Bókasafnið - 01.03.1982, Page 17
Bamadeild í almenningsbókasafninu í Ishej.
nýjar gerðir húsgagna, sem ætluð eru bóka-
söfnum. Þessi húsgögn auðvelda alla þjón-
ustu við notendur safna og hin staðlaða
framleiðsla lækkar kostnað. Því miður er oft
of seint byrjað að huga að innréttingunni, er
mestöllu fé hefur verið eytt í bygginguna
sjálfa þannig að ónógt fé er til innréttinga.
Þar með minnka möguleikar á að gera
safnið að jákvæðri og vinalegri upplýsinga-
og menningarstofnun — notendur laðast
ekki að því, sem hlýtur þó að hafa verið
ætlunin.
Einhverjir munu ætíð spyrja: Til hvers er
verið að stofna bókasafn? Eins mætti spyrja:
Til hvers er verið að leggja vegi? Fáir munu
neita því, að vegir greiði fyrir flutningum
jafnt á fólki sem öðru. I yfirfærðri merkingu
gildir nákvæmlega það sama um bókasöfn.
Þau eru vegur til umheimsins, vegur, sem
tryggir dreifingu hugsana, hugmynda,
þekkingar og upplýsinga. Markmiðið með
því að koma á góðu menntakerfi er að gera
fólk að dugandi og upplýstum borgurum,
virkum í samfélaginu. í nútíma þjóðfélagi
má þetta ekki takmarkast við menntakerfið
eingöngu. Það þarf að ná til alls þjóðfélags-
ins og hér er hlutverk bókasafnsins mikil-
vægt til þess að ná til allra meðlima þjóðfé-
lagsins, hvar sem þeir búa og hverjir sem
þeir eru.
Fyrir böm er bókasafn stofnun, sem veitir
þeim reynslu og þroska. Það veitir skóla-
nemendum stuðning við nám sitt. Full-
orðnum veitir það möguleika á að ná nýjum
markmiðum, möguleika á að fylgjast með,
endurmennta sig og afla sér nýrra hug-
mynda. Bókasafn veitir öllum möguleika á
auðugri tilveru.
Hvemig þarf bókasafn að vera búið til að
geta leyst þessi verkefni? Hvort sem um er
að ræða bókasafn í stóru sveitarfélagi eða
lítið bókasafn í litlu sveitarfélagi, þá eru
nokkur grundvallaratriði alltaf þau sömu og
nauðsýnleg til að bókasafn geti rækt verk-
efni sín.
Grundvallarstarfsemi almenningsbóka-
17