Bókasafnið - 01.07.1984, Blaðsíða 19

Bókasafnið - 01.07.1984, Blaðsíða 19
Lög Félags bókavarða í rannsóknarbókasöfnum 1. gr. Félagið heitir Félag bókavarða í rann- sóknarbókasöfnum. Heimili þess og varn- arþing er í Reykjavík. 2. gr. Tilgangur félagsins er: - að cfla samstarf og samheldni bóka- varða í íslenskum rannsóknarbóka- söfnum; - að stuðla að viðgangi íslenskra rann- sóknarbókasafna; - að vinna að auknum skilningi á mikilvægi rannsóknarbókasafna og upplýsingamiðlunar í samfélaginu; - að starfa með öðrum samtökum bókavarða og bókasafna, svo og öðrum aðiljum á sama vettvangi, að sameiginlcgum markmiðum; - að eiga samskipti við hliðstæð sam- tök erlendis. 3. gr. Fulla félagsaðild geta átt bókaverðir rannsóknarbókasafna (þjóðbókasafns, háskólabókasafna og sérfræðibókasafna), jafnt opinberra sem annarra, fastir kenn- arar í bókasafnsfræði við Háskóla Islands og starfsmenn stofnana sem vinna að upp- lýsingamálum; einnig áhugamcnn um ntarkmið félagsins. Aðild án atkvæðis- réttar geta átt rannsóknarbókasöfn, svo og aðrar stofnanir er starfa að upplýsingamál- um. Skulu þær greiða árgjald í hlutfalli við fjölda stöðugilda, skv. nánari ákvörðun aðalfundar. Skriflegar umsóknir um aðild skulu berast stjórn félagsins, og sker hún úr efvafi leikur á um aðildarrétt. 4. gr. Stjórn félagsins skipa þrír menn og tveir til vara. Hún skal kosin á aðalfundi og er formaður kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu og skipta þeir með sér verkum. Enn fremur skal kjósa tvo endur- skoðendur. Enginn skal sitja lengur en þrjú ár í einu í stjórn félagsins. 5. gr. Aðalfundur skal haldinn í janúar ár hvert. Skal boða til hans með minnst 14 daga fyrirvara. Föst dagskrá aðalfundar skal vera: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Samþykkt reikninga. 3. Kynning nýrra félaga. 4. Ákvörðun um árgjald. 5. Tillögur um lagabreytingar. 6. Kosning stjórnar. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Kosning fulltrúa í stjórn Bókavarða- félags Islands. 9. Kosning fulltrúa á ársþing Bóka- varðafélags íslands. Aðalfundur telst lögmætur og ályktun- arhæfur sé löglega til hans boðað. 6- gr- Reikningsár félagsins miðast við alman- aksárið. 7. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Lög Skólavörðunnar I. Nafn og markmið L gr. Félagið heitir Skólavarðan: Félag um málefni skólasafna. Heimili þess og varn- arþing er í Reykjavík. 2. gr. Markmið félagsins eru að efla íslensk skólasöfn á öllum stigum skólakerfisins og vinna að auknum skilningi á mikilvægi skólasafna. Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að: a) Stuðla að hagnýtingu bókasafnsfræði- legrar og kennslufræðilegrar þekk- ingar í skólasöfnum. b) Halda uppi faglegri umræðu um skólasöfn meðal þeirra sem starfa á skólasöfnum og annarra sem áhuga hafa á málefnum skólasafna. c) Fylgja cftir hagsmunamálum skóla- safnvarða. d) Stuðla að bættri menntun skólasafn- varða. e) Stuðla að samvinnu milli skólasafna og annarra safnategunda. f) Stuðla að samvinnu við alþjóðasam- tök skólasafnvarða. II. Aðild 3. gr. Aðild geta þeir fcngið sem starfa á skóla- söfnum og aðrir sem áhuga hafa á mál- efnum skólasafna. Skólasöfn geta gerst aðilar. Skriflegar umsóknir um aðild skulu berast stjórn félagsins. Nýir félagar verða að hljóta samþykki á stjórnarfundi. III. Stjórn og trúnaðarmenn 4. gr. Stjórn félagsins skipa fimm aðalmcnn, formaður, ritari, gjaldkeri og tveir með- stjórnendur. Stjórnin skal kosin til eins árs í senn á aðalfundi með leynilegri atkvæða- grciðslu. Formaður skal kosinn sérstak- lega. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Ekki ættu fleiri en þrír að ganga úr stjórn samtímis, og enginn skal sitja í stjórn lengur en fjögur ár í senn. Á aðalfundi skulu ennfremur kosnir tveir endurskoðendur og kosnir fulltrúar í fastar nefndir. IV. Aðalfundur 5- gr- Aðalfundur félagsins skal haldinn í mars ár hvert og skal boða til hans með minr.st 14 daga fyrirvara. Föst dagskrá aðalfundar m.a.: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar félagsins lagðir fram. 3. Kosning stjórnar. 4. Kosning á arsþing BVFÍ, skv. rcglum þar að lútandi. 5. Kosning fulltrúa í stjórn BVFÍ. 6. Kosning í fastar nefndir. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Árgjald ákveðið. 9. Lagabreytingar. 10. Onnur mál. Aðalfundur telst lögmætur og ályktun- arhæfur sé löglega til hans boðað. V. Reikningar 6. gr. Reikningsár félagsins miðast við starfsár, þ.e. milli aðalfunda. VI. Lagabreytingar og félagsslit 7. gr. Tillögur um lagabreytingar skulu sendar félögum' með fundarboði aðal- fundar og skoðast þær samþykktar ef 2/3 fundarmanna eru þeim samþykkir. 8. gr. Slíta má félaginu á aðalfundi, hafi til þess verið löglega boðað. Samþykki þarf hjá 2/3 hlutum félagsmanna. Eignir félagsins skulu þá renna til skólasafna eftir nánari ákvörðun stjórnar. 9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Samþykkt 10. mars 1983 BÓKASAFNIÐ 19

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.