Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1990, Blaðsíða 4

Bókasafnið - 01.03.1990, Blaðsíða 4
Guðrún Pálsdóttir bókasafnsfræðingur, Rannsóknastofnun landbúnaðarins „Mér hefur ávallt þótt nálægð bókagóð“ - viðtal við frú Kristínu Jónsdóttur s Islendingar eru bókaþjóð og verða það vonandi um ófyrirsjáanlega framtíð. Alltaföðru hverju fréttum við af einstaklingum sem gefa bókasöfnum bækur sem þeir hafa safnað á langri æfi til þess að þær megi áfram varð- veitast á einum stað. Hinn 5. október 1984 bárust fregnir af einni slíkri bókagjöf og nú lagði fólk við hlustirnar. 30.000 bindi, gat verið að slíkt safn væri til í einkaeigu? Ótrúlegt-en satt. Gefendurnir voru hjónin séra EiríkurJ. Eiríksson og kona hans, frú Kristín Jónsdóttir, og hinn lánsami þiggjandi var Bæjar- og héraðsbókasafnið á Sel- fossi. Með þessari gjöf jókst bókakostur safnsins um meira en helming. En hvers konar einstaklingar eru það sem ná að safna saman á einni stuttri mannsævi slíkum verðmætum sem safn þeirra Eiríks og Kristínar er? Til þess að forvitnast svolítið um „fólkið á bak við bækurnar" sótti blaðamaður Bókasafnsins frú Kristínu heim að Hörðuvöllum 2 á Sel- fossi þar sem bókagjöfin er ennþá varðveitt meðan verið er að ganga frá endanlegu húsnæði fyrir Bæjar- og héraðs- bókasafnið á Selfossi. Séra Eiríkur lést 11. janúar 1987 en frú Kristín býr enn í húsi þeirra hjóna ásamt tveim börnum þeirra. Ég ber að dyrum að Hörðuvöllum 2, stóru, rauðmál- uðu húsi, eftir hádegi síðla í nóvember og til dyra kemur gráhærð, lágvaxin og hnellin kona, ótrúlega snör í hreyf- ingum. Hún býður mér til stofu og í ljós kemur að Kristín er ekki bara snör í snúningum, hún er líka fljót að taka af skarið og skipuleggja tímann. Við byrjum á því að horfa á myndband - viðtal við þau hjón sem Sjónvarpið sýndi í Kastljósi eftir að þau höfðu gefið safn sitt. Síðan segir Kristín mér frá prentuðum heimildum um þau og grein eftir séra Eirík sem hægt er nota til að fylla upp í eyður og spara okkur tíma (sjá heimildaskrá). Við byrjum á að rifja upp bernsku og uppvaxtarár þeirra hjóna. Þar til leiðirlágu saman... Kristín: „Ég er fædd í Minna-Garði í Dýrafirði árið 1917 en fluttist þriggja ára að Gemlufalli sem stendur beint á móti Þingeyri og var ferjustaður. Ég var elst sex systkina og fór því ung að vinna hin margvíslegu störf sem sveita- heimili við sjó býður upp á. Snemma reyndi á áræði og úthald okkar krakkanna við ferjustörfin þar sem faðir okkar hafði búskap að sinna og var auk þess ekki heilsu- hraustur. Var ég oft með í flutningunum og þótti eðlilegt að stjórna bátnum þótt fullorðnir karlmenn væru farþeg- ar. Gaman þótti mér að sigla yfir Qörðinn. Oft þurfti ég að standa niðri við sjó í óveðri á dimmum haustkvöldum með lukt í hendi til að lýsa föður mínum heim eftir að hann hafði flutt fólk til Þingeyrar. Minningar um þessi dimmu haustkvöld eru mér enn ljóslifandi í minni. Báturinn færði Gemlufallsheimilinu ekki aðeins ferju- tekjur heldur var hann líka notaður til að sækja gull í greipar Ægis og þar tókum við systkinin líka til hendinni. Auk lögferjunnar á Gemlufalli var þar símstöð, póstaf- greiðsla og margháttuð þjónusta við ferðafólk, svo að snemma kynntist ég gestagangi og öllum þeim crli sem fylgir slíkri miðstöð. Jafnframt því ólst ég upp við hefð- bundið baðstofulíf þar sem ungir og gamlir störfuðu saman og miðluðu og kenndu hver öðrum. Þar lærðum við börnin að lesa, skrifa og reikna - og að hlusta á upp- lestur góðra bóka. Skólagangan hófst seinna. Barnaskól- ann gat ég gengið í að heiman en stuttur var skólatíminn miðað við það sem við eigum nú að venjast." Haustið 1934 settist Kristín í Núpsskóla sem stofnaður var 1907 og reyndust þau spor henni örlagarík því seinna námsár hennar þar réðst að Núpi ungur eldhugi og frábær kennari, séra Eiríkur J. Eiríksson. Eiríkur: Eiríkur fæddist í Vestmannaeyjum árið 1911 en fluttist strax á fyrsta ári til Eyrarbakka til móðurforeldra sinna. Móðir hans vann utan heimilisins og faðir hans, sem var trésmiður, fluttist til Vesturheims áður en Eiríkur fæddist til að leita sér -atvinnu og lækninga við astma. Hann kom aldrei aftur til íslands. Eiríkur ólst því upp hjá afa sínum og ömmu á Eyrarbakka sem á þessum árum var töluvert menningarsetur. Eins og Kristín naut hann í bernsku baðstofumenningarinnar með upplestri og marg- háttuðu öðru félagslífi og fór einnig snemma að lesa upp- hátt fyrir afa sinn sem var blindur. Bókaástin var Eiríki í blóð borin og ungur að árum eignaðist hann kistil undir bækur sínar. Skáp eignaðist hann svo 10 ára, annan stærri 12 ára og bókaskáp fékk hann í fermingargjöf frá móður sinni. Hvers konar bók- menntir voru það svo sem Eiríkur geymdi í skápum sínum og annaðist af þeirri natni sem einkenndi bóka- söfnun háns öðru fremur? í stuttum kafla í Hclgakveri, „Tóftin aflar trjánna", segir Eiríkur frá því hvernig hann byrjaði að safna bókum. Hann hrcifst eins og önnur börn af myndskreyttum bókum en áttaði sig mjög snemma á því að bækur voru lykill að þekkingu og það var leiðarljós hans í bókasöfnuninni alla tíð. Meðal fyrstu bókanna sem Eiríkur keypti voru íslendingasögurnar og aflaði hann fjár til þeirra kaupa með því að gæta kúa þeirra Eyrbekkinga. Ljóðmæli Jónasar Hallgrímssonar keypti hann fyrir ferm- ingarpeningana sína og sama vor fékk hann Lestrarbók Sigurðar Nordals sem verðlaun fyrir ritgerð í barnadeild Ungmennafélagsins á Eyrarbakka. Lestrarbókin var Eiríki svo leiðarvísir í bókaöfluninni lengi vel þar sem hann keypti fyrst og fremst bækur sem þar voru tilgreindar eða birtir kaflar úr. Eiríkur lærði utanskóla hjá séra Ragnari Ófeigssyni í Fellsmúla. Á sumrin vann hann fyrir sér með vegavinnu. Seinna lá svo leiðin til höfuðborgarinnar, í Menntaskól- 4 BÓKASAFNIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.