Bókasafnið - 01.07.1984, Qupperneq 5
Skipst á skoðunum
3 á móti 2? Skoðanaskipti fóru friðsatnlega fratn. Taliðfrá vinstri: Sigurður,
Björn, Ólafur, Hiltnar og Erla.
Bókin á í vök
að verjast
Hringborðsumræður í Norræna
húsinu 22. febrúar 1984
/ síðustu 3 tbl. Bókasafnsins hefur
verið fjallað um samspil bókaútgáfu
og bókasafna í greinum og viðtölum,
þar sem menn hafa settfram skoðanir
sínar, hver og einn staddur í sínu
horni tilverunnar. Sú hugmynd kom
fram t vetur að ritnefnd blaðsins kall-
aði saman nokkra menti að hringborði
til að leiða í Ijós sem flestar hliðar á
þessu efni. Hugmyndin varð að veru-
leika í Norræna húsittu þatin 22.
febrúar s.l., þegar 2 bókaútgefendur,
í fulltrúi almennings og 2 bókaverðir
kotnu saman til að ræða utn stöðu
bókarinnar, bókaútgáfu og bókasófn.
Þátttakendur voru Ólafur Ragnars-
son (ÓR) framkvæmdastjóri bókaút-
gáfuntiar Vöku, Björn Jónasson (BJ)
annar framkvæmdastjóra bókaút-
gáfunnar Svart á hvítu, Sigurður
Ragtiarsson (SR) menntaskólakenn-
ari, Erla Jónsdóttir (EJ) bókavörður
í Garðabæ og fortnaður Félags
altnenningsbókavarða og Hilmar
Jónsson (HJ) bókavörður í Keflavík,
sem varflulltrúi ritnefndar Bókasafns-
itis. Utnræðurnar voru teknar upp á
2 stiældur, og tekur það þolinmóðan
áheyranda 2V2 klst. að hlusta áflmm-
tnetminganna, sem Eiríkur Jónsson
safnvörður hjá D Vfesti áfllmu. Vél-
ritað var eftir upptökunum, og af-
raksturinn var um 50 þéttvélritaðar
síður. Þær voru síðan klipptar og
skornar, og áranguritm af þvi starfl
ber nú fyrir augu lesenda Bókasafns-
ins.
Bókaklúbbar og bóksala á al-
mennum markaði
HJ
Mig langar til að byrja á því að
ræða um bókaklúbba. Við höfum
séð að þeir hafa bæði kosti og
galla. Kostirnir eru kannski þeir
að þarna er verið að dreifa bókaút-
gáfu um lengri tíma en yfir jóla-
vertíðina, en gallarnir kannski
fólgnir í mismunandi verði bóka í
klúbbunum og verslunum. Pað
væri gott ef bókaútgefendur lýstu
hér svolítið fyrir okkur, hvaða
ávinning þið teljið vera af bóka-
klúbbum og þið skýrðuð fyrir
okkur þennan verðmismun.
ÓR
Ég get svarað þessari spurningu
Hilmars af hálfu þeirra, sem
standa að bókaklúbbnum Veröld,
en hann er í eigu fjögurra forlaga,
Fjölva, Iðunnar, Setbergs og
Vöku.
f þessu sambandi er rétt að fólk
átti sig á því, að milli 80 og 90%
allrar sölu íslenskra bóka í bóka-
búðum fer fram í nóvember og
desember ár hvert. Sumir bók-
salar segja jafnvel að rúmur helm-
ingur af allri bóksölu ársins hjá
þeim sé á tveim til þrem síðustu
dögunum fyrir jól. Afþessu draga
menn þá ályktun, að langmestur
hluti bóksölunnar á hinum
almenna markaði sé til gjafa, en
ekki til einkaeignar og nota þeirra,
sem kaupa bækurnar.
Utgefendur hafa leitað ýmissa
leiða til þess að auka sölu á bókum
sínum á öðrum tímum ársins í
bókabúðunum. Meðal annars
hafa menn gefið út ýmsar teg-
undir bóka utan við jólavertíðina
í tilraunaskyni, en áhugi bóka-
þjóðarinnar hefur reynst lítill.
Þær bækur sem helst hafa selst í
þessu heíðbundna bóksölukerfi
fyrstu tíu mánuði ársins eru
barnabækur og einstakar nytja-
bækur fyrir fullorðna svo sem um
matreiðslu, blómarækt og ljós-
myndun.
Stöðugur samdráttur í bóksölu
síðustu árin hefur orðið til þess að
útgefendur hafa sett á fót fleiri
bókaklúbba og reynt að brydda
þar upp á nýjungum og auka fjöl-
breytni tilboða klúbbanna. Þessi
BÓKASAFNIÐ
5