Bókasafnið - 01.07.1984, Blaðsíða 18
VII. Almennir fundir
21. gr.
Stjórn sambandsins er heimilt að halda
almenna fundi hvenær sem hún telur
ástæðu til og skulu þeir öllum opnir.
Fundir þessir hafa ekki ákvörðunarvald í
málefnum sambandsins, en gcta samþykkt
ályktanir sem beint er til stjórnar eða ann-
arra aðila.
VIII. Landsfundir bókavarða
22. gr.
Ársþing tekur ákvörðun um það hverju
sinni hvenær landsfundir bókavarða skuli
haldnir. Landsfundir eru opnir öllum
félagsmönnum, svo og öðrum einstak-
lingum sem áhuga hafa á bókasafnsmál-
um.
IX. Fjármál
23. gr.
Á hverju ársþingi leggur stjórn sambánds-
ins fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
Reikningsárið er almanaksárið. Reikn-
ingsskil skulu gerð árlega, reikningar yfir-
farnir og cignir kannaðar af kjörnum
endurskoðendum.
24. gr.
Hver meðlimur aðildarfélags greiðir
árgjald til sambandsins. Ársþing ákveður
upphæð þessa gjalds að fengnum tillögum
stjórnar.
X. Stjórn sambandsins
25. gr.
Kosning stjórnar: Stjórn sambandsins
skipa tveir menn úr hverju félagi og tveir
til vara. Hvert félag kýs sína fulltrúa í
stjórn fyrir ársþing sambandsins. For-
maður er kosinn til tveggja ára skriflegri
kosningu á ársþingi sambandsins af full-
trúum aðildarfélaganna. Stjórnin skal
kosin til tveggja ára og skal hún skipta með
sér störfum (varaformaður, ritari, gjald-
keri, meðstjórnendur). Kosning skal fara
fram árlega um hclming stjórnar (cinn
aðalmann og einn varamann úr hverju
félagi). Heimilt er að kjósa félaga að nýju í
stjórn þegar ár er liðið frá því að hann vék
úr henni.
26.
Stjórnarfundi skal kalla saman svo oft sem
þurfa þykir, þó eigi sjaldnar en einu sinni í
mánuði vetrarmánuðina, ennfremur ef
meirihluti stjórnar æskir þess. Dagskrár sé
getið með fundarboðum. Stjórnarfundur
er lögmætur þegar meirihluti stjórnar er á
fundi. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum
mála á stjórnarfundum.
21. gr.
Stjórn sambandsins stjórnar málefnum
þess rnilli þinga. Stjórnin annast rekstur
sambandsins og hagar störfum sínum í
samræmi við iög og samþykktir þess.
Verkefni stjórnar cru m.a.:
- að koma fram fyrir hönd sambandsins
bæði gagnvart innlendum og erlendum
aðilum;
- að afgreiða erindi sem sambandinu ber-
ast frá innlendum og erlendum aðilum;
- að annast útgáfu blaðs;
- að undirbúa ársþing og aðra fulltrúa-
fundi;
- að halda almenna félagsfundi;
- að hlutast til um að stofnaðar verði
nefndir og starfshópar til að sinna ein-
stökum vcrkefnum;
- að ráða starfsmann.
XI. Lagabreytingar og lok
28. gr.
Lögum sambandsins verður aðcins breytt
á ársþingi og skulu tillögur ti! lagabrcyt-
inga sendar fulltrúum mcð fundarboði.
Lagabreyting telst því aðeins samþykkt, að
tveir þriðju fundarmanna greiði henni
atkvæði.
29. gr.
Til að slíta sambandinu þarf samþykki á
ársþingi með 2/3 hluta atkvæða. Eignir
sambandsins rcnna þá til bókasafnsþarfa
eftir nánari ákvörðun stjórnar.
30. gr.
Lög þessi öðlast gildi strax.
Lög Félags almenningsbókavarða
Heiti
1. gr.
Félagið heitir: Félag almenningsbóka-
varða.
Heimili þess og varnarþing er í Reykja-
vík.
Hlutverk
2. gr.
Hlutverk félagsins er að stuðla að eflingu
íslenskra almenningsbókasafna og standa
vörð um hagsmuni þeirra, sem þar starfa,
með því m.a.:
a. að kynna þjónustu almcnningsbóka-
safna og auka þar með skilning
landsmanna á mikilvægi þeirra.
b. að stuðla að starfsmenntun starfs-
fóiks í almenningsbókasöfnum og
styrkja samheldni þeirra.
c. íð standa vörð um kaup og kjör starfs-
fólks í almcnningsbókasöfnum.
d. aö efna til og styrkja samband við
hliðstæð félög erlendis.
Adild
3- gr.
Félagið cr opið öllu starfsfólki almenn-
ingsbókasafna, bókasafnsstj órnar-
mönnum og áhugamönnum um almenn-
ingsbókasöfn, sem geta einnig gengið í
félagið með málfrelsi og tillögurétt.
Almenningsbókasöfn geta fcngið aðild
mcð því að greiða sem nemur tvöföldu
árgjaldi hvers starfsmanns safnsins, og skal
bókasafnsstjórn kjósa sér fulltrúa í fclagið
með fullum réttindum.
Umsóknir um aðild skulu berast stjórn
félagsins, sem sker úr urn, ef vafi þykir
lcika á um réttindi til aðildar.
Nýir félagar skulu bornir upp á aðal-
fundi.
Stjórn
4. gr.
Stjórn félagsins skipa þrír aðalmcnn:
formaður, ritari og gjaldkeri og þrír til
vara. Eigi skulu vera fleiri en tveir úr sama
sveitarfélagi í stjórn samtímis.
Stjórnin skal kosin á aðalfundi, með
leynilcgri atkvæðagrciðslu, til eins árs í
senn. Formaður skal kosinn sér, en aðrir
stjórnarmenn í cinu. Stjórnin skiptir með
sér verkum að öðru leyti.
Eigi skulu fleiri en þrír ganga úr stjórn
samtímis og enginn skal sitja í stjórn
lengur en 4 ár í senn.
Aðalfundur
5. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn að
hausti, eða eigi síðar en í októberlok. Skal
hann boðaður skriflega með minnst
tveggja vikna fyrirvara.
Föst dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Árgjald ákveðið.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Tillögur um lagabrcytingar.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning á ársþing BVFÍ, skv. reglum
þar að lútandi.
7. Kosning í aðrar nefndir og ráð.
8. Reikmngar félagsins samþykktir.
9. Kosning endurskoðcnda.
Aðalfundur cr lögmætur og ályktunar-
hæfur sé löglega til hans boðað.
Reikningar
6. gr.
Reikningsár félagsins miðist við alman-
aksárið.
Félagsslit
7- gf-
Slíta má félaginu á aðalfundi, hafi til þess
verið boðað. Til þess þarf samþykki 2/3
hluta félagsmanna. Skulu þá eignir féiags-
ins renna til Sambands ísl. sveitarfélaga til
styrktar almcnningsbókasöfnum.
8' gr'
Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.
18
BÓKASAFNIÐ