Bókasafnið - 01.07.1984, Page 21
íslensk almennings-
bókasöfn og upp-
bygging þeirra
Tillögur nefndar sem gera á heildaráætlun um
uppbyggingu almenningsbókasafna og
aðsetur þeirra
/ gildandi lögum um almennings-
bókasöfn nr. 50/1976 er svohljóðandi
ákvœði til bráðabirgða:
„Menntamálaráðuneytið og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga skulu
sameiginlega gangast fyrirgerð heild-
arácetlunar um uppbyggingu og
aðsetur almenningsbókasafna.“
í samráði við Samband íslenskra
sveitarfélaga skipaði Ingvar Gíslason
þáverandi menntamálaráðherra,
þann 13-febrúar 1980, fimtn manna
nefnd til að annastframangreint verk-
efni. í nefndinni sitja:
1. Kristín H. Pétursdóttir, bóka-
fulltrúi ríkisins, Metinta-
málaráðuneyti, formaður, skipuð án
tilnefningar,
2. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri, Seltjarnarnesi, og
3. Ölvir Karlsson, oddviti,
Ásahreppi, skipaðir samkvæmt
tilnefningu Sambands íslenskra
sveitarfélaga,
4. Elfa-Björk Gunnarsdóttir,
borgarbókavörður, Reykjavík,
°8
5. Sigrún Magnúsdóttir, bóka-
vörður, ísafirði, skipaðar sam-
kvæmt tilnefningu Bókavarða-
félags íslatids.
Nefndin tók til starfa í tnaí 1980.
Húti hefur haldið lOfundi en á milli
funda hafa nefndarmenn utinið að
einstökum þáttum verkefnisins.
í október s.l. sendi nefndin frá
sér skýrslu þar sem fjallað er um
hlutverk, þróun og stöðu ís-
lenskra almenningsbókasafna.
Eru hér birtir kaflar úr skýrslunni
ásamt niðurstöðum. Nefndar-
menn benda á að þrátt fyrir veru-
legar framfarir sem orðið hafa í
bókasafnsmálum margra sveitar-
félaga verði að telja, að íslensk
almenningsbókasöfn séu mjög
langt frá því takmarki sem þeim er
sett í lögum.
Hlutverk íslenskra almennings-
bókasafna er skilgreint í lögum
um almenningsbókasöfn nr. 50/
1976 og í yfirlýsingu Menningar-
og vísindastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO) um al-
menningsbókasöfn.
Skilgreining nefndarinnar á
hlutverki almenningsbókasafna er
þessi:
Bókasöfn sem
menntastofnanir
Almenningsbókasöfnum ber
að veita þeim einstaklingum þjón-
ustu, sem leggja stund á sjálfs-
menntun, svo og þeim, sem taka
þátt í fullorðinsfræðslu. Auk þess
verða söfnin að leitast við að
koma á samvinnu og samstarfi við
aðrar mennta- og menningar-
stofnanir í umdæmi sínu.
Bókasöfn sem
upplýsingastofnanir
í þjóðfélaginu er sífellt meiri
þörf á upplýsingamiðlun af ýmsu
tagi. Bókasöfnin eiga að vera
hjálpartæki almennings í upplýs-
ingaleit og tengiliður á milli
almennings og stofnana hins
opinbera, svo og annarra sem geta
veitt upplýsingar um tiltekin efni.
Bókasöfnum ber því að byggja
upp safnkost sinn svo, að þau geti
sinnt þessu hlutverki.
Bókasöfn sem
menningar- og
tómstundastofnanir
Bókasöfnin skulu stuðla að
umræðum og menningarstarf-
serni með sýningum, rithöfunda-
kvöldum, tónlistarflutningi,
umræðufundum, fyrirlestrum,
kvikmyndasýningum, o.s.frv.
Bókasöfnin skulu leitast við að
taka virkan þátt í menningarstarf-
semi í sínu umhverfi og hafa nána
samvinnu við þá aðila sem hafa
menningarstarfsemi á stefnuskrá
sinni í umdæminu.
Bókasöfnin skulu með safn-
kosti sínum, húsnæði og þjónustu
vera staður, þar sem almenningur
getur leitað sér afþreyingar við
lestur bóka, blaða og tímarita, við
BÓKASAFNIÐ
21