Bókasafnið - 01.07.1984, Side 27
Séð inn á hluta lestrarsvœðanna.
millisafnalán. Á safninu var unnin
upp samskrá um tímarit á milli-
safnalánum í vestur-þýskum
bókasöfnum, sem nú hefur verið
sett inn á tölvuvæddan upplýs-
ingabanka. Auk þess hefur safnið
m.a. að geyma samskrá fyrir rit
frá Austur-Evrópu, Asíu og Af-
ríku. Helstu sérdeildir þess ert
handritadeild, kortadeild, tónlist-
ardeild, Austur-Evrópudeild og
Austurlandadeild.
Safnið veitir þjónustu sína
ókeypis. Útlánstímar safnsins eru
mánudaga til fösturdaga kl. 9-19
og til kl. 13 á laugardögum. Lestr-
arsalir og spjaldskrársvæði eru
opin frá klukkan 9-21 mánudaga
til laugardaga og til kl. 17 á sunnu-
dögum. Eins og mikið tíðkast á
stórum rannsóknarbókasöfnum í
Þýskalandi er ekki opinn aðgang-
ur að bókum safnsins nema þeim
bókum sem eru á lestrarsölunum.
Aðalbókageymslurnar eru á
tveim kjallarahæðum, og er
bókunum raðað í hillur eftir
aðfanganúmerum. Pantanir eru
sendar niður með sérstöku loft-
knúnu póstkerfi (Rohrpost) og
bækurnar eru síðan sendar að
afgreiðsluborðinu á færiböndum
og í lyftum.
Að heildargrunnfleti til er
safnið 81.300 m2 og rúmar alls 4
milljónir binda, og þar að auki eru
stækkunarmöguleikar. (Þjóðar-
bókhlaðan er um 12.500 m2 og
mun rúma eina milljón binda).
Árleg aðföng safnsins eru um
91.000 bindi bóka. Lestraraðstaða
er fyrir 600 manns á safninu. (í
Þjóðarbókhlöðu er gert ráð fyrir
vinnuaðstöðu fyrir allt að 800
manns).
Um glæsileik og mikilfengleik
safnsins tala myndirnar annars
skýrustu máli. Engin hætta er á að
notendur fái innilokunarkennd
þarna inni. Hver hæðin teygir sig
upp af annarri, stundum að því er
virðist í það óendanlega. Svo hátt
er til lofts og vítt til veggja að
manni finnst umhverfið upphefja
anda sinn og klæjar alveg í lófana
eftir að setjast þarna niður til að
öðlast hlutdeild í alheimsvisk-
unni. Og umhverfið virðist jafn-
vel geta veitt innblástur til að bæta
örlídð við hana.
Pórdís T. Þórarinsdóttir
bókavörður
Menntaskólanum við Sutid
V/SA
BUNAÐARBANKINN
m/ eitt kort innanlands
OG UTAN
BÓKASAFNIÐ
27