Bókasafnið - 01.07.1984, Side 8
Björn, að í Danmörku er markað-
urinn 20 sinnum stærri en hér.
Bókaforlag þar, sem sérhæfir sig í
útgáfu bóka sem ekki ná almennri
sölu, getur samt vænst þess að
selja hvern titil í nokkrum þús-
undum eintaka. 3.000 eintaka sala
þar, sem nægir vel til að standa
undir vandaðri handbók, myndi
samsvara sölu 150 eintaka hér. Þó
að bóksala hér á landi sé hlutfalls-
lega meiri á hvern íbúa en í
ýmsum öðrum löndum, held ég
að það muni reynast erfitt fyrir
íslensk bókaforlög að sérhæfa sig
of mikið. Svokallaðar sölubækur
hafa staðið undir útgáfunni á
vönduðum bókmenntaverkum
og ýmsu sérhæfðu efni. Það er
hætt við að svo þurfi að vera
áfram, meðan menn geta ekki
leitað í opinbera sjóði til styrktar
útgáfunni og hvert forlag fyrir sig
þarf að ná jafuyægi í sínum
rekstri.
Eg ætla nú ekki að gera mikið
úr þessari sérhæfingu. Ég nefndi
hana í framhjáhlaupi þegar ég
reyndi að átta mig á þessari þróun,
ef hún verður hér eins og hún
hefur verið erlendis. Ein lausnin á
þessu sérhæfingarvandamáli er að
auka skipulagið á markaðnum.
Ég held að slíkt gerðist eingöngu
í gegnum bókaklúbba.
Á áðurnefndu þingi kom fram
að flest bókaútgáfufyrirtæki í
Svíþjóð ganga mjög illa, þannig
að ríkið styrkir mestalla úgáfu á
handbókum. Sértilboð á hand-
bókum og fjölfræðibókum á
mjög svo lágu verði má rekja til
þess.
SR
Ég vil drepa á atriði sem ekki
hefur komið inn í þessa umræðu
og það er gildi bókaverslana, en í
mínum huga eru þær afskaplega
mikils virði. Mér liggur við að
segja að það sé ákveðin mæli-
kvarði á, hvort hér sé menningar-
samfélag, að hér séu starfandi
öflugar bókaverslanir, sem líta á
það sem hlutverk sitt að hafa á
boðstólum fjölbreytt úrval bæði
af innlendum og erlendum
bókum allt árið um kring. Þetta
kostar auðvitað töluvert eins og
kemur fram í álagningarpró-
sentum sem þær fá. Ég tel svo
sannarlega mikið misst ef þessum
verslunum fækkaði og þær yrðu
fátæklegri en þær þó hafa verið.
HJ
Það er punktur hjá Sigurði sem
mér finnst athyglisverður. Það er
klárt mál að þessar minni bóka-
búðir, sérstaklega hér í Reykja-
vík, standa margar höllum fæti
eftir að stórmarkaðirnir, bæði
Hagkaup og Mikligarður, byrj-
uðu að selja bækur.
ÓR
Ég tel að bókabúðirnar eigi að
vera aðalsöluvettvangur bóka í
menningarþjóðfélagi. Þjónusta
þeirra breytist eflaust eitthvað, en
ég trúi ekki að þeim fækki mikið.
Þær hafa verulegu hlutverki að
gegna. Aftur á móti hef ég orðið
var við það í samtölum við bók-
sala, að þeir telja nauðsynlegt að
gera átak til að fá fólk inn í bóka-
búðirnar árið um kring. Þar er
verulegt verk að vinna, og það
gæti verið þáttur í samstarfi bóka-
útgefenda og bóksala að finna
leiðir til þess.
Söluskattur - Virðisauka-
skattur
HJ
En er söluskattsmálið ekki
stærsta málið fyrir ykkur útgef-
endur?
ÓR
Söluskatturinn er verulegt
hagsmunamál ekki bara fyrir
bókaútgefendur, heldur alveg
jafnt fyrir bókagerðarmenn,
bókakaupendur og nánast alla
sem tengsl hafa við bækur eða
áhuga á bókum. Það er fráleitt að
ríkissjóður skuli hirða 23.5% af
verði bókarinnar þegar hún á í
vök að verjast, eins og virðist vera
núna síðustu árin.
Við útgefendur teljum sjálfsagt
að bækur verði undanþegnar
söluskatti. Það hefur ekki ennþá
fengið hljómgrunn hjá fjármála-
ráðherra, þó við höfum farið í
ráðuneytið á marga fundi, sent
áskoranir og greinargerðir um
málið, og bókagerðarmenn, rit-
höfundar, bókaverðir og fleiri
hafi lagt málinu lið. Ég vænti þess
að áfram verði unnið að þessu
mikla hagsmunamáli og það
komist í höfn.
SR
Nú er búið að leggja fram
frumvarp um virðisaukaskatt,
sem kæmi í stað söluskatts. Mér
þætti áhugavert ef einhver vildi
tjá sig um það, hvernig virðis-
aukaskattur myndi koma við
bókaútgáfu og bóksölu ef hann
yrði innleiddur.
ÓR
Virðisaukaskatturinn mun
valda verulegum þyngslum í
bókaútgáfunni eins og annarri
framleiðslu, því að eðli hans er að
því leyti annað en söluskattsins,
að hann leggst ofan á hvert stig
framleiðslunnar, en ekki einungis
á útsöluverðið. Varan safnar á sig
þessum skatti eftir því sem virði
hennar eykst. Ef vara er undan-
þegin skattinum, er um að ræða
endurgreiðslu á síðasta stiginu.
Bækur sem við Björn myndum
láta framleiða og komnar væru úr
prentsmiðju inn á lager hjá okkur,
yrðu komnar með þennan skatt á
sig, jafnvel þótt þær færu ekki
lengra og seldust aldrei.
Fyrirætlanir stjórnvalda um
virðisaukaskattinn tengjast á
vissan hátt baráttumáli okkar um
niðurfellingu söluskatts af
bókum. Ástæðan er sú, að eftir að
nýi skatturinn tekur gildi mun
ætlunin að endurgreiða virðis-
aukaskatt af þeim vörutegundum,
sem verið hafa undanþegnar sölu-
skatti, en ekki að veita frekari
undanþágur. Þess vegna er nú enn
meiri þörf en áður á að fá sölu-
skattinn felldan niður.
Auglýsingar
SR
Mig langar að spyrja um atriði
sem tengist tilkostnaðinum við
útgáfuna, og það er þetta óskap-
lega auglýsingafargan frá ýmsum
forlögum, sérstaklega í sjónvarpi.
Oft finnst mér verið að auglýsa
bækur sem eiga varla skilið alla þá
auglýsingu sem þarna er viðhöfð.
8
BÓKASAFNIÐ