjölga notendum safnanna og auka
lestraráhuga almennings.“
Þjónustumiðstöð bókasafna er nú þriggja
ára og er fróðlegt að staldra við og athuga,
hve miklu hefur tekist að koma í fram-
kvæmd af því, sem af mikilli bjartsýni var
skráð í markmiðslýsingu hennar. í skipu-
lagsskrá miðstöðvarinnar segir, að henni sé
ætlað:
A. Að vinna að miðskráningu bóka.
B. Að gefa út alls konar bókfræðileg gögn,
t.d. spjaldskrárspjöld, samskrár, bóka-
skrár, bókfræðilykla, upplýsingarit um
nýjar útgáfur bóka, platna og snælda.
C. Að gefa út rit, sem varða starfsemi
bókasafna, t.d. leiðbeiningabækur fyrir
bókaverði og rit varðandi stefnur í
bókasafnsmálum almennt.
D. Að annast sameiginleg innkaup bóka-
safna á safnkosti og sjá um band og frá-
gang bóka til útláns.
E. Að framleiða ýmiss konar bókasafns-
vörur og dreifa þeim til safna.
F. Að veita sérfræðilega aðstoð og ráðgjöf,
sem horfir til heilla íslenskum bóka-
söfnum.
A. Miðskráning er dæmigert verkefni
þjónustumiðstöðva og margar þeirra hafa
byrjað á því að skrá bækur og gefa út spjöld.
Það var einmitt fyrsta verkefni ÞB, gerð
spjaldskrárspjalda yfir bækur gefnar út á
íslandi á árunum 1944—73. Hér er um að
ræða um 10.000 titla, þýddar og frumsamd-
ar bækur. í dag annast ÞB, í samvinnu við
Landsbókasafn íslands, miðskráningu og
13