Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1990, Side 42

Bókasafnið - 01.03.1990, Side 42
Vistlegt og vel nýtt húsnxði. var fyrrverandi húsnæði bókasafnsins aftur fengið sitt gamla hlutverk, það að vera hátíðarsalur skólans. Breyt- ing þessi hefur, að mínum dómi, tekist ákaflega vel. Þjón- ustumiðstöð bókasafna útvegaði teikningu að safninu á hinum nýja stað frá Bibliotekscentralen í Kaupmanna- höfn, Arndís Árnadóttir, bókasafnsfræðingur og innan- hússarkitekt, sá um litaval og veitti ráðgjöfum frágang og raflýsingu. Hlutverk bókasafnsins Hlutverk bókasafnsins er að styðja kennslu í skólanum, kenna nemendum að afla sér þekkingar og líta á hvert við- fangsefni út frá sem flestum sjónarhornum í stað þess að lesa aðeins „hina einu sönnu kennslubók" í hverju fagi fyrir sig eins og áður tíðkaðist. Safnkostur er því saman- settur og starfsemi þess skipulögð þannig að safnið hafi bolmagn til að styðja kennslu og nám. Á bókasafninu eiga nemendur að geta fengið að láni heimildir vegna verk- efnagerðar í tengslum við námið auk bóka um flest það sem þeir hafa áhuga á. Þar að auki eru þar til notkunar en ekki útláns orðabækur og kennslubækur auk ýmiss konar handbóka. Nemendur notfæra sér safnið í æ ríkari mæli til heimanáms og verkefnagerðar og er oftast hvert sæti skipað ákveðna tíma dagsins. Kennarar eiga einnig að geta fengið að láni flest það sem þeir þurfa sem ítarefni við kennsluna og verkefna- og prófagerð. Þannig styður bókasafnið við námskrá og kennslu skólans. Á vegum safnsins fer síðan fram kennsla í notkun þess með það að markmiði að gera nemendur að sjálfstæðum safnnotendum, bæði í skólanum og síðar í líf- inu. Innkaup safnsins byggjast því á eftirfarandi atriðum: 1. Ábendingum kennara um æskilegt efni, innlent og erlent. 2. Áliti bókavarðar á því hvar þurfi að endurnýja, breyta og bæta eftir því sem föng eru á. 3. Óskum nemenda þar sem því verður við komið. Fræðibækur og íslensk skáldrit eru í fyrirrúmi auk heppilegra tímarita. Afþreyingarbókmenntir eru aðeins keyptar á þeim erlendu tungumálum sem kennd eru í skólanum nema kennarar beri fram sérstakar óskir um annað vegna ákveðinna áfanga í kennslu. Bókakostur safnsins var í árslok 1989 um 12700 bækur. Tæplega fjórðungur þessara bóka er gamlar og úreltar bækur sem nýtast safninu nánast ekkert en eru varðveittar af „sögulegum" ástæðum. Sumar þeirra eru frá tímum Bókasafnsins Skinfaxa en aðrar hafa borist sem gjafir frá gömlum nemendum. Þessar gömlu bækur eru allar hafðar í sérstakri geymslu. Ritauki á árinu 1989 var 864 bækur en þar að auki er safnið áskrifandi að 61 tímariti. Fjárveiting til bóka- og tímaritakaupa 1989 var 1.116.000 kr. Bókasafnið er opið frá kl. 8.00-16.30 alla virka daga nema föstudaga en þá er það aðeins opið til kl. 14.30. Safnið er einnig opið tvö kvöld í viku. Auk forstöðu- manns starfar bókavörður í 1/2 starfi og nemandi sem vinnur tvö kvöld í viku. SUMMARY The library ofFlensborg secondary school The history, present conditions and activities ofthe library of Flens- borg secondary school in Hafnarfjörður are dcscribed in view ofgeneral school library development in Iceland. Currently, services to both students and tcachers are emphasizcd. Teaching library skills to studcnts is a main feature. Selection and acquisitions are based on recommendations by teachers, the librarian's decisions on stop-gaps and desiderata by students. General non-fiction works and Icelandic fiction receive prior- ity. Othcr aspects of service and work, such as data on holdings, open- ing hours, etc. are also included. 42 BÓKASAFNIÐ

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.