Bókasafnið - 01.07.1984, Side 17
Lög bókavarðafélaganna
Lög Bókavarðafélags íslands
I. Nafn og hlutverk
1. gr.
Bókavarðafélag íslands, samband bóka-
varða og bókasafna, cr frjálst og óháð sam-
band félaga, sem starfa að bókasafnsmál-
um. Heimili þess og varnarþing er í
Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur sainbandsins er:
- að efla íslensk bókasöfn og auka skilning
á hlutverki þeirra í þágu menningar og
upplýsingastarfsemi;
- að marka stefnu í málum, sem varða
bókasafnsstarfsemi í landinu;
- að efla upplýsingamiðlun meðal bóka-
safna og þókavarða og treysta samheldni
þeirra félaga sem standa að sambandinu;
- að koma fram fyrir hönd íslenskra bóka-
safna og bókavarða gagnvart innlendum
og erlendum aðilum.
II. Aðild að sambandinu
3. gr.
Rétt til aðildar eiga þau félög, sem stofnuð
hafa verið til að vinna að framgangi
íslenskra bókasafnsmála.
4. gr.
Félög, sem cru aðilar að sambandinu skulu
starfa skv. lögum, sem ekki brjóta í bága
við lög þessi eða grundvallaratriði í sam-
þykktum sambandsins.
5. gr.
Umsókn að sambandinu fylgi eftirtalin
gögn:
- eintak af lögum félagsins;
- félagatal, þar sem tilgreint sé fullt nafn,
nafnnúmer, heimilisfang, aldur, starfs-
heiti og vinnustaður hvcrs félaga;
- nöfn stjórnarmanna og varastjórnar, svo
og aðrar þær upplýsingar, sem sam-
bandsstjórn óskar eftir.
Sambandsstjórn tekur ákvörðun um inn-
töku félaga en leita skal staðfestingar næsta
ársþings.
6. gr.
Stjórnin getur vikið félagi úr sambandinu,
ef það brýtur lög þess. Til brottvikningar
þarf samþykki 2/3 hluta stjórnarmanna.
Ákvörðun um brottvikningu skal leggja
fyrir næsta ársþing til fulln-
aðarákvörðunar. Til að staðfesta brott-
vikningu þarf 2/3 greiddra atkvæða.
Ákvörðun um brottvikningu skal tilkynna
viðkomandi í ábyrgðarbréfi, þar sem til-
greina skal ástæðu fyrir henni og hvenær
hún taki gildi. Aðili, sem hefur verið vikið
úr sambandinu, á enga kröfu á hendur því
né neitt tilkall til sjóða þess eða annarra
eigna.
7. gr.
Ursögn félags úr sambandinu er því aðeins
gild, að hún hafi verið samþykkt á lög-
mætum aðalfundi félags. Gera skal sam-
bandsstjórn viðvart um úrsögnina í
ábyrgðarbréfi með minnst 4 vikna týrir-
vara. Ursögn tekur gildi að 4 mánuðum
liðnum frá því að hún er tilkynnt samband-
inu og er viðkomandi félag skattskylt fyrir
það tímabil.
Félag sem segir sig úr sambandinu á ekki
tilkall til sjóða eða annarra eigna sam-
bandsins.
III. Réttindi og skyldur aðild-
arfélaga
8. gr.
Eftir nánari ákvörðun í lögum aðildarfé-
laga skulu þau opin bókavörðum, bóka-
söfnum og áhugamönnum um bókasafns-
mál.
9. gr.
Hvert félag hefur fullt frelsi um mál sín,
þó svo að eigi fari í bága við lög sambands-
ins eða samþykktir ársþings.
10. gr.
Aðildarfélög skulú að loknum aðalfundi
sínum senda skrifstofu/stjórn sambands-
ins:
- skýrslu stjórnar;
- ályktanir og samþykktir;
- blöð og tímarit er aðildarfélög gefa út.
11. gr.
Ágreiningsmál, scm upp kunna að koma í
félagi og varða sambandið má skjóta til
stjórnar sambandsins. Urskurður hennar
skuldbindur aðila, en áfrýja má honum til
ársþings. Sama gildir um ágreiningsmál,
er rísa kunna milli sambandsfélaga og þeim
tekst ekki að jafna.
IV. Fulltrúakjör
12. gr.
Aðildarfélög hafa rétt og skyldu til að kjósa
fulltrúa úr hópi félaga sinna til setu á árs-
þingum og öðrum fulltrúafundum sem
kunna að vera haldnir.
Fjöldi fulltrúa á ársþingi skal vera á bilinu
20-30 og jafnmargir til vara. Skulu þeir
kosnir til tveggja ára í senn. Enginn má
vera fulltrúi tveggja eða fleiri félaga í senn.
Stjórn sambandsins ákveður nánar tölu
fulltrúa og ákveður skiptingu milli aðildar-
félaga, þó þannig að fyrst fær hvert félag
einn fulltrúa og síðan fá félögin fulltrúa í
hlutfalli við félagatölu sína miðað við 31.
desember.
Stjórn aðildarfélags skal tilkynna stjórn
sambandsins bréflega kjör fulltrúa a.m.k.
þrem vikum áður en ársþing á að hefjast.
V. Ársþing
13. gr.
Ársþing fer með æðsta vald í öllum málum
sambandsins. Stjórn og varastjórn eiga rétt
til þingsetu með málfrelsi og tillögurétti,
en atkvæðisrétt hafa aðeins kjörnir fulltrú-
ar. Stjórn sambandsins er heimilt að bjóða
gestum að sitja þingið sem áheyrnarfull-
trúar.
14. gr.
Ársþing skal haldið í maí.
15. gr.
Ársþing er lögmætt ef löglega er til þess
boðað.
16. gr.
Ársþing skal boða bréflega með mánaðai
fyrirvara.
17. gr.
Dagskrá skal send þingfulltrúum eigi síðar
en 10 dögum fyrir þing, einnig endur-
skoðaðir reikningar og tillögur eða mál
sem stjórnin eða aðildarfélög óska að
leggja fyrir ársþing. Tillögur einstakra
þingfulltrúa eða breytingartillögur við
fyrrgreind mál skulu lagðar fram skriflega.
18. gr.
Dagskrá ársþings skal a.m.k. vera:
1. Þingsetning.
2. Nafnakall fulltrúa.
3. Kosning fundarstjóra og ritara og
varamanna þcirra.
4. Lögð fram skýrsla stjórnar og endur-
skoðaðir reikningar til samþykktar.
5. Tillögur, sem borist hafa teknar til
umræðu og afgreiddar.
6. Framkvæmdaáætlun næsta árs.
7. Fjárhagsáætlun og ákvörðun um gjald
til sambandsins næsta ár.
8. Tilkynning um þá sem hafa verið
kosnir í stjórn af hálfu aðildarfélaga.
9. Kjör formanns (annað hvert ár).
10. Kjör tveggja endurskoðenda og eins
til vara.
19. gr.
Þingfundum skal stjórnað samkvæmt
almennum þingsköpum. Einfaldur meiri-
hluti ræður úrslitum í öllum málum, nema
öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.
VI. Aukaþing
20. gr.
Stjórn sambandsins getur kallað saman
aukaþing ef henni þykir nauðsyn til bera,
eða ef meirihluti aðildarfélaga eða félög
sem telja meirihluta félagsmanna í sam-
bandinu krefjast þess skriflega. Aukaþing
má boða með skemmst 5 daga fyrirvara.
BÓKASAFNIÐ
17